Framsókn vill að alþjóðlegur banki verði fenginn til Íslands

Einn stjórn­ar­flokk­anna vill að ríkið komi fram sem virkur hlut­hafi í þeim bönkum sem það á hlut í. Hann vill líka að stór alþjóð­legur banki verði feng­inn inn á íslenskan banka­markað til að auka sam­keppni.

Sigurður Ingi Jóhannsson er formaður Framsóknarflokksins.
Sigurður Ingi Jóhanns­son er for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn vill að stór alþjóð­legur við­skipta­banki verði feng­inn inn á íslenskan banka­markað til að auka sam­keppni. Þá vill flokk­ur­inn að ríkið eigi ráð­andi hlut í einum banka til fram­búðar og að slíkur banki skuli rek­inn með lág­marks­til­kostn­aði og á for­sendum lág­marks­á­hættu. Þetta er meðal þess sem fram kemur í drögum að stjórn­mála­á­lyktun flokks­ins fyrir kom­andi flokks­þings hans, sem hefst næst­kom­andi föstu­dag.

[links]Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn situr í rík­is­stjórn og vara­for­maður hans, Lilja Dögg Alfreðs­dóttir, situr í ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál og end­ur­skipu­lagn­ingu fjár­mála­kerf­is­ins á samt Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra og Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra. Nú stendur yfir vinna starfs­hóps á vegum stjórn­valda um gerð hvít­bókar um fram­tíð­ar­sýn fyrir fjár­mála­kerfið á Íslandi. Sá hópur á að skila af sér um miðjan maí.

Vilja að ríkið sé virkur eigandi

Í drög­unum að stjórn­mála­á­lyktun Fram­sókn­ar­flokks­ins segir enn fremur að nýleg reynsla af öðrum mik­il­vægum neyt­enda­mörk­uðum sýni að „aðkoma við­ur­kenndra alþjóð­legra aðila getur skapað umtals­verðan þrýst­ing á inn­lenda sam­keppni neyt­endum til hags­bóta.“ Þess vegna sé eft­ir­sókn­ar­vert að fá alþjóð­legan við­skipta­banka til lands­ins. Þar er að öllum lík­indum vísað í komu fyr­ir­tækja á borð við Costco og H&M til Íslands og áhrif þeirra á sam­keppni í smá­sölu, elds­neyt­is­sölu og sölu fatn­aðar.

[adspot]Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn vill líka að ríkið komi fram sem virkur hlut­hafi í þeim fjár­mála­fyr­ir­tækjum sem það á hlut í, en á und­an­förnum árum hafa verið í gildi ákveðin arms­lengd­ar­sjón­ar­mið til að draga skýra línu milli stjórn­valda og fjár­mála­fyr­ir­tækja í þeirra eigu. Sú afstaða birt­ist meðal ann­ars í því að ríkið hefur ekki skipt sér að því með beinum hætti þegar laun stjórn­enda banka í þess eigu hafa hækkað umtals­vert.

Í drög­unum segir að í því að vera virkur hlut­hafi felist að sett verði „eig­enda­stefna fyrir hvern eign­ar­hlut um sig og þeirri stefnu fram­fylgt af stjórn­ar­fólki sem beri ábyrgð gagn­vart Banka­sýslu rík­is­ins. Eig­enda­stefnan fyrir hvern eign­ar­hlut geti verið mis­mun­andi eftir því hvert kerf­is­legt hlut­verk hver fjár­mála­stofnun skuli hafa að mati rík­is­ins. Með eig­enda­stefn­unni skuli stuðla að sam­keppni og fjöl­breytni á banka­mark­aði og að því marki að lág­marka áhættu rík­is­ins af banka­kerf­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

framsóknarflokkur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár