Borgarlínan komin á fjármálaáætlun

Í frum­varpi að fimm ára fjár­mála­á­ætlun Reykja­vík­ur­borgar sem lagt var fyrir borg­ar­stjórn í byrjun mán­aðar er gert ráð fyrir að 4,7 millj­örðum króna verði veitt til upp­bygg­ingar Borg­ar­línu.

Í frum­varpi að fjár­hags­á­ætlun borg­ar­innar fyrir næsta ár er hins vegar aðeins gert ráð fyrir að 100 millj­ónir króna renni í verk­efni tengd Borg­ar­lín­unni. Þess vegna má gera ráð fyrir að þungi fram­kvæmda við fyrsta áfanga Borg­ar­lín­unnar verði í lok fimm ára áætl­un­ar­innar.

[links]Borg­ar­línan er heiti á sam­starfs­verk­efni sveit­ar­fé­lag­anna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um afkasta­mikið almenn­ings­sam­göngu­kerfi. Búið er að kort­leggja helstu sam­göngu­ása á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem þetta nýja sam­göngu­kerfi mun liggja. Borg­ar­línan mun teygja sig í gegnum öll sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og vera allt að 57 kíló­metrar að lengd. Ekki verða allir kíló­metr­arnir lagðir í einu heldur verður verk­efnið áfanga­skipt.

Jafnvel þó til­lögur um hvar Borg­ar­línan skuli liggja hafi verið sam­þykktar á enn eftir að ganga frá ýmsum þáttum innan stjórn­sýslu sveit­ar­fé­lag­anna svo hægt sé að byrja að leggja brautir fyrir almenn­ings­vagn­ana. Gera þarf nýtt svæð­is­skipu­lag þar sem gert er ráð fyrir þess­ari nýju sam­gönguæð. Í því sam­hengi hefur verið talað um að taka þurfi frá svæði í borg­ar­land­inu fyrir Borg­ar­lín­una.

Borgarstjóri ræddi Borgarlínu í þætti Kjarnans á Hringbraut

Við ákvörðun um legu Borg­ar­lín­unnar var tekið mið af val­kosta­grein­ingu sér­fræð­inga sem unnin hafði verið fyrir Samtök sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu (SSH). Þær leiðir sem fýsi­leg­ast er talið að fara byggja á atriðum sem mik­il­vægt er að upp­fylla svo hægt sé að skapa hag­kvæmt sam­göngu­kerfi.

Þar skipta mestu máli atriði eins og raun­þétt­leiki byggðar, íbúa­fjöldi, hvort um sé að ræða atvinnu­svæði eða íbúða­byggð og svo fram­tíð­ar­á­form á svæð­inu. Þessum þáttum var svo stillt upp til þess að betur mætti greina hugs­an­lega nýt­ingu nýja sam­göngu­kerf­is­ins.

Aðal­skipu­lag höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins til árs­ins 2040 verður að end­ingu upp­fært með þetta í huga og fram­kvæmdir eiga að hefj­ast á næsta ári.

[adspot]

Hagkvæmasta lausnin

Aukinn sam­göngu­vandi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur verið til umræðu á und­an­förnum árum og um leið lausnir við þeim vanda. Verk­fræði­stofan Mannvit vann kostn­að­ar­mat á sam­göngu­sviðs­myndum fyrir sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu árið 2014. Þar kemur í ljós að fjár­fest­ing í bættum almenn­ings­sam­göngum og fjár­fest­ing í vega­kerf­is­ins er hag­kvæm­asta lausnin. Það er jafn­framt sú lausn sem skilar bestum árangri.

Ef ráð­ast á í upp­bygg­ingu stofn­vega innan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins ein­göngu til þess að takast á við auka bíla­um­ferð innan og á milli sveit­ar­fé­lag­anna á suð­vest­ur­horni lands­ins, mun það verða mun óhag­kvæmara en að blanda saman upp­bygg­ingu almenn­ings­sam­gangna-, bíla­um­ferð­ar- og hjól­reiða­inn­viða.

Kostn­aður við Borg­ar­lín­una mun á end­anum verða á bil­inu 63 til 70 millj­arðar króna. Sá kostn­aður mun dreifast yfir nokkur ár.

Á aðal­fundi SSH 3. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn kom fram að ef ráð­ist verði í fram­kvæmdir við helm­ing Borg­ar­lín­unnar í fyrsta áfanga yrði það fjár­fest­ing upp á 30 til 35 millj­arða króna.

[box]

Fimm vandamál enn til staðar

Jafnvel þó búið sé að ákveða hvar Borg­ar­línan eigi að liggja eru enn fimm hlutar leiða­kerf­is­ins sem enn á eftir að taka ákvörðun um. Þar eru aug­ljósar hindr­anir eða mis­mun­andi val­mögu­leikar sem á eftir að taka til­lit til.

Í Hafn­ar­firði stendur valið um hvernig farið verður úr miðbæ Hafn­ar­fjarðar að Hafn­ar­fjarð­ar­vegi. Valið stendur um að fara um Fjarð­ar­götu og Reykja­vík­ur­veg eða um Lækj­ar­götu, Álfa­skeið og Fjarða­hraun.

Í Garðabæ og Kópavogi eru mis­mun­andi val­kostir um hvernig farið verður frá Arn­ar­nes­hálsi að Hamra­borg. Hægt er að fara áfram eftir Hafn­ar­fjarð­ar­vegi yfir Kópa­vogs­læk eða hafa við­komu í Smára­lind eftir Arn­ar­nes­vegi og Fífu­hvams­vegi eða Smára­hvams­vegi.

Úr Foss­vog­inum eru lagðar til tvær leiðir að Kringl­unni. Önnur heldur áfram eftir núver­andi legu Hafn­ar­fjarð­ar­vegar en hin tekur krók að Land­spít­al­anum, og liggur svo eftir Háa­leit­is­braut og Lista­braut.

Á milli Miklu­brautar og Suð­ur­lands­brautar er lagt til að mögu­lega mætti tengja leið­irnar áfram eftir Kringlu­mýr­ar­braut.

Fimmti og síð­asti val­kost­ur­inn fjallar þá um hvernig Borg­ar­línan fer frá BSÍ að Frí­kirkju­vegi. Annar mögu­leik­inn væri að línan lægi eftir Sól­eyj­ar­götu en hinn mögu­leik­inn er að Borg­ar­línan fari eftir Hring­braut, fram hjá Háskóla Íslands og eftir Suð­ur­götu og yfir Tjörnina á Skot­hús­vegi.

Í til­lög­unum er gert ráð fyrir að ein leið liggi út á Kársnes og þveri svo Foss­vog­inn að Háskól­anum í Reykja­vík og gangi svo yfir Vatns­mýr­ina þar sem Reykja­vík­ur­flug­völlur er nú. Í aðal­skipu­lagi Reykja­víkur er gert ráð fyrir bland­aðri byggð í Vatns­mýr­inni og að flug­vall­ar­starf­semin hverfi þaðan.

Engin lest til að byrja með

Þeir Íslend­ingar sem muna eftir starf­hæfri lest á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru orðnir fáir. Tvær eim­reiðar gengu á milli Öskju­hlíðar og niður á strönd­ina undir Arn­ar­hóli þegar fram­kvæmdir við Reykja­vík­ur­höfn stóðu yfir árin 1913 til 2017. Árið 1928 var hætt að nota síð­ustu eim­reið­ina og síð­ustu tein­arnir hurfu í heims­styrj­öld­inni.

Lestir hafa hins vegar víðar verið not­aðar á Íslandi í tak­mark­aðan tíma og þá helst í tengslum við stórar fram­kvæmdir. Lestir var til dæmis not­aðar til að ferja fólk og nauð­synjar í tengslum við bygg­ingu Kára­hnjúka­virkj­unar á síð­asta ára­tug, svo aðeins eitt dæmi sé nefnt.

Ekki er gert ráð fyrir að lestar­teinar verði lagðir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fyrir Borg­ar­lín­una fyrst um sinn. Þétt­leiki byggð­ar­innar og fjöldi far­þega upp­fyllir ein­fald­lega ekki þau þarfa­við­mið sem þurfa að vera til staðar fyrir járn­brauta­lestir. Þess vegna verða vagn­arnir sem þjóna á Borg­ar­lín­unni hefð­bundnir stræt­is­vagnar.

Helsti mun­ur­inn verður hins vegar að vagn­arnir stoppa tíðar á hverri stoppi­stöð fyrir sig og hafa greiða leið um borg­ar­landið, enda verður Borg­ar­línan aðskil­inn frá annarri bíla­um­ferð. Hönnun kerf­is­ins á hins vegar ekki að úti­loka að hægt verði að breyta því í létt­lest­ar­kerfi síðar meir ef þess ger­ist þörf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarlína

ViðtalBorgarlína

Fyrst til að bjóða Betri sam­göngum í kaffi

Bergþóra Þor­kels­dóttir for­stjóri Vega­gerð­ar­innar segir það vera gamla klisju að tala um að Vega­gerðin sé gam­al­dags stofnun. Öllum lyk­il­stjórn­endum hafi verið skipt út frá árinu 2018 og mikil end­ur­nýjun hafi orðið í starfs­manna­hópnum. Hún og Bryndís Frið­riks­dóttir sam­göngu­verk­fræð­ingur sett­ust niður með blaða­manni og ræddu um verk­efni sam­göngusátt­mál­ans. Bergþóra hafnar því að yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar hafi verið ósátt með stofnun félags­ins Betri sam­gangna.

8 mín. lestur

ÚttektBorgarlína

Gam­al­dags Vegagerð sem vill vera aðal

Heim­ildin leit­aði til nokk­urra ein­stak­linga sem hafa með einum eða öðrum hætti komið að verk­efnum sem tengj­ast sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og ræddi við þau um Borg­ar­línu, vinnslu verk­efna sátt­mál­ans, fjár­mögnun þeirra og fram­hald. Í sam­töl­unum kom nokkur gagn­rýni kom fram á Vega­gerð­ina fyrir gam­al­dags stofn­anakúltúr og langar boð­leiðir, for­stjór­inn er sagður vilja hafa „putt­ana í öllu“. Yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar er sögð hafa átt erfitt með að sætta sig við að félagið Betri sam­göngur hafi verið stofnað til að halda utan um verk­efni sátt­mál­ans.

8 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár