Pönkarinn sem eyðileggur verk annarra og skapar úr þeim list

The Clock eftir Christian Marclay hefur víða verið kallað mikil­vægasta listaverk 21. aldarinnar. Sjálfur hefur hann jafnvel verið kallaður einn merkasti lista­maður samtímans. Hann var þó við það að gefa mynd­listina alfarið upp á bátinn eftir lamandi blankheit og henti öllu myndlistar­dótinu sínu.

Christian Marclay er svissnesk-amerískur lista­maður. Árið 2010 var verkið hans, The Clock, frumsýnt í White Cube-galleríinu í London. Ári síðar fór Marcley með verkið á Feneyjatvíæringinn og vann Gullnaljónið, aðal­verðlaun hátíðarinnar, það árið. The Clock er enn þann dag í dag hans frægasta verk og hefur víða verið kallað mikil­vægasta listaverk tuttugustu og fyrstu aldarinnar, og Marcley jafnvel verið kallaður einn merkasti lista­maður samtímans.

Verkið The Clock er sóla­hrings myndband sem Marcley og aðstoðar­fólk hans voru þrjú ár að klippa saman. Sýning á því hefst alltaf á sama tíma, klukkan fimm síðdegis á staðar­tíma. Það sem gerir The Clock sérstakt er að myndbands­brotin sem verkið er sett saman úr vísa stöðugt í eða sýna klukkur, og tíminn í verkinu speglar alltaf tímann á staðnum sem það er sýnt. Þegar horft er á The Clock fylgist áhorf­andinn því með tímanum líða.

Nú hefur Íslendingum loks gefist kostur á að …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár