Borgarstyrjöld framundan

Búast má við met­fjölda fram­boða í Reykja­vík í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum sem haldnar verða í lok maí. Spenn­andi próf­kjör eru hafin hjá nokkrum flokkum en aðrir leita log­andi ljósi að fram­bæri­legu fólki til að stilla upp á lista.

Kosið verður í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum þann 26. maí næst­kom­andi víðs vegar um landið. Sveit­ar­fé­lögin í land­inu eru 74 en verða 73 eftir kosn­ing­arnar með sam­ein­uðu sveit­ar­fé­lagi Sand­gerðis og Garðs.

Framboð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, og þá sér­stak­lega í Reykja­vík, vekja eðli máls­ins sam­kvæmt mesta athygli, þar sem fólks­fjöld­inn á því svæði er lang­sam­lega mestur og Reykja­vík­ur­borg er lögum sam­kvæmt mið­stöð stjórn­sýslu í land­inu.

Miðað við umfjall­anir og yfir­lýs­ingar stjórn­mála­afla má jafn­vel búast við met­fjölda fram­boða í Reykja­vík í kosn­ing­unum. Fjölgun full­trúa í borg­ar­stjórn, úr 15 í 23, gæti gert það að verkum að auð­veld­ara verði fyrir nýja og minni flokka að koma full­trúum að.

Þeir flokkar sem eiga nú þegar full­trúa í borg­ar­stjórn, Sam­fylk­ingin, Sjálf­stæð­is­flokkur, Vinstri­hreyf­ingin - grænt fram­boð og Píratar hafa allir lýst því yfir að þeir muni bjóða fram og stendur val á fram­bjóð­endum á lista flokk­anna yfir.

Barist um oddvitann hjá íhaldinu

Odd­vita­kjör í Sjálf­stæð­is­flokknum fer fram um helg­ina. Þar eru fimm í fram­boði, Eyþór Laxdal Arnalds, Áslaug Frið­riks­dóttir, Kjartan Magn­ús­son, Vil­hjálmur Bjarna­son og Viðar Guðjohn­sen.

Talið er að þau fyrst­nefndu, Eyþór, Áslaug og Kjartan, eigi raun­hæfa mögu­leika á að sigra kosn­ing­una. Eyþór hefur á bak við sig svo­kall­aða kosn­inga­vél Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar utan­rík­is­ráð­herra, sem er afar sterk í Reykja­vík. Að auki hefur hann stuðn­ing Morg­un­blaðs­ins, þar sem hann er meðal eig­enda. Áslaug hefur einnig með sér stóran hóp fólks. Hún er umkringd konum sem styðja hana, auk þess að sá hópur sem fylgdi Illuga Gunn­ars­syni að málum í borg­inni eru margir meðal stuðn­ings­manna hennar. Má þar nefna bæði eig­in­konu Illuga, Bryn­hildi Ein­ars­dóttur og Sirrý Hall­gríms­dóttur, aðstoð­ar­mann Illuga. Kjartan hefur einnig dágóðan hóp með sér í kosn­inga­bar­átt­unni. Kjartan hefur verið dug­legur að koma sér í fjöl­miðla á kjör­tíma­bil­inu með hinar ýmsu aðfinnslur á verk­efni meiri­hluta borg­ar­stjórnar, en meðal stuðn­ings­menn hans í bar­átt­unni má nefna bróður hans Andrés Magn­ús­son, pistla­höf­und hjá Við­skipta­blað­inu og þunga­vigt­ar­mann í kosn­inga­vél Sjálf­stæð­is­flokks­ins á lands­vísu. Kjartan lenti tveimur sætum fyrir ofan Áslaugu í próf­kjöri fyrir síð­ustu kosn­ingar, en þar voru eðli máls­ins sam­kvæmt tölu­vert fleiri í fram­boði.

Kjör­nefnd mun skipa aðra á lista flokks­ins fyrir kosn­ingar. Margir munu vera að velta fyrir sér að gefa kost á sér á lista, þar á meðal núver­andi borg­ar­full­trúi Marta Guð­jóns­dóttir, Magnús Sig­ur­björns­son fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri borg­ar­stjórn­ar­flokks sjálf­stæð­is­manna og bróðir Áslaugar Örnu, vara­for­manns flokks­ins. Þar að auki hafa verið nefndir til sög­unnar Björn Gíslason, vara­borg­ar­full­trúi og Jón Axel Ólafsson, útvarps­maður hjá Árvakri, en hann stýrir nú morg­un­þætt­inum Ísland vaknar, sem gert er ráð fyrir að legg­ist af þegar Logi Bergmann hefur störf eftir lög­bann þann 1. mars. Einnig Vala Páls­dóttir for­maður Lands­sam­bands sjálf­stæð­iskvenna, Björn Jón Bragason rit­höf­undur og Herdís Anna Þor­valds­dóttir, en hún hefur áður gefið kost á sér í próf­kjöri á vegum flokks­ins.

Sitjandi borgarfulltrúar berjast hjá jafnaðarmönnum

Í Sam­fylk­ing­unni er ekki búist við miklum dramat­ískum breyt­ingum á lista. Helstu slagir standa á milli aðila sem nú þegar eru borg­ar­full­trúar flokks­ins eða hafa verið virkir í borg­arpóli­tík­inni á hans vegum. Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri vill leiða áfram og Heiða Björg Hilm­is­dóttir vara­for­maður flokks­ins vill annað sætið. Kristín Soffía Jóns­dóttir borg­ar­full­trúi vill einnig sama sæti. Búast má við nokkuð áhuga­verðum slag þar, þar sem staða Heiðu er lík­leg­ast ekki jafn sterk og ætla mætti miðað við það emb­ætti sem hún gegnir.

Hart verður barist um þriðja sætið þar sem fjögur gefa kost á sér, borg­ar­full­trú­arnir Skúli Helgason og Hjálmar Sveins­son, Aron Leví Beck, for­maður félags jafn­að­ar­manna í Reykja­vík og Sabine Leskopf vara­borg­ar­full­trúi flokks­ins. Auk þess gefur vara­borg­ar­full­trú­inn Magnús Már Guð­munds­son kost á sér aftur. Alls eru fjórtán í fram­boði hjá flokknum, þar á meðal Teitur Atlason full­trúi á neyt­enda­stofu sem býður sig fram í 7. til 9. sæti, Ellen Calmon fyrr­ver­andi for­maður Öryrkja­banda­lags­ins sem býður sig fram í 5. sæti sem og Guðrún Ögmunds­dóttir fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi og þing­maður sem gaf það út öllum að óvörum í gær að hún sæk­ist eftir 5. til 7. sæti. Flokksval Sam­fylk­ing­ar­innar mun fara fram 10. febr­úar.

Gæti fjölgað hjá Vinstri grænum

Vinstri græn verða með raf­rænt for­val þann 24. febr­úar. Kjör­nefnd mun síðan gera til­lögu að skipan á lista flokks­ins í kjöl­far for­vals­ins. Líf Magneu­dóttir, eini borg­ar­full­trúi flokks­ins, hefur lýst því yfir að hún vilji halda odd­vita­sæt­inu og Elín Oddný Sig­urð­ar­dóttir sem nú er vara­borg­ar­full­trúi flokks­ins vill annað sætið. Aðrir sem hafa verið nefndir til sög­unnar sem hugs­an­legir fram­bjóð­endur eru Hermann Valsson sem var áður vara­borg­ar­full­trúi, Þor­steinn V. Ein­ars­son, Hreindís Ylfa Garð­ars­dóttir stjórn­ar­maður VG í Reykja­vík, Gústaf Adolf Sig­ur­björns­son sem á sæti í stjórn­kerfis- og lýð­ræð­is­ráði borg­ar­innar og René Biasone sem á sæti í heil­brigð­is­nefnd borg­ar­innar.

Gera má ráð fyrir að eitt­hvað af fylg­is­aukn­ingu Vinstri grænna á lands­vísu smit­ist yfir í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum, og með fjölgun borg­ar­full­trúa, mætti ætla að þeim standi fleiri sæti til boða nú en áður.

[box]

Oddviti Pírata í borg­inni og eini borg­ar­full­trúi flokks­ins, Halldór Auðar Svansson hyggst ekki gefa kost á sér áfram. Þórlaug Borg Ágústs­dóttir sæk­ist eftir odd­vita­sæt­inu í hans stað en hún skip­aði þriðja sæti á lista flokks­ins í síð­ustu kosn­ingum. Það gera einnig Svafar Helgason, Arnaldur Sig­urðs­son og Alex­andra Briem en auk þess hefur Bergþór Heimir Þórð­ar­son Njarðvík verið nefndur sem fram­bjóð­andi flokks­ins, ásamt Elsu Nore sem verið hefur virk innan flokks­ins.

Flestir ef ekki allir bjóða sig fram í 1. sætið hjá Pírötum vegna fyr­ir­komu­lags kosn­inga hjá flokknum. Notast er við Schulze kosn­inga­kerfið en reynslan hefur sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans kennt fram­bjóð­endum það að bjóði fram­bjóð­endur sig fram í sæti neðar sé það ávísun á að fá það einmitt ekki heldur fær­ast enn neðar á lista.

Prófkjör hjá flokknum hefst lík­leg­ast í næstu viku sam­þykki félags­fundur þá til­lögu og mun vara í ein­hvern tíma. Kjós­endur þurfa að hafa verið skráðir í flokk­inn í 30 daga til að geta greitt atkvæði í kjör­inu.

Óvissa með framboð margra minni flokka

Óljóst er með stöð­una á Bjartri fram­tíð, sem féll af þingi í nýliðnum Alþing­is­kosn­ingum. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans er nú að störfum nefnd til að kanna grund­völl fyrir áfram­hald­andi fram­boði flokks­ins í borg­inni sem talið er afar lík­legt. Nefnd­inni er einnig ætlað að finna fram­bjóð­endur fyrir flokk­inn en eng­inn þeirra sem gegna aðal- eða vara­borg­ar­full­trúa störfum í dag hyggj­ast gefa kost á sér. Það eru þau S. Björn Blöndal, odd­viti flokks­ins í borg­ar­stjórn, Elsa Yeoman borg­ar­full­trúi og vara­borg­ar­full­trú­arnir Eva Ein­ars­dóttir og Ilmur Krist­jáns­dóttir. Nicole Leigh Mosty fyrr­ver­andi þing­maður flokks­ins hefur verið nefnd sem lík­legur kostur til að leiða borg­ar­stjórn­ar­hóp flokks­ins.

Viðreisn hefur ekk­ert gefið út um fram­boð í Reykja­vík en það er þó afar lík­legt. Pawel Bartoszek fyrr­ver­andi þing­maður flokks­ins hefur hvað oft­ast verið nefndur sem fram­bjóð­andi í borg­inni, en þó er talið lík­legra að hann skipi annað sæti á lista en odd­vita­sætið. Jar­þrúður Ásmunds­dóttir sem var á lista flokks­ins í alþing­is­kosn­ingum er lík­leg­ust til að leiða list­ann en þar að auki hafa verið nefnd til sög­unnar Birna Hafstein for­maður Félags íslenskra leik­ara og Þórdís Lóa Þór­halls­dóttir fyrr­ver­andi for­maður Félags kvenna í atvinnu­líf­inu.

Töluvert háværar raddir hafa verið um sam­eig­in­legt fram­boð Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar en sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans er ólík­legt að það verði að veru­leika í Reykja­vík.

Þrýst á Frosta

Yfir­stand­andi kjör­tíma­bil hefur reynst Framsókn erfitt. Báðir borg­ar­full­trúar flokks­ins, þær Guðfinna Jóhanna Guð­munds­dóttir og Svein­björg Birna Svein­björns­dóttir hafa sagt sig úr flokknum. Guðfinna bauð sig fram til Alþingis á vegum Mið­flokks­ins en náði ekki kjöri. Hún hyggst ekki gefa kost á sér áfram. Svein­björg Birna seg­ist enn vera að íhuga eigin fram­boðs­mál en úti­lokar fram­boð fyrir bæði Framsókn og Mið­flokk­inn.

Búið er að ákveða að stillt verði upp á lista Fram­sóknar í borg­inni en sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans er mik­ill þrýst­ingur á Frosta Sig­ur­jóns­son að gefa kost á sér í odd­vita­sæti flokks­ins. Hann hefur fjallað tölu­vert um borg­ar­málin að und­an­förnu og er til að mynda alfarið á móti Borg­ar­línu. Auk þess hafa verið nefnd til sög­unnar Jóna Björg Sætran sem er núver­andi vara­borg­ar­full­trúi flokks­ins, Sævar Þór Jónsson lög­maður sem situr í umhverf­is­ráði borg­ar­innar og Sæunn Stef­áns­dóttir fyrr­ver­andi þing­maður flokks­ins.

Aðrir komnir skammt á veg

Ekkert hefur heyrst af mögu­legum fram­bjóð­endum í Reykja­vík fyrir hönd Mið­flokks­ins. Mið­flokks­fé­lag Reykja­víkur var stofnað á þriðju­dag en það mun starfa fyrir bæði Reykja­vík­ur­kjör­dæmin. Flokk­ur­inn ætlar sér að bjóða fram en sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans er sú vinna of skammt á veg komin til að nein nöfn hafi verið nefnd í því sam­hengi.

Flokkur fólks­ins hyggst einnig gefa kost á sér í borg­inni. Inga Sæland for­maður flokks­ins vildi í sam­tali við Kjarnann ekk­ert gefa upp um það hverja flokk­ur­inn ætl­aði að fá til liðs við sig á lista, til þess væri nægur tími. Vinnan væri skammt á veg komin.

Umfjöll­unin birt­ist fyrst í Mannlífi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár