Trump sigri hrósandi þrátt fyrir mótsögn

Banda­ríkja­for­seti sagð­iNATO-ríki hafa sam­þykkt skil­yrði hans um hrað­ari útgjalda­hækkun aðild­ar­ríkja, þrátt fyrir að hafa skrifað undir yfir­lýs­ingu um hið gagn­stæða.

Trump hefur löngum gagnrýnt útgjöld NATO-ríkja til varnarmála.
Trump hefur löngum gagn­rýnt útgjöld NATO-ríkja til varn­ar­mála. Mynd: EPA

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti sagði fyrr í dag að með­limir Atl­ants­hafs­banda­lags­ins höfðu fall­ist á kröfu hans um að auka fjár­fram­lög ríkj­anna til hern­að­ar­mála, þrátt fyrir að hafa skrifað undir sam­þykkt á óbreyttu ástandi. Þetta gerði for­set­inn fyrr í dag á leið­toga­fundi Atl­ants­hafs­banda­lags­ins, en New York Times og Guardian greina frá mál­inu.

[links]Kjarninn fjall­aði í gær um yfir­stand­andi leið­toga­fund aðild­ar­ríkja Atl­ants­hafs­banda­lags­ins, en hann fór fram í dag og í gær í Brussel. Trump hóf fund­inn í gær með harðri gagn­rýni á við­skiptum Þýska­lands við Rússland ann­ars vegar og lít­illa útgjalda ann­arra aðild­ar­þjóða til varn­ar­mála hins vegar.

Fyrr í morgun hélt Trump svo áfram gagn­rýni sinni á varn­ar­mála­út­gjöld, en með því setti morg­un­fund vegna vænt­an­legrar inn­limunar Georgíu og Úkraínu í sam­bandið úr skorðum.

Í kjöl­farið var svo boðið til neyð­ar­fundar vegna fjár­mála banda­lags­ins, en sam­kvæmt Banda­ríkja­for­seta bar hann mik­inn árangur. Á blaða­manna­fundi í höf­uð­stöðvum NATO fyrr í dag sagði Trump fund­inn hafa verið „frá­bæran“ og að aðild­ar­ríki hafi sam­þykkt að auka útgjöld sín með hrað­ari hætti en áður var ákveðið. Fyrri sam­þykktir banda­lags­ins mið­uðu að útgjalda­aukn­ingu þeirra með­lima NATO sem enn höfðu ekki lagt fram 2% af lands­fram­leiðslu til varn­ar­mála, en þjóð­irnar sam­þykktu að stefna að því marki árið 2024.

Trump hefur gagn­rýnt stefnu banda­lags­ins og kraf­ist þess að 2% mark­inu yrði strax mætt, en for­set­inn lét einnig í veðri vaka að með­limir Nato ættu að ná fjög­urra pró­senta mark­inu í fram­tíð­inni.

Þrátt fyrir yfir­lýs­ingar sínar á blaða­manna­fund­inum um hrað­ari útgjalda­aukn­ingu skrif­aði Trump hins vegar undir sam­eig­in­lega yfir­lýs­ingu allra 29 aðild­ar­þjóða NATO sem ítrek­aði fyrri áætl­anir um 2% útgjalda­mark fyrir árið 2024.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sótti leið­toga­fund­inn sem stóð yfir í gær og í dag, en sam­kvæmt frétt Stjórn­ar­ráðs­ins ræddi hún sér­stak­lega um nauð­syn þess að efla þró­un­ar­að­stoð, mann­úð­ar­að­stoð og stuðn­ing við flótta­fólk innan sam­bands­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Trump

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár