Kostir og gallar þess að selja Malbikunarstöðina Höfða verða kannaðir

Mal­bik­un­ar­stöð í eigu Reykja­vík­ur­borgar, sem mun brátt flytja til Hafn­ar­fjarðar, var með 91 pró­sent hlut­deild í mal­bik­un­ar­verk­efnum borg­ar­innar á árunum 2017 til 2020. Borg­ar­stjóri segir í inn­gangi nýrrar grein­ar­gerðar að skoðað verði að selja stöð­ina.

Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti.
Myndin teng­ist frétt­inni ekki með beinum hætti. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Mal­bik­un­ar­stöðin Höfði, sem er að fullu í eigu Reykja­vík­ur­borgar og er með póli­tískt skip­aða stjórn, hefur keypt lóð við Álfhellu í Hafn­ar­firði, en í meiri­hluta­sátt­mála núver­andi vald­hafa í borg­inni var til­tekið að Reykja­vík ætl­aði að leggja stöð­inni til lóð á kjör­tíma­bil­inu. Ástæða þess að Höfði þurfti að flytja sig er að núver­andi lóð fyr­ir­tæk­is­ins á Ártúns­höfða verður lögð undir íbúða­byggð og mal­bik­un­ar­stöðin þarf að víkja af henni fyrir árs­lok 2022.

Í inn­gangi Dags B. Egg­erts­sonar, borg­ar­stjóra Reykja­víkur, í grein­ar­gerð sem fylgdi með frum­varpi um fjár­hags­á­ætlun borg­ar­innar fyrir næsta ár og fimm ára áætlun hennar sem á að gilda til árs­ins 2026, er fjallað um mál­efni Mal­bik­un­ar­stöðv­ar­innar Höfða og greint frá lóða­út­hlut­un­inni í Hafn­ar­firði. Auk þess segir þar að kostir og gallar þess að selja fyr­ir­tækið verði skoð­aðir í kjöl­farið í sam­ræmi við sam­starfs­sátt­mála meiri­hlut­ans.

Reykja­vík­ur­borg hefur átt mal­bik­un­ar­stöð­ina í meira en 80 ár.

Með 91 prósent hlutdeild

Borg­ar­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks hafa lengi verið mjög áfram um að mal­bik­un­ar­stöðin verði seld. Snemma árs 2017 lögðu full­trúar flokks­ins í umhverf­is- og skipu­lags­ráði Reykja­víkur til að ráðið sam­þykki áskorun til borg­ar­ráðs um að selja hana.

[adspot]Í til­lög­unni sagði að ástæður þessa væru tvær, ann­ars vegar væri eign­ar­hald borg­ar­innar á Höfða ósam­rým­an­legt sjón­ar­miðum um heil­brigða sam­keppni og hag­kvæma opin­bera þjón­ustu og hins vegar mætti færa lagarök fyrir því að eign­ar­hald borg­ar­innar á mal­bik­un­ar­stöð­inni væri ólög­mætt. Meg­in­regla sam­kvæmt íslenskum sveit­ar­stjórn­ar­lögum væri að atvinnu­rekstur sveit­ar­fé­laga á frjálsum mark­aði væri óheim­ill nema sér­stök laga­heim­ild kæmi til. Höfði var á þeim tíma með 73 pró­sent mark­aðs­hlut­deild í mal­bik­un­ar­verk­efnum á vegum borg­ar­innar.

Athugun Við­skipta­ráðs Íslands á útboðum áranna 2017 til 2020, sem gerð var opin­ber fyrr á þessu ári, sýndi svo að hlut­deild Höfða í mal­bik­unar­út­boðum innan Reykja­víkur hafði auk­ist í 91 pró­sent. Aðeins einu sinni af ell­efu vann annað fyr­ir­tækið þess háttar útboð á vegum borg­ar­innar.

Á meðal raka sem sett hafa verið fram fyrir eign­ar­haldi Reykja­vík­ur­borgar á Höfða eru þau að það tryggi sam­keppni, en lengi vel var aðeins eitt annað fyr­ir­tæki fram­leiddi mal­bik á suð­vest­ur­horni lands­ins. Fyr­ir­tækin eru nú orðin þrjú, fyrir utan Mal­bik­un­ar­stöð­ina Höfða.

Í til­kynn­ingu sem odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, Eyþór Arnalds, sendi út í lið­inni viku var sú afstaða flokks­ins að hann vildi selja Höfða ítrekuð.

Ýmsir hag­að­ilar hafa líka skorað á borg­ina að selja fyr­ir­tækið í gegnum tíð­ina. Í lok apríl síð­ast­lið­inn skrif­uðu til að mynda fram­kvæmda­stjórar Samtaka iðn­að­ar­ins og Við­skipta­ráðs Íslands saman grein í Morg­un­blaðið þar sem þeir hvöttu til þess.

Gera ráð fyrir arðgreiðslum 2025 og 2026

Mal­bik­un­ar­stöðin Höfði velti 1.429 millj­ónum króna í fyrra sem er 450 millj­ónum krónum minna en fyr­ir­tækið velti á árinu 2019. Í árs­reikn­ingi fyr­ir­tæk­is­ins er til­tekið að áhrif af COVID-19 hafi þó ekki verið veru­lega mikil. [links]

Alls tap­aði Höfði 16,7 millj­ónum króna í fyrra en hafði hagn­ast um 115,7 millj­ónir króna á árinu 2019. Inni í fyr­ir­tæk­inu var umtals­vert óráð­stafað eigið fé um síð­ustu ára­mót, eða alls 1.247 millj­ónir króna. Heildar eigið fé í lok árs 2020 bar 1.490 millj­ónir króna en ljóst er að það mun ganga eitt­hvað á það í ár og á næsta ári. Samkvæmt fjár­hags­á­ætlun Reykja­vík­ur­borgar vegna árs­ins 2022 mun eigin fé Höfða verða 1.079 millj­ónir króna í lok næsta árs.

Þrátt fyrir að borg­ar­stjóri hafi sagt í inn­gangi sínum að grein­ar­gerð um fjár­hagsætlun næstu fimm ára að kostir og gallar þess að selja Mal­bik­un­ar­stöð­ina Höfða yrði skoð­aðir er gert ráð fyrir því í áætl­un­inni að fyr­ir­tæki greiði borg­inni arð árin 2025 og 2026, sam­tals 70 millj­ónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár