Kveður við nýjan tón hjá ríkisstjórninni í kjaramálum: „Þessari vitleysu verður að ljúka“

Félags­mála­ráð­herra sagði í umræðum um stefnu­ræðu for­sæt­is­ráð­herra í gær að til­lögu um bón­us­greiðslur yrði að draga til baka. Allir þyrftu að leggja sitt að mörkum í kjara­samn­ingum, ekki bara sumir.

Félags­mála­ráð­herra gerði kjara­málin að umfjöll­un­ar­efni í ræðu sinni í umræðum um stefnu­ræðu for­sæt­is­ráð­herra í þing­inu í gær. Ásmundur Einar Daðason, félags­mála­ráð­herra sem er einnig ráð­herra vinnu­mark­að­ar­ins, tal­aði sér­stak­lega um N1 og launa­greiðslur til for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins sem sé í meiri­hluta­eigu íslensku líf­eyr­is­sjóð­anna. Sagði hann nú ber­ast fréttir af því að fyr­ir­tækið ætli að taka upp kaupauka­kerfi eða bón­us­greiðslur á nýjan leik. „Ég segi við líf­eyr­is­sjóð­ina og aðra sem eiga í þessu fyr­ir­tæki að þess­ari vit­leysu verður að ljúka. Þessa til­lögu verður að draga til baka.“

[links]Ásmundur kom inn á launa­hækk­anir á einka­mark­aði hjá stórum fyr­ir­tækjum og bar þau saman við lægstu laun. „Sem dæmi má nefna hækk­uðu laun þriggja lægst laun­uðu hópanna um 8 til 9 pró­sent milli áranna 2015 og 2016. Í krónum talið eru þetta hækk­anir að með­al­tali undir 40 þús­und krónum á mán­uði. Sú hækkun er hins vegar 25 sinnum lægri en til dæmis hækkun launa for­stjóra N1 á milli áranna 2015 og 2016, en þá hækk­aði for­stjór­inn um rúm­lega 1 milljón króna á mán­uði.“

Ásmundur sagði alla hafa takið á sig byrðar til að rífa upp efna­hags­lífið eftir fall bank­anna. Fyrir hrunið hafi toppar sam­fé­lags­ins verið komnir á him­inhá laun með risa­bón­usum, sumir á árs­launum hærri en það sem verka­maður gæti látið sig dreyma um á heilli starfsævi. „Nú hafa margir á til­finn­ing­unni að í gangi sé launa­skrið hjá efstu lögum sam­fé­lags­ins og að skilja eigi eftir bæði milli­stétt­ina og lægri tekju­hópa. Já, það er þyngra en tárum taki að til sé fólk og börn í þessu landi sem geta ekki stundað tóm­stundir, geti ekki haldið ferm­ing­ar­veislur og fleira sökum lágra tekna for­eldra sinna. Þegar slíkar sviðs­myndir finn­ast enn er verk að vinna.“

Ráð­herr­ann sagði stjórn­völd hafa komið að kjara­samn­ingum með ein­hverjum aðgerðum til að liða fyrir að samn­ingar náist. Rík­is­stjórnin hafi lagt ríka áherslu á gott sam­starf við aðila vinnu­mark­að­ar­ins. „Stöð­ug­leiki efna­hags­lífs­ins og auk­inn jöfn­uður í sam­fé­lag­inu getur farið saman í kom­andi kjara­samn­ingum en til þess að svo geti orðið verða allir að leggja eitt­hvað af mörkum, ekki bara sumir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár