Innanríkisráðuneytið svaraði ekki bréfum Ríkissaksóknara

Sigríður J. Frið­jóns­dóttir rík­is­sak­sókn­ari segir stjórn­völd, ráðu­neyti og ráð­herra hafa í gegnum tíð­ina sýnt verk­efnum ákæru­valds­ins lít­inn skiln­ing. Fjársvelti stofn­un­ar­innar ógnar réttar­ör­yggi borg­ar­anna.

Stjórnvöld sýni lítinn skilning
Stjórn­völd sýni lít­inn skiln­ing Sigríður J. Frið­jóns­dóttir rík­is­sak­sókn­ari segir að hvorki hafi verið skiln­ingur á mik­il­vægi né umfangi verk­efna ákæru­valds­ins. Mynd: Pressphotos

Inn­an­rík­is­ráðu­neytið verður að styðja betur við starf­semi Rík­is­sak­sókn­ara. Frá árinu 2008 hefur það til dæmis ekki óskað eftir fjár­laga­til­lögum frá emb­ætt­inu sem byggja á raun­veru­legri fjár­þörf þess til að geta sinnt hlut­verki sínu með full­nægj­andi hætti. Þetta kemur fram í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar um Rík­is­sak­sókn­ara. Þá segir að emb­ætti Rík­is­sak­sókn­ara hafi ítrekað vakið athygli ráðu­neyt­is­ins á því að fjár­hags­staða þess kæmi í veg fyrir að það gæti afgreitt saka­mál innan eðli­legs tíma og sinnt lög­bundnu eft­ir­lits­hlut­verki sínu nægi­lega vel. Oft hefur verið fátt um svör frá ráðu­neyt­inu, eins og segir í skýrsl­unni. Sigríður J. Frið­jóns­dóttir, rík­is­sak­sókn­ari, segir þá stað­reynd að stjórn­völd, ráðu­neyti og ráð­herrar hafa í gegnum tíð­ina sýnt verk­efnum ákæru­valds­ins lít­inn skiln­ing standa upp úr í skýrsl­unni að sínu mati. „Þá á ég við að hvorki hefur verið skiln­ingur á mik­il­vægi né umfangi verk­efn­anna,“ segir Sigríður í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar. Þá segir hún að í skýrsl­unni sé lögð áhersla á sjálf­stæði rík­is­sak­sókn­ara og ákæru­valds­ins. „En sjálf­stæðið fer fyrir lítið ef emb­ætt­inu er ekki gert kleift að sinna verk­efnum sínum sökum fjár­skorts.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár