Mynd: Bára Huld Beck

Skoða þurfi í hverju og einu tilviki hvort einstaklingur geti talist „sjálfstæður framleiðandi“

Í nýju mati fjöl­miðla­nefndar er bent á að skil­grein­ingin á „sjálf­stæðum fram­leið­endum“ í þjón­ustu­samn­ingnum við RÚV sé víð­tæk­ari en sú í fjöl­miðla­lög­unum. Útvarps­stjóri telur að þetta þurfi „að sjálf­sögðu að vera eins skýrt og kostur er“.

Fjöl­miðla­nefnd metur árlega hvort Rík­is­út­varpið (RÚV) hafi upp­fyllt almanna­þjón­ustu­hlut­verk sitt sam­kvæmt þeim gæða­stöðlum sem fram koma í lögum um RÚV. Matið tekur einnig mið af kröfum og við­miðum sem fram koma í samn­ingi mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra og RÚV, um fjöl­miðla­þjón­ustu í almanna­þágu, en í dag­legu tali er talað um þjón­ustu­samn­ing milli aðil­anna tveggja sem gerður er til fjög­urra ára í senn.

Út er komið mat fjöl­miðla­nefndar fyrir árið 2018 en nefndin hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Rík­is­út­varpið hafi upp­fyllt almanna­þjón­ustu­hlut­verk sitt á rekstr­ar­ár­inu 2018. Nánar til­tekið hafi RÚV upp­fyllt þá gæða­staðla sem fram koma í lögum um RÚV og haldið áfram að stuðla að lýð­ræð­is­legri umræðu, menn­ing­ar­legri fjöl­breytni og félags­legri sam­heldni í íslensku sam­fé­lagi.

RÚV skuli vera virkur þátttakandi í íslenskri kvikmyndagerð

Í lögum um Rík­is­út­varpið segir að Rík­is­út­varpið skuli vera virkur þátt­tak­andi í íslenskri kvik­mynda­gerð, meðal ann­ars með kaupum frá sjálf­stæðum fram­leið­endum. Í þjón­ustu­samn­ingi mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra við Rík­is­út­varpið er mælt fyrir um lág­marks­hlut­fall dag­skrár­efnis sem keypt er af sjálf­stæðum fram­leið­endum.

Í skýr­ingum við lög um Rík­is­út­varpið segir að sam­kvæmt þessu skuli Rík­is­út­varpið vera vett­vangur nýsköp­unar í dag­skrár­gerð og styrkja og efla sjón­varps­þátta-, kvik­mynda- og heim­ilda­mynda­gerð með því að ger­ast kaup­andi eða með­fram­leið­andi að slíku efni. Litið sé svo á að Rík­is­út­varpið sé veiga­mik­ill aðili að kvik­myndun og kvik­mynda­gerð hér á landi og af því leiði að hlut­verks þess sé getið í sam­eig­in­legri stefnu rík­is­ins og þeirra sem fáist við kvik­myndir. Einnig sé ráð­gert að Rík­is­út­varpið flytji fréttir af og sýni frá íþrótta­við­burðum bæði inn­an­lands og erlendis. Í umfjöllun sé gert ráð fyrir að fjöl­breytni sé höfð að leið­ar­ljósi og jafn­ræðis gætt milli íþrótta­greina eins og kostur sé.

Á meðal þess sem fjöl­miðla­nefnd skoðar í árlegu mati sínu er hvort til­skildum við­miðum um kaup af sjálf­stæðum fram­leið­endum, eins og þau eru skil­greind í þjón­ustu­samn­ingi, hafi verið náð.

Gera verður ríkari kröfur um sjálfstæði hinna sjálfstæðu framleiðenda

Í mati fjöl­miðla­nefndar segir að Rík­is­út­varpið hafi upp­fyllt skil­yrði um fram­leiðslu lista- og menn­ing­ar­efnis, með sér­stakri áherslu á leikið efni sem og skil­yrði um þátt­töku í íslenskri kvik­mynda­gerð, meðal ann­ars með kaupum frá sjálf­stæðum fram­leið­endum, árið 2018.

Þá er það mat fjöl­miðla­nefndar að við­mið þjón­ustu­samn­ings um að Rík­is­út­varpið verji 10 pró­sent lág­marks­hlut­falli af heild­ar­tekjum til kaupa af sjálf­stæðum fram­leið­endum árið 2018, telj­ist upp­fyllt.

Aftur á móti bendir fjöl­miðla­nefnd á mis­vísandi skil­grein­ingu á hvað „sjálf­stæður fram­leið­andi“ sé ann­ars vegar í þjón­ustu­samn­ingnum og hins vegar í lögum um fjöl­miðla. Einnig telur nefndin að gera verði rík­ari kröfur um sjálf­stæði og óhæði hinna sjálf­stæðu fram­leið­enda sem greiðslur Rík­is­út­varps­ins renna til.

Umræddir starfsmenn ekki launþegar hjá RÚV og því ekki starfsmenn RÚV

Óskaði nefndin sér­stak­lega eftir skýr­ingum á því af hverju verk­taka­greiðslur til til­tek­inna ein­stak­linga, sem þá voru skráðir starfs­menn Rík­is­út­varps­ins á vefnum RÚV.is og starfa meðal ann­ars sem mynda­töku­menn, væru taldar með í útreikn­ingum Rík­is­út­varps­ins á greiðslum til sjálf­stæðra fram­leið­enda. Í svörum skrif­stofu­stjóra RÚV kom fram að umræddir starfs­menn væru ekki laun­þegar hjá RÚV og því ekki starfs­menn RÚV. Þá var ítrekað í svörum skrif­stofu­stjór­ans að RÚV teldi mynda­töku­menn geta talist til sjálf­stæðra fram­leið­enda, þar á meðal mynda­töku­menn sem jafn­framt væru „pródúsentar“ eða fram­leið­endur dag­skrár­efnis og sem önn­uð­ust meðal ann­ars dag­skrár­gerð sem fæli í sér mynda­töku, klipp­ingu efnis, hljóð­setn­ingu og fleira.

Stefán Eiríksson útvarpsstjóri.
Stefán Eiríks­son útvarps­stjóri.

Stefán Eiríks­son útvarps­stjóri seg­ist í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans ekki gera athuga­semdir við þetta atriði og mat nefnd­ar­innar á því „enda ljóst að starfs­fólk RÚV getur ekki flokk­ast á sama tíma sem sjálf­stæður fram­leið­andi í skiln­ingi fjöl­miðla­laga, það er alveg skýrt og kemur einmitt fram í svör­unum frá skrif­stofu­stjóra RÚV“.

Skráðir starfsmenn RÚV á vef Ríkisútvarpsins geti trauðla talist óháðir fjölmiðlaveitunni

Að mati fjöl­miðla­nefndar getur skil­grein­ing laga um fjöl­miðla um að sjálf­stæðir fram­leið­endur séu lög­að­ilar óháðir við­kom­andi fjöl­miðla­veitu vart talist upp­fyllt ef um er að ræða verk­taka sem hafa að aðal­starfi að sinna íþrótta­f­réttum eða dag­skrár­gerð í sjón­varps­þáttum sem eru fram­leiddir af RÚV og eru hluti af dag­legri eða viku­legri dag­skrá RÚV. Þá geti ein­stak­lingar sem 7. júlí 2020 voru skráðir starfs­menn RÚV á vef Rík­is­út­varps­ins, með eigið net­fang á net­þjóni RÚV, trauðla talist óháðir fjöl­miðla­veit­unni Rík­is­út­varp­inu í skiln­ingi laga um fjöl­miðla, þótt við­kom­andi ein­stak­lingar séu ekki á launa­skrá Rík­is­út­varps­ins, heldur þiggi verk­taka­greiðslur.

Jafn­framt sé ljóst að sam­kvæmt lögum um fjöl­miðla telj­ist ein­stak­lingar ekki til sjálf­stæðra fram­leið­enda, ein­ungis fyr­ir­tæki sem jafn­framt séu sjálf­stæðir lög­að­ilar.

„Virðast þau sjón­ar­mið sem túlkun Rík­is­út­varps­ins byggir á í raun geta leitt til þess að unnt væri að fella allar greiðslur til ein­stak­linga sem starfa við dag­skrár­gerð hjá Rík­is­út­varp­inu undir greiðslur til sjálf­stæðra fram­leið­enda, að því til­skildu að um verk­taka­greiðslur væri að ræða,“ segir í mati nefnd­ar­innar. Að mati fjöl­miðla­nefndar verður ekki séð að lög­gjaf­inn hafi viljað fella fleiri til­vik þar undir en þau sem miða að því mark­miði að Rík­is­út­varpið skuli vera virkur þátt­tak­andi í íslenskri kvik­mynda­gerð, meðal ann­ars með kaupum frá sjálf­stæðum fram­leið­endum.

Þarf að vera eins skýrt og kostur er

Útvarps­stjóri gerir í svari sínu til Kjarnans engar sér­stakar athuga­semdir við þetta mat nefnd­ar­innar. „Ég held að það sé alveg rétt að það þarf að skoða það í hverju og einu til­viki hvort að ein­stak­lingur geti talist sjálf­stæður fram­leið­andi gagn­vart RÚV með hlið­sjón af ýmsum þáttum. Inn í það mat þarf að taka ýmis atriði. Til þess­ara atriða hefur einmitt verið horft hjá RÚV og við­eig­andi breyt­ingar gerðar á und­an­förnum árum á þessum atriðum hjá RÚV þegar þetta hefur verið skil­greint og metið í sam­ræmi við ákvæði þjón­ustu­samn­ings­ins.

Þetta þarf að sjálf­sögðu að vera eins skýrt og kostur er, en að því sögðu er líka mik­il­vægt að hafa í huga að á gild­is­tíma þjón­ustu­samn­ings­ins síð­ast­liðin fjögur ár hefur RÚV keypt efni af sjálf­stæðum fram­leið­endum langt umfram þá skyldu sem skil­greind er í samn­ingnum. Því eiga allar bolla­legg­ingar um að eitt­hvað vanti þarna upp á ekki við,“ segir Stefán í svari sínu.

884 milljónir til sjálfstæðra framleiðenda árið 2018

Samkvæmt þjón­ustu­samn­ingi Rík­is­út­varps­ins við mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið átti Rík­is­út­varpið að verja að lág­marki 10 pró­sent af heild­ar­tekjum á árinu 2018 til kaupa af sjálf­stæðum fram­leið­endum, það er til að kaupa eða vera með­fram­leið­andi að leiknu sjón­varps­efni, kvik­myndum, heim­ild­ar­myndm eða öðru dag­skrár­efni í miðlum Rík­is­út­varps­ins.

Í grein­ar­gerð Rík­is­út­varps­ins um fjöl­miðla­þjón­ustu í almanna­þágu 2018 kemur fram að allt fram­lag Rík­is­út­varps­ins til leik­ins efnis árið 2018 hafi runnið til sjálf­stæðra fram­leið­enda og fram­leiðslu­fyr­ir­tækja, eins og á fyrra ári. Í grein­ar­gerð­inni segir jafn­framt að kaup Rík­is­út­varps­ins af sjálf­stæðum fram­leið­endum árið 2018 hafi verið 884 millj­ónir króna eða 13,24 pró­sent af heild­ar­tekjum Rík­is­út­varps­ins það ár, sem er vel yfir því lág­marki sem miðað er við í þjón­ustu­samn­ingi fyrir árið 2018 sem var 10 pró­sent.

Samkvæmt list­anum sem afhentur var Frétta­blað­inu námu kaup af sjálf­stæðum fram­leið­endum hins vegar 796.306.285 krónur eða 11,93 pró­sent af heild­ar­tekjum Rík­is­út­varps­ins 2018, sem einnig er vel yfir því lág­marki sem skil­greint er í þjón­ustu­samn­ingi fyrir það ár. Samkvæmt Rík­is­út­varp­inu skýrist það af því að listi Frétta­blaðs­ins hafi tak­markast við sjón­varps­efni (þar með talið tal­setn­ingu og tækja­leigu) en talan sem birt­ist í grein­ar­gerð RÚV og árs­skýrslu hafi tekið til allra miðla. Þá hafi listi Frétta­blaðs­ins grund­vall­ast á svari ráð­herra vegna fyr­ir­spurnar til Alþingis. Fram kemur í skýr­ingum RÚV að í sam­ráði við ráðu­neytið hafi verið ákveðið að miða aðeins við sjón­varps­efni sem RÚV hafi keypt eða verið með­fram­leið­andi að í svörum við fyr­ir­spurn Alþingis. Talan í grein­ar­gerð RÚV bygg­ist á þjón­ustu­samn­ingnum.

Skilgreining á hugtakinu sjálfstæður framleiðandi ekki að finna í lögum um RÚV eða í þjónustusamningi

Fram kemur í mati fjöl­miðla­nefndar að hvorki í lögum um Rík­is­út­varpið né í samn­ingi um fjöl­miðla­þjón­ustu í almanna­þágu 2016 til 2019 sé að finna skil­grein­ingu á hug­tak­inu sjálf­stæður fram­leið­andi. Hugtakið er skil­greint svo í lögum um fjöl­miðla:

„Sjálfstæður framleiðandi hljóð- eða myndefnis er fyrirtæki sem jafnframt er sjálfstæður lögaðili, óháður viðkomandi fjölmiðlaveitu í þeim skilningi að hann er ekki undir beinum eða óbeinum yfirráðum hennar, hvorki sér né sameiginlega með öðrum, og hefur frelsi til að skilgreina sína eigin viðskiptastefnu.“

Samkvæmt skil­grein­ingu hug­taks­ins „sjálf­stæður fram­leið­andi“ í lögum um fjöl­miðla geta því ein­ungis fyr­ir­tæki sem jafn­framt eru sjálf­stæðir lög­að­ilar talist sjálf­stæðir fram­leið­endur. Þá felur hug­takið í sér að hinn sjálf­stæði fram­leið­andi þurfi að vera óháður Rík­is­út­varp­inu í þeim skiln­ingi að hann sé ekki undir beinum eða óbeinum yfir­ráðum þess.

Í mat­inu segir að svo virð­ist sem grein í þjón­ustu­samn­ingnum 2016 til 2019 sé þó ætlað að hafa víð­tæk­ari skírskotun en hug­tak­inu sjálf­stæður fram­leið­andi sam­kvæmt lögum um fjöl­miðla. Í við­auka við samn­ing­inn sé meðal ann­ars fjallað um sér­stök mark­mið á samn­ings­tím­anum vegna kaupa af sjálf­stæðum fram­leið­endum en þar segir: „Kaup af sjálf­stæðum fram­leið­endum sem hlut­fall af heild­ar­tekjum. Um er að ræða kaup á dag­skrár­efni af sjálf­stæðum fram­leið­endum, með­fram­leiðslu, aðkeypta þjón­ustu, þ. á m. vegna tal­setn­ingar, leigu á bún­aði og fleira.“

Breyta skilgreiningu í nýjum þjónustusamningi

Elfa Ýr Gylfa­dóttir, fram­kvæmda­stjóri fjöl­miðla­nefndar, segir í sam­tali við Kjarnann að nefndin sé í mat­inu að benda á það að skil­grein­ingin á „sjálf­stæðum fram­leið­endum“ í þjón­ustu­samn­ingnum við RÚV sé víð­tæk­ari en sú í fjöl­miðla­lög­unum. „Við erum að skoða þetta út frá þessum ákvæðum um það hvort RÚV hafi upp­fyllt þjón­ustu­samn­ing­inn eða ekki – og lög um RÚV. Það sem við erum að benda á er að það er ekki sam­ræmt orða­lag og ástæð­una fyrir því.“

Hún segir enn fremur að nefndin hafi fengið þær upp­lýs­ingar að breyta eigi skil­grein­ingu til sam­ræm­ingar í nýjum þjón­ustu­samn­ingi sem von er á innan tíðar. Í mati nefnd­ar­innar kemur einmitt fram að mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið hafi upp­lýst hana um að fram­an­greindu samn­ings­á­kvæði verði breytt í drögum að nýjum þjón­ustu­samn­ingi, með þeim hætti að aðeins verði gerð krafa um kaup af sjálf­stæðum fram­leið­endum. Verði lág­marks­hlut­falli og fjár­hæðum breytt til sam­ræmis við það.

Gamli samningurinn gildir áfram – önnur mál hafa fengið forgang

Kjarninn greindi frá því um miðjan des­em­ber á síð­asta ári að Lilja Alfreðs­dóttir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra hefði kynnt drög að nýjum þjón­ustu­samn­ingi við RÚV fyrir rík­is­stjórn­inni en sá samn­ingur hefur enn ekki verið und­ir­rit­aður.

Sam­kvæmt lögum ber mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra að gera þjón­ustu­samn­ing við RÚV um fjöl­miðlun í almanna­þágu til fjög­urra ára í senn, eins og áður segir. ­Þjón­ust­u­­samn­ing­ur­inn, sem skil­­greinir hlut­verk, skyldur og umfang RÚV, rann út í lok síð­asta árs. Nýr samn­ingur átti að taka gildi í byrjun þessa árs.

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra
Lilja Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra

Í svari frá mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu við fyr­ir­spurn Kjarnans segir að samn­ings­að­ilar séu sam­mála um að eldri samn­ingur gildi áfram og hafi önnur mál fengið for­gang. „Drögin sem liggja fyrir eru lík­lega end­an­leg en und­ir­ritun hefur ekki verið tíma­sett,“ segir í svar­inu.

Ekki eingöngu um greiðslur til lögaðila að ræða

Samkvæmt lista yfir kaup Rík­is­út­varps­ins af sjálf­stæðum fram­leið­endum, sem afhentur var Frétta­blað­inu sam­kvæmt úrskurði úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál vorið 2020, voru verk­taka­greiðslur til dag­skrár­gerð­ar­fólks, pródúsenta og mynda­töku­manna hjá Rík­is­út­varp­inu á meðal þess sem talið var til kaupa af sjálf­stæðum fram­leið­endum. Ekki var þar ein­göngu um greiðslur til lög­að­ila að ræða, heldur einnig verk­taka­greiðslur til ein­stak­linga sem, sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem sóttar voru 7. júlí 2020 af vefnum RÚV.is, voru starfs­menn Ríksút­varps­ins, að því er fram kemur í mati fjöl­miðla­nefndar.

Þar á meðal voru greiðslur til ein­stak­linga sem störf­uðu fyrir íþrótta­deild, við sjón­varps­þætt­ina Menn­ing­una, Landann, Gettu betur, Silfrið og Vikuna. Einnig vakti athygli nefnd­ar­innar að Við­skipta­ráð væri á lista yfir sjálf­stæða fram­leið­endur.

Fjöl­miðla­nefnd óskaði eftir skýr­ingum á þessu með tölvu­pósti til útvarps­stjóra 28. maí síð­ast­lið­inn. Í mat­inu segir að af svörum skrif­stofu­stjóra Rík­is­út­varps­ins 29. júní hafi mátt ráða að Rík­is­út­varpið teldi samn­ings­á­kvæði upp­fyllt með vísan til fram­an­greinds orða­lags í við­auka samn­ings­ins og þess að í grein­inni sé gert ráð fyrir heim­ild til kaupa á „öðru dag­skrár­efni“ í miðlum Rík­is­út­varps­ins en ekki ein­vörð­ungu leiknu sjón­varps­efni, kvik­myndum og heim­ild­ar­myndum. Jafn­framt kom fram að Rík­is­út­varpið líti ekki svo á að ein­göngu lög­að­ilar geti talist til sjálf­stæðra fram­leið­enda:

„Varðandi „hvort Rík­is­út­varpið telji ein­stak­linga, þ.m.t. verk­taka sem starfa fyrir Rík­is­út­varpið sem mynda­töku­menn eða við aðra dag­skrár­gerð, til sjálf­stæðra fram­leið­enda“, þá voru mynda­töku­menn ekki flokk­aðir sem slíkir fyrir árið 2018. Hitt er rétt að ein­stak­lingar sem koma að dag­skrár­gerð geta talist til sjálf­stæðra fram­leið­anda. Þá er um að ræða ein­stak­linga, sem eru ekki laun­þegar hjá RÚV, og sem hafa með höndum sjálf­stæðan rekstur yfir­leitt í gegnum lög­per­sónu, en stundum á eigin kenni­tölu. Þessir aðilar eru óháðir RÚV í þeim skiln­ingi að þeir eru ekki undir beinum eða óbeinum yfir­ráðum RÚV, hvorki sér né sam­eig­in­lega með öðrum, og hafa frelsi til að skil­greina sína eigin við­skipta­stefnu. Er þetta í sam­ræmi við skil­grein­ingu fjöl­miðla­laga og eðli máls og meg­in­reglur fjár­muna­réttar. Sömu sjón­ar­mið gætu átt við mynda­töku­menn ef því væri að skipta.

Það hefur þannig ekki verið skiln­ingur RÚV, frekar en ráðu­neyt­is­ins, að „ein­yrkjar“ séu und­an­skildir, enda eru þeir mik­il­vægur þáttur í flóru sjálf­stæðra aðila á mark­aði rétt eins og lög­að­ilar á borð við stór fram­leiðslu­fyr­ir­tæki,“ segir í tölvu­pósti frá skrif­stofu­stjóra Rík­is­út­varps­ins 29. júní til fjöl­miðla­nefndar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár