Aðalmeðferð í Marple-málinu í byrjun september

Aðal­með­ferð fer fram í Marple-mál­inu svo­kall­aða í sept­em­ber næst­kom­andi. Þetta var ákveðið í hér­aðs­dómi Reykja­víkur í morgun, þegar fyr­ir­taka fór fram í mál­inu. Mbl.is greinir frá þessu.

Sak­sókn­ari lagði fram ný gögn þegar málið var tekið fyrir í morgun, gögn úr bók­halds­kerfi Kaup­þings og tölvu­póst­sam­skipti.

Aðal­með­ferðin hefst 7. sept­em­ber og er gert ráð fyrir því að hún taki tvær vikur. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, Guðný Arna Sveins­dóttir, fyrr­ver­andi fjár­mála­stjóri bank­ans, Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri bank­ans í Lúx­em­borg og Skúli Þor­valds­son fjár­festir eru ákærð í mál­inu.

Hreiðar Már og Guðný Arna eru ákærð fyrir fjár­drátt og umboðs­svik. Magnús er ákærður fyrir hlut­deild í fjár­drætti og umboðs­svikum og Skúli er ákærður fyrir hylm­ingu.

Málið snýst um til­færslu á um átta millj­örðum króna úr sjóðum Kaup­þings til félags­ins Marple Holding, í eigu Skúla, án þess að lög­mætar við­skipta­legar ákvarð­anir lægju þar að baki.

Kjarninn hefur birt ítar­lega frétta­skýr­ingu um Marple-málið, sem lesa má hér.

Þá birti Kjarninn einnig ákæruna gegn fjór­menn­ing­unum, en hana má lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár