Starmer biðst afsökunar vegna nauðungarættleiðinga: „Skömmin er okkar“

Talið er að um 185 þús­und börn hafi verið tekin frá mæðrum sínum á fimmta, sjötta og sjö­unda ára­tug síð­ustu aldar.

For­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, Keir Starmer, hefur beðist form­legrar afsök­unar fyrir hönd breska rík­is­ins vegna hlut­verks stjórn­valda í svoköll­uðum nauð­unga­rætt­leið­ingum á Englandi og í Wales á árunum eftir síð­ari heims­styrj­öld.

Í umfjöllun BBC um málið kemur fram að um 185 þús­und börn hafi verið tekin frá mæðrum sínum á fimmta, sjötta og sjö­unda ára­tug síð­ustu aldar. Þúsundir kvenna voru þá beittar þrýst­ingi til að láta börn sín af hendi til ætt­leið­ingar vegna þess að þær voru ógiftar og urðu fyrir miklum félags­legum for­dómum.

Í yfir­lýs­ingu á breska þing­inu sagði Starmer að það sem hefði komið fyrir „tugi þús­unda mæðra, barna og fjöl­skyldna“ væri „blettur á sögu okkar“.

„Skömmin er ekki ykkar. Hún var aldrei ykkar. Skömmin er okkar,“ sagði for­sæt­is­ráð­herr­ann.

Áralöng barátta að baki afsökunarbeiðninni

Afsök­un­ar­beiðnin kemur í kjöl­far margra ára bar­áttu mæðra, ætt­leiddra barna og fjöl­skyldna þeirra fyrir opin­berri við­ur­kenn­ingu á því sem átti sér …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár