Mynd: 365/Anton Brink

Portrett af stjórnmálamanni sem valdböðli

Karl Th. Birgisson skrifar um Davíð Oddsson, áhrifa­mesta stjórn­málamann á Íslandi síðustu hálfa öld, og ritstjóra yfir stærstu ritstjórn landsins.

Þegar Davíð Oddsson varð fimmtugur í janúar 1998 skrifaði Stefán Jón Hafstein, ritstjóri Dags, í blað sitt:

„Hvorki heims­mannslegur né höfðinglegur – oft alþýðlegur og skemmtilegur. Hrokinn ekki jafn áberandi og oft fyrr og reiði­köstin dempaðri. Alltaf valds­mannslegur. Nákvæmlega. Hann hræðist ekki það vald sem hann hefur, hann beitir því. Valdið er aðferð Davíðs.“

Þetta er býsna glúrin greining. Valdið var aðferð Davíðs.

Án valdanna – raun­verulegra og ímyndaðra – verður myndin af Davíð Oddssyni afskaplega ógreinileg í huga okkar. Hann var þrátt fyrir allt í rúmlega aldar­fjórðung holdgervingur valdsins í ríki og borg, og hann beitti valdi sínu ótæpilega.

Og ótæpilega er reyndar úrdráttur, því að valdið komst í hendur manns sem birtist okkur reglulega sem hefni­gjarn, lang­rækinn, ósvífinn, refsiglaður og furðusmár í hugsun.

Sumir hafa kallað hann kontrólfrík. Aðrir bara valda­sjúkan. Við skulum sleppa því, en rekja bara nokkur dæmi um mann sem fékk völd og beitti þeim þannig að betur væri sleppt í lýðræðis­ríki með sæmilega siðferðis­vitund.

Og við skulum líka alveg leiða hjá okkur kaldhæðnina sem felst í því, að meintur frjáls­hyggju­maður – sem Davíð Oddsson hefur raunar aldrei verið – hafi beitt opinberu valdi af svo miklum ofstopa og óbilgirni.

Allt hitt

Svo er hér annar fyrirvari: Þessi grein er ekki um hrunið eða hlut Davíðs Oddssonar í því. Um það hafa verið skrifaðar langar rann­sóknar­skýrslur. Hannes Hólmsteinn er að skrifa aðra styttri og eflaust nákvæmari í boði Bjarna Benedikts­sonar á kostnað skatt­greiðenda.

Hún er heldur ekki nema að litlu leyti um einka­væðingu viðskipta­bankanna, átökin um mann­réttindi öryrkja eða óréttlæti kvóta­kerfisins fyrir dómstólum um aldamótin.

Þá þóttu Davíð Oddssyni niður­stöður Hæstaréttar svo augljós­lega og ævintýra­lega vitlausar að hann vildi færa vald dómstóla til að dæma út frá almennum ákvæðum stjórnar­skrár inn í sitt eigið forsætis­ráðuneyti. Þar ætti að dæma með réttu.

Annars gætum við lokað sjoppunni og flutt til Kanarí, eins og hann orðaði það.

Hann kallaði hæstaréttar­dómara í leiðinni spákellingar og félags­fræðinga, af því að þeir dæmdu ekki eins og hann vildi. Hann væri jú lögfræðingur.

Þessi grein er heldur ekki um Íraks­stríðið, þar sem Davíð ákvað upp á sitt einsdæmi – þó með þvinguðu atfylgi Halldórs Ásgríms­sonar – að veita stuðning Íslands við hernaðinn. Skömmu síðar tilkynnti hann okkur að friður væri kominn á í Írak, nema í nokkrum sýslum, eins og hann orðaði það líka í þingræðu.

Þær fréttir hafa enn ekki borizt til Íraks.

Hún er heldur ekki um skyndilegt brott­hvarf bandaríska hersins héðan, sem Davíð taldi fráleitt að gæti gerzt, af því að þeir George Bush Bandaríkja­forseti væru svo góðir vinir.

Né heldur um allt hitt, sem við munum þótt við vildum nátt­úrlega helzt gleyma því sem fyrst.

Þessi grein er um einstakling, sem þreifst og virðist í sumu enn þrífast á því að beita valdi, og njóta þess að beita refsingum, ekki í þágu hugmynda heldur til að tryggja hagsmuni og áfram­haldandi eigin völd.

Þar voru engin vettlingatök notuð.

Og sjaldnast einu sinni almennir manna­siðir.

Byrjum á fyrstu stóru einka­væðingunni.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár