Karolina Fund: Solar Plexus Pressure Belt™

Solar Plexus Pressure Belt er kvíða­still­andi tækni­bún­aður hann­aður af mynd­list­ar­mann­inum Sæmundi Þór Helga­syni í sam­starfi við tísku­hönn­uð­inn Agötu Mickiewicz.

Fjár­hags­legt óör­yggi getur valdið gremju og áhyggjum sem hafa áhrif á tauga­kerfið. Sólar plexus er þétt þyrp­ing tauga­fruma umlukin stuðn­ingsvef og stað­sett á bak við mag­ann, á celiac slag­æð­inni rétt fyrir neðan þind­ina. Þetta svæði sem er einnig nefnt sem celiac plexus á í mik­il­vægum tengslum við heil­ann. Solar Plexus Pressure Belt™ örvar sólar plex­us­inn með djúp­þrýst­ings­tækni (Deep Touch Pressure) og róar þannig kvíð­inn huga án lyfja­með­ferðar.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Inn­blást­ur­inn að Solar Plexus Pressure Belt™ kemur frá minni eigin reynslu af streitu og tíðum kvíða­köstum sem ég upp­lifði í kjöl­far alþjóð­legu fjár­málakrepp­unnar 2008. Áratug seinna er „kreppu­á­standið“ orðið eðli­legur partur af dag­legu lífi fólks. Tíma­bundin og óör­ugg atvinna, sem var áður talin óæski­leg, er nú orðin óað­skilj­an­legur hluti af virkni og inn­byggðri rök­vísi efna­hags­lífs­ins. Þessar skipu­lags­breyt­ingar hafa bein áhrif á lík­ama fólks og tauga­kerfi þess. Solar Plexus Pressure Belt™ líkir eftir fingri sem þrýstir á sólar plexus svæðið, með­ferð­ar­úr­ræði sem ég upp­götv­aði að gæti dregið úr streitu og kvíða. Í kjöl­far upp­götv­un­ar­innar hóf ég rann­sóknir á und­ir­liggj­andi tauga­fræði­legum ferlum og legg nú til nýja vöru, Solar Plexus Pressure Belt™. Beltið er hannað til þess að draga tíma­bundið úr óþæg­indum þar til þróað hefur verið nýtt efna­hags­legt kerfi sem veitir öllum íbúum fjár­hags­legt öryggi.“

Segðu okkur frá þema verkefnisins?

„Verk­efnið er fram­leitt að Félagi borg­ara sem er hags­muna­sam­tök borg­ara og þrýsti­hópur um borg­ara­laun á íslandi. Félagið stofn­aði ég ásamt góðum vinum í októ­ber 2017 í þeim til­gangi að fjár­magna- og fram­leiða verk­efni sem geta stuðlað að vit­und­ar­vakn­ingu à fjár­hags­legu- og menn­ing­ar­legu gildi þeirra vinnu sem fellur utan við­ur­kenndra starfs­greina á borð við tón­smíði, mynd­list, skrif, rann­sókn­ar­störf, verka­hring heima­vinn­andi fólks, hús­mæðra- og feðra, atvinnu­lausra og þeirra ein­stak­linga sem hafa almennt skerta getu til atvinnu. Rekstr­ar­af­gangi af starf­semi félags­ins rennur til BIEN, (Basic Income Earth Network), hnatt­rænu borg­ara­launa­neti sem berst fyrir skil­yrð­is­lausri grunn­fram­færslu allra jarð­ar­búa. Með hjálp Karolina Fund viljum við fjár­magna fram­leiðslu á BETA útgáfu af Solar Plexus Pressure Belt™ í tak­mörk­uðu upp­lagi til próf­unar og frek­ari þró­unar.

Þau sem heita á verk­efnið með €30 fá Fruit of the Loom stutt­erma­bol með Solar Plexus Pressure Belt™ merki sem var hannað af Gabríel Markan.

Þau sem styrkja verk­efnið um €250 eða meira, fá tak­mark­aða BETA útgáfu af belt­inu ásamt gegn­sæjum búk úr plexí­gleri sem hægt er að hengja beltið á. Þegar beltið er ekki í notkun má líta á það sem lista­verk í tak­mörk­uðu 50 ein­taka upp­lagi þar sem hvert belti er núm­erað og áritað.

Þau sem heita á verk­efnið, styrkja einnig þau góðu störf og mál­stað sem Félag Borgara stendur fyrir þ.e.a.s. skil­yrð­is­lausa grunn­fram­færslu allra sam­fé­lags­þegna.“

Eitthvað sérstakt sem þú vilt að komi fram um þitt verkefni?

„Neðst á Karolina Fund söfn­un­ar­síð­unni má einnig lesa stutta rit­gerð eftir Sophie Hoyle sem fjallar um tengsl geð­heilsu og kapital­isma, þar sem geð­kvillar eru ekki endi­lega ein­stak­lings­bundnir, heldur háðir unt­an­að­kom­andi öflum á borð við langvar­andi fjár­hags­legt óör­yggi.“

Hér er hægt að skoða og styrkja verk­efnið á Karolina Fund.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár