„Trúðu öllu illu“ upp á svartan mann að skokka

Karl­arnir þrír sem drápu Ahmaud Arbery er hann var að skokka um hverfið þeirra gerðu það af því að hann var svartur, sögðu sækj­endur í nýjum rétt­ar­höldum yfir þre­menn­ing­unum. Nið­ur­staðan: Morðið var hat­urs­glæpur.

Gregory McMichael, Travis McMichael og William Bryan voru dæmdir í lífstíðarfangelsi fyrir morðið á Ahmaud Arbery.
Gregory McMichael, Travis McMichael og William Bryan voru dæmdir í lífs­tíð­ar­fang­elsi fyrir morðið á Ahmaud Arbery.

Morðið á Ahmaud Arbery var hat­urs­glæpur. Þetta er nið­ur­staða kvið­dóms sem fékk það hlut­verk að skera úr um það hvort að þrír hvítir karlar hafi elt og skotið Arbery, svartan ungan mann, til bana vegna lit­ar­háttar hans. Þeir hafa þegar verið sak­felldir fyrir að drepa hann og hlotið lífs­tíð­ar­fang­els­is­dóm fyrir. En alrík­is­yf­ir­völd í Banda­ríkj­unum vildu einnig fá morð­ingj­ana dæmda fyrir hat­urs­glæp – að þeir hafi „trúað öllu illu“ upp á unga mann­inn sem varð á vegi þeirra, út af því einu að hann var svartur á hör­und. Verj­endur mann­anna þriggja, þeirra Travis McMichael, Gregory McMichael og William Bryan sögðu þá hafa talið sig bera kennsl á Arbery af upp­töku úr örygg­is­mynda­vél og héldu hann hafa borið ábyrgð á inn­broti.

Kvið­dómur í nýjum rétt­ar­höldum yfir þre­menn­ing­unum kvað upp nið­ur­stöður sína í dag: Morðið var hat­urs­glæpur. Merrick Garland, dóms­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna, sagði á blaða­manna­fundi síð­degis að Arbery hefði verið „sigtaður út, eltur, skot­inn og drep­inn“ á meðan hann var að skokka á almanna­færi. Hann sagði „ras­isma“ verið und­ir­rót­ina. Enginn í Banda­ríkj­unum ætti að þurfa að ótt­ast um líf sitt þegar farið væri út að hlaupa, eng­inn ætti að eiga á hættu að verða „sigtaður út og drep­inn vegna húð­litar síns“.

[links]Morðið á Arbery vakti ekki mikla athygli þegar það var framið í febr­úar árið 2020. „Sjálfs­vörn,“ sögðu feðgarnir sem höfðu elt hann og skotið. „Hann var úti að skokka,“ sagði móðir hans. Skýrsla var tekin af feðg­unum og nágranna þeirra sem tók þátt í elt­ing­ar­leiknum, „veið­unum“ eins og sumir hafa kallað það sem átti sér stað. Þeir sögð­ust hafa grunað unga mann­inn um inn­brot og því elt hann. Hann hafi svo ráð­ist á anna þeirra. Sem sagt: Tveimur skotum var hleypt af í sjálfs­vörn.

Þetta var tekið gott og gilt af lög­regl­unni í smá­bænum Brunswick í Georgíu-ríki. Gregory McMichael var enda fyrr­ver­andi lög­reglu­maður.

Það var ekki fyrr en sjö­tíu dögum síðar, eftir að mynd­band af árásinni var birt opin­ber­lega, að í ljós kom að atburða­rásin var allt önnur en þre­menn­ing­arnir höfðu lýst.

[adspot]

Það var áður en George Floyd var myrtur af lög­reglu­manni í Minnesota, áður en Black Lives Matter-hreyf­ingin hóf stöðug mót­mæli. En í þeim var morðið á Arbery eitt margra sem haldið var á lofti sem dæmi um það kerf­is­bundna mis­rétti sem svartir Banda­ríkja­menn verða fyrir af hálfu yfir­valda í landi sínu.

Þre­menn­ing­arnir voru dæmdir fyrir morðið á hinum 25 ára gamla Arbery í nóv­em­ber síð­ast­liðnum. McMichaels-feðgarnir fengu lífs­tíð­ar­fang­els­is­dóm án mögu­leika á reynslu­lausn. Bryan fékk einnig lífs­tíð­ar­dóm en getur sótt um reynslus­lausn eftir þrjá ára­tugi. Hann er 52 ára gam­all.

Í loka­ræðu sinni við rétt­ar­höldin í gær, mánu­dag, sagði ákæru­valdið að ekk­ert annað hafi legið að baki morð­inu en kyn­þátta­for­dómar. „Þeir voru drifnir áfram af kyn­þátta­hatri,“ sagði einn sak­sóknar­anna, Christopher Perras. „Þeir sáu svartan mann í hverf­inu sínu og hug­uðu þegar það versta.“

Pete Theodocion, verj­andi Bryans, sagði að sann­anir fyrir ras­isma væru „aðeins óbeinar“. Hann ítrek­aði að menn­irnir hefðu talið sig þekkja Arbery af upp­töku úr örygg­is­mynda­vél og hefðu verið að verja hverfið sitt.

En ákæru­valdið lagði fram ýmis sönn­un­ar­gögn máli sínu til stuðn­ings sem sýndu kyn­þátta­for­dóma mann­anna. Meðal gagna voru færslur þeirra af sam­fé­lags­miðlum mán­uð­ina og árin áður en þeir frömdu morðið.

Árið 2018 skrif­aði Travis McMichael t.d. við mynd­band af svörtum manni: „Ég myndi drepa þennan fjand­ans negra“. Og árum saman hefur Bryan skrifað níð á degi Martins Luther King.

Í rétt­ar­höld­unum voru þre­menn­ing­arnir ásak­aðir um hat­urs­glæp og að hafa brotið á mann­rétt­indum Arbery. Þeir hafa nú verið fundnir sekir og gætu átt annan lífs­tíð­ar­dóm yfir höfði sér.

„Ég get ekki ímyndað mér þján­ingu móður hans,“ sagði Garland dóms­mála­ráð­herra. „En Ahmaud Arbery ætti að vera á lífi. Ég sam­hrygg­ist aðstand­endum hans.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kynþáttaofbeldi

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár