Annaðhvort ertu lesandi eða ekki

Glæpa­skáldin Yrsa Sigurðar­dóttir og Ragnar Jónasson njóta bæði alþjóðlegra vinsælda. Þau hafa á sinn hátt skrifað nýjan veruleika inn í íslenskan bókmennta­heim, rétt eins og ísbrjóturinn Arnaldur Indriðason. Kannski má segja að þau séu kynslóðin sem hélt áfram að brjóta ísinn, þó að Yrsa hafi fyrir löngu hlotið nafn­bótina glæpasagna­drottning.

Raunar má líka segja að Ragnar hafi klifið fjöll sem áttu að vera ókleif, líkt og þegar hann átti þrjár bækur í einu á metsölu­lista Der Spiegel, svo eitthvað sé nefnt, en líklega er það heimsmet. Rosalegar vinsældir íslenskra glæpa­sagna, bæði hér heima og erlendis, hafa umbreytt landslagi bókmennt­anna – og að velta því fyrir sér er líklega hinn glæp­samlegi tilgangur þessa viðtals.

Mig langaði að hitta þau til að forvitnast hvort þau upplifi að hafa á einhvern hátt brotist inn í bókmenntirnar – jafnvel brotið og bramlað eitthvað með ísöxum. Eða hver eru áhrif glæpa­sögunnar?

Í síðasta blaði var Kjartan Örn Ólafsson í viðtali, en hann vann um árabil hjá Random House, auk þess að hafa árum saman starfað með föður sínum sem reyndi að búa til grundvöll fyrir glæpa­sögur á Íslandi með því að gefa út Arnald, á tíma þegar álitið var að glæpa­sögur gætu ekki …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár