Helstu mengarar heims sameinast um Parísarsamninginn

Full­gild­ing Banda­ríkj­anna og Kína á Par­ís­ar­samn­ingnum er risa­skref í bar­átt­unni gegn hlýnun jarðar. Enn vantar þó nokkur lönd svo samn­ing­ur­inn öðlist form­legt gildi.

Barack Obama og Xi Jinping stilla sér upp fyrir ljósmyndara við komu Obama til Hangzhou í Kína. Um helgina fór þar fram leiðtogafundur 20 stærstu iðnríkja heims.
Barack Obama og Xi Jinping stilla sér upp fyrir ljós­mynd­ara við komu Obama til Hangzhou í Kína. Um helg­ina fór þar fram leið­toga­fundur 20 stærstu iðn­ríkja heims. Mynd: EPA

Þeir Xi Jinping og Barack Obama, for­setar Kína og Banda­ríkj­anna, til­kynntu um helg­ina á fundi 20 stærstu iðn­ríkja heims að ríki þeirra muni inn­leiða Par­ís­ar­samn­ing­inn um lofts­lags­breyt­ingar í lög. Þátttaka þess­ara landa vegur lang­þyngst í bar­átt­unni gegn hlýnun lofts­lags og lofts­lags­breyt­ingum enda bera þau saman ábyrgð á 37,98 pró­sent af öllum útblæstri heims­ins.

Þátttaka Kína og Banda­ríkj­anna er ekki síður mik­il­væg vegna þeirra ákvæða sem sett voru í samn­ing­inn um það hvenær hann tekur gildi. Par­ís­ar­samn­ing­ur­inn mun ekki taka gildi fyrr en 55 ríki, sem sam­an­lagt bera ábyrgð á 55 pró­sent af allri losun heims­ins inn­leiða samn­ing­inn í lög.

179 lönd hafa und­ir­ritað samn­ing­inn. Með und­ir­ritun samn­ings­ins er ekki þar með sagt að hann sé inn­leiddur í lög í heima­rík­inu. Þannig var það ekki þegar Sigrún Magn­ús­dóttir umhverf­is­ráð­herra und­ir­rit­aði samn­ing­inn í höf­uð­stöðvum Sam­ein­uðu þjóð­anna í New York í apríl. Utan­rík­is­ráð­herra þarf að mæla fyrir þings­á­lykt­un­ar­til­lögu á Alþingi og þing­menn verða að greiða atkvæði um til­lög­una. Suma alþjóða­samn­inga þarf að inn­leiða með laga­breyt­ingum á jafn­vel mörgum lögum. Par­ís­ar­samn­ing­ur­inn er hins vegar þess eðlis að það þarf ekki.

Þings­á­lykt­un­ar­til­lagan um inn­leið­ingu Par­ís­ar­samn­ings­ins var lögð fyrir Alþingi á föstu­dag. Í henni felst við­ur­kenn­ing á því að lofts­lags­breyt­ingar ógni mönnum, sam­fé­lögum og jörð­inni allri. Einnig er lögð áhersla á að „[l]ofts­lags­breyt­ingar séu sam­eig­in­legt við­fangs­efni alls mann­kyns og af þeim sökum er mik­il­vægt að ríki heims sam­ein­ist og vinni saman að lausn vand­ans“.

Sögulegt samstarf Bandaríkjanna og Kína

Ísland mengar alls ekki mikið á heims­vísu, þe. ef útblástur okkar er bor­inn saman við stærri iðn­ríki. Hlut­deild okkar er 0,01 pró­sent af öllum útblæstri heims­ins. Það er raunar þannig að ein­ungis 20 ríki í heim­inum bera ábyrgð á meira en einu pró­senti af allri losun heims­ins. 179 ríki hafa aðild að lofts­lags­samn­ingi Sam­ein­uðu þjóð­anna. Það er þess vegna aug­ljóst að heim­ur­inn er upp á stóru iðn­ríkin komin og þar er Ísland á meðal.

Þátttaka Íslands og inn­leið­ing samn­ings­ins í lög hér á landi skiptir hins vegar máli fyrir Par­ís­ar­samn­ing­inn. Í fyrsta lagi þurfa að minnsta kosti 55 ríki að inn­leiða samn­ing­inn. Eins og stendur eru þau aðeins 26. Með inn­leið­ingu samn­ings­ins sendir Ísland einnig skýr skila­boð til ann­arra ríkja, ekki síst Evr­ópu­ríkja, um að hér sé þetta mál­efni tekið alvar­lega. Í Evrópu eru að sex ríki sem bera hvert um sig ábyrgð á meira en einu pró­senti af öllum útblæstri á jörð­inni. Þýska­land ber ábyrgð á 2,56 pró­sent meng­un­ar­innar, Bretland á 1,55 pró­sent og Frakkar 1,34 pró­sent.

Fyrir alla hlut­hafa í lofts­lags­samn­ingnum þá skiptir virk þátt­taka Kínverja og Banda­ríkja­manna lang mestu. Eins og áður segir bera þessi lönd sam­an­lagt ábyrgð á 37,98 pró­sent alls útblást­urs í heim­inum. Síðast þegar unnið var laga­lega bind­andi sam­komu­lag um lofts­lags­mál í Kyoto í Japan árið 1997 ákváðu þessi ríki að taka ekki þátt. Þá þótti þeim kvað­irnar vera of miklar og of íþyngj­andi.

Það að þessi tvö lönd ákveði að til­kynna um inn­leið­ingu samn­ings­ins í sam­ein­ingu er til marks um hversu sam­tvinnuð þátt­taka þess­ara landa er. Samstarf þeirra er lyk­il­at­riði til þess að löndin geti tekið þátt. Er það ekki síst vegna efna­hags­legra ástæðna. Áætlað er að það muni kosta ríki heims gríð­ar­lega fjár­muni að stuðla að orku­skiptum og laga hag­kerfi sín þannig að þau reiði sig minna á ódýrt jarð­efna­elds­neyti.

Undir for­ystu Barack Obama og Xi Jinping hafa Kína og Banda­ríkin verið sam­stíga í lofts­lags­mál­unum. Veiga­miklar ákvarð­anir hafa verið teknar sam­tímis og með sam­ráði milli þess­ara landa. Fyrir lofts­lags­ráð­stefn­una í París und­ir­rit­uðu þeir til dæmis sam­komu­lag um að minnka útblástur gróð­ur­húsa­loft­teg­unda út í and­rúms­loftið. Obama hefur sagt að þetta sé sú leið sem best er fyrir heim­inn. „Að setja þeim [Kín­verjum] mark­mið sendir kröftug skila­boð til heims­ins um að öll ríki, þróuð eða van­þróuð, verða að kom­ast yfir gamlan ágrein­ing, horfa blákalt á vís­indin og kom­ast að góðu sam­komu­lagi um lofts­lags­mál,“ sagði Obama í ræðu í fyrra.

Áætlað er að nú muni fleiri ríki inn­leiða samn­ing­inn í lög. Rússland, Indland og Japan, auk Þýska­lands, þurfa nú að ganga frá sínum málum til þess að mark­mið­inu um 55 pró­sentin náist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár