Þórarinn Leifsson hefur áður sent frá sér fjölmargar sögur, jafnt fyrir börn og fullorðna. Hann fer ótroðnar slóðir í bókum sínum sem allar hafa hlotið frábærar viðtökur gagnrýnenda á Íslandi og verið þýddar á fjölda tungumála. Bekkurinn er öðruvísi en fyrri verk höfundar á þann hátt að hún varð til úr 76 ljósmyndum og jafn mörgum dagbókarbrotum. Þetta er heimildaverk um íslenska ferðaþjónustu um það leiti sem hún var að ná hámarki, árin 2018-2019.
Hvernig vaknaði hugmyndin að verkefninu?
„Haustið 2017 var ég svolítið á krossgötum í lífinu. Ég var nýskilinn eftir tæplega tuttugu ára hjónaband og fluttur heim til Íslands frá Berlín þar sem ég hafði einangrast svolítið í eigin heimi. Það var því mjög frískandi að rjúka af stað með erlenda ferðamenn um ísland, þá fyrst og fremst í Gullhring til að byrja með.
[adspot]Rigningarsumarið mikla 2018 fór ég síðan að taka myndir af bekk á Geysi í hverjum Gullhring og einhvern tímann um haustið datt mér í hug að tengja þessar myndir við búta úr dagbókinni minni. Jafnframt gaf ég hverri ferð frá einum upp í fimm gullhringi – að hætti TripAdvisor.“
Segðu okkur frá þema verkefnisins?
„Þemað er fyrst og fremst þessi bekkur sem speglar bæði mig og íslensku þjóðina. Við erum ennþá að átta okkur á okkur sjálfum og hvernig við eigum að mæta öllum þessum ferðamönnum sem vilja setjast upp á okkur. Myndir og textar koma úr sitt hvorri átt og mætast í opnum bókarinnar; sjötíu og sex myndir af sama bekknum allt árið í kring í jafn mismunandi veðrum. Ferðamennirnir koma síðan inn á myndflötinn sem nokkurs konar boðflennur, þeir ýmist sitja á bekknum, standa á honum eða hreinlega dansa fyrir framan hann. Textinn er fyrir sitt leiti úr dagbókinni minni þann sama dag og ekki endilega í beinu samhengi við það sem er að gerast hjá bekknum á myndinni. Samanlagt er þetta heimild um afmarkaðan tíma. Heimild um hvernig ferðamenn eru að koma hingað en líka heimild um hversdag leiðsögumannsins.“
Hér er hægt að skoða og styrkja verkefnið.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir