Eftirspurnin enn mikil þó umsvifin á fasteignamarkaði hafi dregist saman

Fjöldi kaup­samn­inga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur ekki verið lægri í einum mán­uði síðan 2014 og nú koma fleiri íbúðir inn á mark­að­inn en selj­ast. Met yfir stuttan sölu­tíma íbúða og fjölda íbúða sem selst yfir ásettu verði halda þó áfram að vera slegin.

Fjöldi kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki verið lægri í einum mánuði síðan sumarið 2014.
Fjöldi kaup­samn­inga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur ekki verið lægri í einum mán­uði síðan sum­arið 2014. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Fjöldi útgef­inna kaup­samn­inga um íbúð­ar­hús­næði í apríl nam 699 tals­ins, sem gera 752 þegar leið­rétt er fyrir reglu­bundnum árs­tíða­sveiflum, og hefur fjöldi kaup­samn­inga ekki verið lægri síðan í maí 2020 en þá hafði tíma­bundið dregið úr umsvifum á íbúða­mark­aði í upp­hafi sam­komu­tak­mark­ana. Þetta kemur fram í nýrri mán­að­ar­skýrslu hag­deildar Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unnar (HMS).

Það virð­ist því vera tekið að róast á fast­eigna­mark­að­inum. Mesti sam­dráttur í fjölda kaup­samn­inga er á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þar voru kaup­samn­ingar um íbúð­ar­hús­næði alls 461 tals­ins miðað við árs­tíð­ar­leið­réttar tölur í apríl. Fjöldi kaup­samn­inga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur ekki verið lægri í einum mán­uði síðan sum­arið 2014. Umsvifin hafa ekki dreg­ist jafn mikið saman í sveit­ar­fé­lög­unum í nágrenni höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, kaup­samn­ingum fækk­aði engu að síður um 16,7 pró­sent á milli mán­aða í þeim sveit­ar­fé­lögum.

Mörg met engu að síður slegin í apríl

Þrátt fyrir að umsvifin hafi dreg­ist lít­il­lega saman í apríl hefur fjöldi íbúða sem selst yfir ásettu verði aldrei verið jafn mik­ill hlut­falls­lega. Í mán­uð­inum seld­ust 54 pró­sent íbúða á land­inu yfir ásettu verði, sem er met. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu nam hlut­fall íbúða í fjöl­býli sem seld­ust yfir ásettu verði 65 pró­sentum. 53 pró­sent sér­býla á höf­uð­borg­ar­svæð­inu seld­ist yfir ásettu verði. Hlut­fallið er lægra á lands­byggð­inni. Þar seld­ust 48 pró­sent íbúða í fjöl­býli yfir ásettu verði og 32 pró­sent sér­býla.

„Í öllum til­fellum er um met að ræða,“ segir í skýrslu HMS.

Annað met var slegið í apríl en með­al­sölu­tími íbúða hefur aldrei verið jafn stuttur. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu var með­al­sölu­tími 34,7 dagar. „Þar af tók aðeins 30,7 daga að selja íbúðir í fjöl­býli en 49 daga að selja sér­býli. Stystan tíma tók að selja íbúðir á 30-40 m.kr. Eða að jafn­aði 23 daga en það tók að jafn­aði 26 daga að selja 40-50 m.kr. íbúðir og 43 daga að selja íbúðir sem seld­ust á yfir 80 m.kr,“ segir í skýrsl­unni.

Einnig var um met­sölu­tíma að ræða á lands­byggð­inni í mán­uð­inum. Í nágranna­sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins var með­al­sölu­tím­inn 38,8 dagar en ann­ars staðar á lands­byggð­inni var með­al­sölu­tím­inn 53,6 dagar.

Árshækkun á og í kringum höfuðborgarsvæðið 22 prósent

Í skýrslu HMS segir að íbúða­verð sé enn á hraðri upp­leið. Íbúða­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækk­aði um 1,9 pró­sent á milli mars og apríl en verðið hefur hækkað um 6,7 á und­an­förnum þremur mán­uðum. Verðið hefur hækkað um 22 pró­sent á einu ári miðað við vísi­tölu sölu­verðs.

Í nágranna­sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins hækk­aði íbúða­verð um 0,3 pró­sent milli mán­aða. Árs­hækk­unin er sú sama og á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, 22 pró­sent. Annars staðar á lands­byggð­inni hækk­aði íbúða­verð um 2,3 pró­sent á milli mán­aða en þar mælist árs hækkun 20,2 pró­sent.

Framboð íbúða farið að aukast

Um þessar mundir koma koma fleiri íbúðir inn á mark­að­inn heldur en selj­ast, að því er fram kemur í skýrsl­unni. Framboð íbúða hefur farið ört vax­andi frá því í febr­úar þegar fram­boðið var sem lægst. Í jún­í­byrjun voru 595 íbúðir til sölu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sam­an­borið við 503 íbúðir mán­uði áður. Fleiri sér­býli hafa komið inn á mark­að­inn að und­an­förnu en íbúðir í fjöl­býli. Framboð á nýjum íbúðum helst nokkuð stöðugt en aukn­ing hefur orðið á fram­boði eldri íbúða.

Svipaða sögu er að segja af fram­boð­inu í nágranna­sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Í byrjun júní voru 243 íbúðir til sölu í nágranna­sveit­ar­fé­lög­unum, sam­an­borið við 212 í byrjun maí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár