Klaustursmálið: „Óþekkta konan“ stígur fram og sýnir grunsamlega smáhlutinn

Þingmenn Mið­flokks­ins og lög­maður þeirra hafa klórað sér í koll­inum yfir því að „óþekkt kona“ skyldi ganga fram hjá Klaustri, líta inn og eiga orða­skipti við Báru Hall­dórs­dóttur þann 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Stundin ræddi við kon­una.

Þingmenn Mið­flokks­ins og lög­maður þeirra hafa klórað sér í koll­inum yfir því að „óþekkt kona“ skyldi ganga fram hjá Klaustri, líta inn og eiga orða­skipti við Báru Hall­dórs­dóttur þann 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. 

Í nýlegri ákvörðun Per­sónu­verndar, þar sem kröfu Mið­flokks­manna um frek­ari gagna­öflun vegna Klaust­urs­máls­ins var hafnað, er atburðum sem sjást í myndefni úr örygg­is­mynda­vélum lýst með ítar­legum hætti:

Hver er þessi óþekkta kona og hvað var hún með?

„Þetta var ég, það passar,“ segir Ragn­heiður Erla Björns­dóttir, tón­list­ar­kona og vin­kona Báru sem var stödd á æfingu Rauða skálda­húss­ins þetta kvöld – æfing­unni sem Bára ákvað að skrópa á þegar hún varð vitni að frægum orða­skiptum þing­mann­anna og ílengd­ist á Klaustri.

Ragn­heiður Erla Björns­dóttirTón­list­ar­kona og vin­kona Báru.

Stundin hafði sam­band við Ragn­heiði sem er stödd á Sri Lanka þar sem hún vinnur sem sjálf­boða­liði með börnum.

Ragn­heiður seg­ist hafa gengið fram hjá Klaustri snemma kvölds þann 20. nóv­em­ber, séð Sigmund Davíð og hans fólk inn um glugg­ann og Báru sitj­andi skammt frá. „Mér fannst þetta dálítið fyndið og þegar ég kom í Iðnó sagði ég vinum mínum að ég hefði séð Báru og Sigmund Davíð í sama her­bergi.“

Eftir æfing­una gekk hún aftur fram hjá Klaustri og sá að þar sat Bára enn á fleti fyrir. „Þing­menn­irnir voru þarna líka ennþá og það var aug­ljóst af lík­ams­tján­ingu þeirra að þau höfðu fengið sér tals­vert að drekka. Ég leit aðeins inn, heils­aði upp á Báru og knús­aði hana. Hún sagð­ist vera upp­tekin svo ég fór út.“

Aðspurð hvernig stemn­ingin hafi verið inni á barnum segir Ragn­heiður að þing­menn­irnir hafi látið mikið fyrir sér fara. „Þeir hlógu hátt og það voru mikil læti í þeim og fyll­er­ís­hljóð.“

„Þeir hlógu hátt og það
voru mikil læti í þeim“

En hver er þessi grun­sam­legi smá­hlutur sem þing­menn­irnir og lög­maður þeirra minn­ast á í bréfi sínu til Per­sónu­verndar?

Smá­hlut­ur­inn

„Ég var með lít­inn hlut með­ferðis, litla skopp­ara­kringlu,“ segir Ragn­heiður. „Ég er oft með hana og ég man að ég var með hana þarna. Þetta er sem sagt hlutur sem ég fékk í gjöf frá fólk­inu mínu úti í Aust­ur­ríki. Ég er mikið í Aust­ur­ríki og vinn þar. Þau gáfu mér þetta og sögðu að lífið snérist hring eftir hring en ég ætti alltaf sama­stað hjá þeim.“

Þing­menn­irnir standa í þeirri trú að „óþekkta konan“ hafi einnig verið með „ljósan mun“ með­ferðis, „mögu­lega möppu, tölvu eða spjald­tölvu“.

Ragn­heiður á ekki spjald­tölvu og seg­ist ekki muna eftir því að hafa verið með tölv­una sína með­ferðis. „Hinn hlut­ur­inn gæti hins vegar verið ljóða­bókin mín, það er lík­leg­ast,“ segir hún. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár