Fjögur innanlandssmit greindust í gær

Fjögur ný kór­ónu­veirusmit greindust inn­an­lands í gær en alls voru 465 sýni tekin til grein­ingar á sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­ala. Virk smit í sam­fé­lag­inu standa í stað og eru 122.

Nú þurfa allir farþegar sem koma til landsins að fara í tvöfalda skimun eða sæta tveggja vikna sóttkví.
Nú þurfa allir far­þegar sem koma til lands­ins að fara í tvö­falda skimun eða sæta tveggja vikna sótt­kví. Mynd: EPA

Fjögur ný kór­ónu­veirusmit greindust inn­an­lands í gær, öll á sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­ala sem tók 465 sýni til grein­ingar. Hlutfall jákvæðra sýna var því innan við eitt pró­sent. Þrír ein­stak­lingar af þeim fjórum sem greindust í gær voru í sótt­kví. Ekkert smit greind­ist í skimun Íslenskrar erfða­grein­ingar sem greindi 39 sýni.

Í ein­angrun eru nú 122 ein­stak­lingar, jafn margir og í gær. Virk smit standa þar af leið­andi í stað. Enn heldur áfram að fækka í sótt­kví, nú eru 472 ein­stak­lingar í sótt­kví en í gær voru þeir 494. Einn ein­stak­lingur liggur á sjúkra­húsi vegna COVID-19 líkt og í gær, þó ekki á gjör­gæslu.

14 daga nýgengi inn­an­lands­smita lækkar á milli daga og er nú komið í 17,2 á hverja 100.000 íbúa hér á landi sam­kvæmt nýj­ustu tölum á covid.is. Nýgengi inn­an­lands­smita var í gær 18,5 á hverja 100.000 íbúa.

Breyttar reglur á landamærum hafa tekið gildi

Í landamæra­skimun voru tekin 2678 sýni. Tveir ein­stak­lingar greindust með virkt smit en þrír bíða eftir mótefna­mæl­ingu. Nýgengi landamæra­smita er nú 12,3 en var í gær 11,2.

Frá og með deg­inum í dag hafa far­þegar sem koma til lands­ins val um að fara í tvær sýna­tökur vegna COVID-19 með um fimm daga sótt­kví á milli eða sleppa sýna­töku og fara í tveggja vikna sótt­kví. „Krafa um skimun og sótt­kví nær til þeirra sem hafa dvalið í meira en sól­ar­hring síð­ast­liðna 14 daga í löndum sem skil­greind eru af sótt­varna­lækni sem áhættu­svæði en sem stendur gildir það um öll lönd. Börn fædd árið 2005 eða síðar eru und­an­þegin sýna­töku og sótt­kví og sama gildir um þá sem íslensk heil­brigð­is­yf­ir­völd hafa stað­fest með PCR-prófi að hafi áður fengið COVID-19 sýk­ingu og lokið ein­angrun, eða ef COVID-19 sýk­ing hefur verið stað­fest með mótefna­mæl­ingu,“ segir um nýju regl­urnar á vef stjórn­ar­ráðs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár