Bílaborgin væri dýrari en Borgarlínan

Hag­kvæm­asta sam­göngu­kerfi fram­tíð­ar­innar er blandað kerfi einka­bíla­um­ferðar og almenn­ings­sam­gangna. Ofá­hersla á einka­bíl­inn skilar tak­mörk­uðum árangri og kostar meira.

Uppbygging fyrir innviði bílaborgar er mun dýrari en blandað samgöngukerfi almenningssamgangna og bílaumferðar.
Upp­bygg­ing fyrir inn­viði bíla­borgar er mun dýr­ari en blandað sam­göngu­kerfi almenn­ings­sam­gangna og bíla­um­ferðar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ef ráð­ast á í upp­bygg­ingu stofn­vega innan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins ein­göngu til þess að takast á við auka bíla­um­ferð innan og á milli sveit­ar­fé­lag­anna á suð­vest­ur­horni lands­ins, mun það verða mun óhag­kvæmara en að blanda saman upp­bygg­ingu almenn­ings­sam­gangna-, bíla­um­ferðar- og hjól­reiða­inn­viða.

Sú stefnu­mótun sem borgar- og bæj­ar­stjórnir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafa ráð­ist í á und­an­förnum árum byggir á mati verk­fræði­stof­unnar Mannvits á sam­göngu­sviðs­myndum sem unnin var fyrir sveit­ar­fé­lögin árið 2014.

Kjarninn fjall­aði nýlega um Borg­ar­lín­una og þær leiðir sem fyr­ir­hugað er að nýtt og öfl­ugra almenn­ings­sam­göngu­kerfi mun liggja um höf­uð­borg­ar­svæðið. Þar kemur fram að fram­kvæmdir við Borg­ar­lín­una muni á end­anum kosta á bil­inu 63 til 70 millj­arða króna. Mörgum hefur blöskrað þessi upp­hæð og lagt til að aðrir kostir verði skoð­aðir.

[links]Meðal þeirra sem hafa kallað eftir könnun á öðrum leiðum er Jón Gunn­ars­son sam­göngu­ráð­herra. Hann sagði í sam­tali við Morg­un­blaðið í byrjun maí að í ljósi þess hve kostn­að­ar­söm Borg­ar­línan verður, þá sé eðli­legt að skoðað yrði „í hvaða end­ur­bætur á stofn­brautum mætti ráð­ast í fyrir sömu fjár­hæð og stór­bæta jafn­framt umferð­ar­flæði“.

Ljóst er að sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu munu ekki geta staðið straum af fram­kvæmdum við Borg­ar­línu án aðkomu rík­is­ins að kostn­að­inum. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans hefur sam­tal milli ríkis og bæja vegna þessa ekki enn haf­ist. Ekki er heldur gert ráð fyrir fram­kvæmd­inni á fjár­magns­á­ætlun stjórn­valda og ljóst að sam­göngu­mál munu þurfa tölu­vert aukið fjár­magn á fjár­lögum næstu ára ef ríkið á að koma að upp­bygg­ing­unni.

Nið­ur­stöður skýrslu Mannvits eru hins vegar skýrar: „Ef hag­kvæmar og umhverf­is­vænar sam­göngur eru mark­miðið þá er ljóst að sam­göngu- og skipu­lags­yf­ir­völd eiga að stefna að upp­bygg­ingu þétt­ari byggðar og leggja um leið áherslu á efl­ingu almenn­ings­sam­gangna, göngu og hjól­reiða.“

[adspot]

Þrjár sviðsmyndir sem þegar hafa verið kannaðar

Í skýrslu Mannvits sem unnin var fyrir Samtök sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu árið 2014 var þremur sviðs­myndum stillt upp. Sviðs­mynd­irnar byggðu á spám um fjölgun íbúa til árs­ins 2040, umferð­ar­þróun og þróun byggðar á svæð­inu.

Á næstu ára­tugum – til árs­ins 2040 – er gert ráð fyrir að íbúa­fjöldi höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins auk­ist um 70 þús­und manns. Það er um það bil sami fjöldi sem býr í dag í Kópavogi, Hafn­ar­firði og Garðabæ sam­an­lagt. Árið 2040 er þess vegna gert ráð fyrir að heildar­í­búa­fjöldi höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins verði þá kom­inn upp í 275 þús­und íbúa.

Sviðs­mynd­irnar þrjár fjalla í ein­fald­aðri mynd um þjár stefnu­mót­un­ar­leiðir. Í öllum sviðs­myndum var gert ráð fyrir upp­bygg­ingu stofn­kerfis hjólreiða­leiða til að efla þann ferðamáta.

Sviðsmynd A: Bílaborgin – 2040

Sviðs­mynd A gerir ráð fyrir að allur þungi verði lagður í upp­bygg­ingu inn­viða fyrir einka­bíl­inn. Skipulag höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins miðar að mestum hluta að upp­bygg­ingu utan núver­andi byggða­marka. 60 pró­sent upp­bygg­ing­ar­innar fari í útþenslu en 40 pró­sent innan byggða­markanna. Þá er einnig gert ráð fyrir að hlut­fall ferðamáta sé óbreytt frá því sem er í dag þ.e. að um 76% allra ferða innan svæð­is­ins verði áfram farnar á einkabíl.

„Aðaláherslan verði þá á að auka afkasta­getu stofn­vega­kerf­is­ins veru­lega til að taka við áætl­aðri bílaum­ferð í framtíð. Ekki er gert ráð fyrir breyt­ingum í hlut­deild ann­arra ferðamáta og því verði fjárfest­ingar í almenn­ings­samgöngum óveru­legar.“

Sviðsmynd B: Blandaða borgin – 2040

Sviðs­mynd B gerir ráð fyrir að lögð verði áhersla á bæði afkasta­miklar almenn­ings­sam­göngur og upp­bygg­ingu á stofn­vega­kerf­inu. Miðað við þessa sviðs­mynd er gert ráð fyrir að upp­bygg­ing fari að meiri­hluta fram innan núver­andi byggða­marka. 85 pró­sent af nýrri byggð verði til innan svæð­is­ins en 15 pró­sent utan núver­andi marka.

Hlut­falls­leg skipt­ing ferða­máta um höf­uð­borg­ar­svæðið verður svipuð og þekk­ist í til dæmis Álaborg, Stafangri og Þránd­heimi. Þar er hlut­fall einka­bíla um það bil 58 pró­sent og hlut­fall almenn­ings­sam­gangna 12-13 pró­sent.

„Gert er ráð fyrir umtals­verðum fram­kvæmdum á stofn­vega­kerf­inu til að liðka fyrir bílaum­ferð sem verður, þrátt fyrir breyt­ingar á ferðamátavali, öllu meiri en í dag. Þó eru fram­kvæmdir á stofn­vega­kerf­inu mun minni en í sviðs­mynd A. Megináhersla verði á upp­bygg­ingu hágæða­kerfis fyrir almenn­ings­samgöngur til viðbótar við kerfi stræt­is­vagna,“ segir í skýrslu Mannvits.

Sviðsmynd C: Allir í strætó (eða lestina (eða bæði)) – 2040

Í þess­ari sviðs­mynd er gert ráð fyrir að öll upp­bygg­ing fari fram innan núver­andi byggða­marka svo höf­uð­borg­ar­svæðið þenst ekk­ert út. Hér er gert ráð fyrir að hlut­fall ferða­máta muni breyt­ast þannig að það lík­ist því sem nú er í Björgvin, Mag­deburg og Turku. Hlutfall ferða í einka­bíl verði um 50 pró­sent og almenn­ings­sam­göngur verði um 16-20 pró­sent. „Aðaláherslan verði á upp­bygg­ingu hágæða­kerfis fyrir almenn­ings­samgöngur til viðbótar við kerfi stræt­is­vagna.“

Bílaborgin dýrust

Samkvæmt grein­ingu Mannvits er sviðs­mynd A dýr­ust. Eftir að upp­hæð­irnar í skýrsl­unni hafa verið leið­réttar miðað við verð­lag í maí 2017 sést að kostn­aður vegna fram­kvæmda við afkasta­meira stofn­vega­kerfi mun kosta tæp­lega 104 millj­arða króna.

Í bland­aða kerf­inu sem sveit­ar­fé­lögin róa sam­eig­in­lega í átt að – það er sviðs­mynd B – er kostn­að­ur­inn sam­bæri­legur eða rúm­lega 100 millj­arðar króna. Þar er gert ráð fyrir að almenn­ingsam­göngu­kerfi muni kosta um það bil 70 millj­arða króna og end­ur­bætur á stofn­vega­kerf­inu til þess að anna auk­inni bíla­um­ferð muni kosta um það bil 30 millj­arða.

Kostn­að­ur­inn við sviðs­mynd C er um það bil 10 millj­örðum minni. Stofn­kostn­aður við almenn­ings­sam­göngu­kerfið er sá sami en minni fjár­fest­ingar er þörf í stofn­vega­kerf­inu innan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Bílaborgarstefna er ekki samræmi við önnur gildi

Reynslan af stefnu þar sem áhersla er ein­göngu lögð á upp­bygg­ingu inn­viða fyrir einka­bíla­sam­göngur í sam­bæri­legum borg­ar­sam­fé­lögum erlendis hefur ekki þótt nægi­lega góð, segir í skýrslu Mannvits. „[Í] flestum borg­ar­sam­fé­lögum af svip­aðri stærð og skala og höf­uð­borg­ar­svæðið hefur stefnan verið sett á efl­ingu ann­arra ferða­máta, að íbúa­fjöldi auk­ist án þess að bíla­um­ferð auk­ist“.

Í nið­ur­stöðum skýrsl­unnar er jafn­framt bent á að erfitt geti reynst að upp­fylla ferða­þarfir fólks með góðu móti ein­göngu með upp­bygg­ingu umferð­ar­mann­virkja. Ef vöxtur höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins verður að mestu út á við – ef byggðin dreif­ist enn frekar en þétt­ist ekki – mun bíla­um­ferð aukast langt umfram íbúa­fjölgun.

„Tími sem hver íbúi eyðir að með­al­tali í umferð­inni muni aukast um 25% og tafir einnig veru­lega þrátt fyrir miklar fjárfest­ingar í umferð­ar­mann­virkjum.“

Það gæti, með öðrum orðum, verið léleg fjár­fest­ing af hálfu stjórn­valda að ætla að eyða sam­eig­in­legum sjóðum í inn­viði fyrir aukna bíla­um­ferð. Vöxtur umferð­ar­innar í þeim veru­leika er ein­fald­lega of mik­ill til þess að kerfið nái utan um það.

Þá er ótalið hvaða áhrif bíla­borg­ar­stefnan hefur á stefnu sveit­ar­fé­lag­anna í öðrum mála­flokkum. Í við­auka með skýrslu Mannvits eru sviðs­mynd­irnar bornar saman við önnur stefnu­skjöl sveit­ar­fé­lag­anna. Sviðs­mynd A – bíla­borgin – hefur lítið eða ekk­ert sam­ræmi með flestum lands­á­ætl­unum og skipu­lags­á­ætl­unum sem taldar eru upp. Sviðs­myndir B og C sam­rým­ast hins vegar flestum stefnu­skjöl­unum.

Samgönguvandinn leystur í blönduðu kerfi

Mark­miðið með kort­lagn­ingu og ákvörð­unum um legu Borg­ar­lín­unnar er að und­ir­búa nauð­syn­legar breyt­ingar á aðal­skipu­lagi höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Til­gang­ur­inn er að taka frá svæði í lang­tíma­skipu­lagi borg­ar­lands­ins fyrir þessa sam­gönguæð.

Ljóst er að til langs tíma verður ekki hægt að leysa sam­göngu­mál höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins með annað hvort öfl­ugri almenn­ings­sam­göngum eða öfl­ugra gatna­kerfi. Samspil þess­ara tveggja lausna þarf að koma til svo hægt sé að skapa greið­fært kerfi.

Ástæða þess að sveit­ar­fé­lögin hafa lagt svo mikla áherslu á upp­bygg­ingu öfl­ugs og afkasta­mik­ils almenn­ings­sam­göngu­kerfis í stað þess að reyna að leysa bíla­um­ferð­ar­hnúta eru þær raunir sem borgir víða um heim hafa gengið í gegnum. Sem dæmi má nefna banda­rískar borgir sem í dag súpa seyðið af ofurá­herslu fyrri tíðar á gatna­sam­göngur á kostnað almenn­ings­sam­gatna.

Umferð­ar­hnútar í margra hæða mis­lægum gatna­mótum þar sem fjöl­margar akreinar úr báðum áttum mæt­ast eru dag­legt brauð í stóru bíla­borgum Banda­ríkj­anna. Þar þykir það sannað að fleiri akreinar leysa ekki vand­ann heldur auka flækj­una enn frekar.

Þá spila sjón­ar­mið um betri loft­gæði og umhverf­is­mál inn í aukna áherslu borga víða um heim á öfl­ugri almenn­ings­sam­göngur.

Öll sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafa við­ur­kennt að almenn­ings­sam­göngur gegna mik­il­vægu hlut­verki fyrir íbúa svæð­is­ins. Borg­ar­línan mun þess vegna teygja sig í gegnum öll sveit­ar­fé­lögin sem taka þátt í verk­efn­inu. Það eru Mos­fells­bær, Reykja­vík, Kópa­vogur, Garðabær og Hafn­ar­fjörður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarlína

ViðtalBorgarlína

Fyrst til að bjóða Betri sam­göngum í kaffi

Bergþóra Þor­kels­dóttir for­stjóri Vega­gerð­ar­innar segir það vera gamla klisju að tala um að Vega­gerðin sé gam­al­dags stofnun. Öllum lyk­il­stjórn­endum hafi verið skipt út frá árinu 2018 og mikil end­ur­nýjun hafi orðið í starfs­manna­hópnum. Hún og Bryndís Frið­riks­dóttir sam­göngu­verk­fræð­ingur sett­ust niður með blaða­manni og ræddu um verk­efni sam­göngusátt­mál­ans. Bergþóra hafnar því að yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar hafi verið ósátt með stofnun félags­ins Betri sam­gangna.

8 mín. lestur

ÚttektBorgarlína

Gam­al­dags Vegagerð sem vill vera aðal

Heim­ildin leit­aði til nokk­urra ein­stak­linga sem hafa með einum eða öðrum hætti komið að verk­efnum sem tengj­ast sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og ræddi við þau um Borg­ar­línu, vinnslu verk­efna sátt­mál­ans, fjár­mögnun þeirra og fram­hald. Í sam­töl­unum kom nokkur gagn­rýni kom fram á Vega­gerð­ina fyrir gam­al­dags stofn­anakúltúr og langar boð­leiðir, for­stjór­inn er sagður vilja hafa „putt­ana í öllu“. Yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar er sögð hafa átt erfitt með að sætta sig við að félagið Betri sam­göngur hafi verið stofnað til að halda utan um verk­efni sátt­mál­ans.

8 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár