Æfir sig með því að passa Kasper

Indy Alda Yansane segir að hundar séu í upp­á­haldi hjá sér. Hún passar hund­inn Kasper reglu­lega og segir að hún sofi betur með hann á heim­il­inu.

Alltaf leiðinlegt að skila Kasper
Alltaf leið­in­legt að skila Kasper Indy Öldu þykir ósköp nota­legt að fá að passa hund­inn Kasper. Mynd: Heiða Helgadóttir

Kasper er hundur vinar míns sem ég passa af og til. Ég hef mjög gaman af hundum, reyndar dýrum almennt, en hundar eru í upp­á­haldi. Ég á því miður ekki hund sjálf enn þá, ég bý bara ein og er í námi, en ég hef verið að passa Kasper, meðal ann­ars til að átta mig á því hvernig það er að eiga hund. Þetta er svo­lítið eins og æfing, ég er að þjálfa mig upp. Það er nefni­lega meira en að segja það að halda hund.

Það hefur verið mjög gott að fá að passa Kasper í þessu COVID-ástandi því það gefur mér auk­inn drif­kraft að þurfa að vakna snemma og fara út með hann. Ég er eins og sagði bara ein og hef verið svo­lítið lítil í mér svo ég hef verið að passa hann meira þess vegna.

Það er afskap­lega nota­legt að hafa svona tryggan vin við hlið sér, ég sef meira að segja betur með hann inni á heim­il­inu. Mér finnst alltaf leið­in­legt að þurfa að skila honum. Ég deili vinnu­stúd­íói með eig­anda hans þannig ég hitti Kasper flesta daga. Ég er að læra tann­smíði og núna á meðan COVID stendur yfir hef ég nýtt stúd­íóið til að læra þar. Ég útskrif­að­ist í fyrra­vor úr gull­smíði svo hver veit nema ég nýti námið svo til að smíða bling upp í fólk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár