Um fimmtungur þingmanna staddur erlendis

Þrettán þing­menn taka nú þátt í alþjóð­legum við­burðum á vegum þings­ins.

Þrettán þing­menn úr öllum flokkum eru nú erlendis á vegum Alþingis. Þing­menn­irnir sitja ýmsa fundi alþjóð­legra og evr­ópskra sam­taka sem Alþingi á aðild að. Meðal þeirra sem eru fjar­ver­andi á þingi eru Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins.

Þor­steinn Sæmunds­son gagn­rýndi það á Alþingi í gær að umræður um þriðja orku­pakk­ann svo­kall­aða, ættu sér stað á sama tíma og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins væri staddur erlendis vegna alþjóða­sam­starfs Alþingis. Mið­flokk­ur­inn hefur farið fremstur í flokki and­stæð­inga orku­pakk­ans á þingi.

Þor­steinn ýjaði að því að tíma­setn­ing umræðn­anna hefði verið valin með það að mark­miði að Sig­mundur Davíð væri fjar­ver­andi. Því neit­aði Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, utan­rík­is­ráð­herra, sem sagði að tíma­setn­ingin hefði verið ákveðin í sam­ráði við Mið­flokk­inn.

Sig­mundur Davíð situr nú á Vorþingi Alþjóða­þing­manna­sam­bands­ins, sem haldið er í Doha í Katar og stendur til mið­viku­dags­ins 10. apríl. Með Sigmundi í för eru Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir og Helga Vala Helga­dóttir.

Steingrímur J. í Vín

Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, er staddur í Vín á Ráð­stefnu evr­ópskra þing­for­seta. Meðal þess sem þar er rætt er hvað Evr­ópu­sam­bandið getur gert til að tryggja stöð­ug­leika og lýð­ræði í löndum Balkanskaga.

Sex þing­menn úr fimm flokkum sitja nú vor­þing Norð­ur­landa­ráðs í Kaup­manna­höfn sem lýkur í dag. Þá er Bergþór Ólason, þing­maður Mið­flokks­ins, staddur í Strass­borg ásamt Rósu Björk Brynj­ólfs­dóttur, þing­manni Vinstri grænna, og Þórhildi Sunnu Ævars­dóttur, þing­konu Pírata, þar sem þau sitja þing­fund Evr­ópu­ráðs­þings­ins sem stendur yfir frá 8 til 12. apríl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár