Sömu reglur munu gilda um alla á landamærum – hvaðan sem þeir eru að koma

Þeir sem eru að koma að utan og geta ekki verið í heima­sótt­kví sem upp­fyllir sett skil­yrði þurfa að fara í sótt­varna­hús en ekk­ert gjald verður tekið fyrir dvöl­ina. Þeim sem þar dvelja verður gert kleift að njóta úti­veru.

Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra.
Svandís Svav­ars­dóttir, heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Lögreglan

Skýrari kröfur verða gerðar um skil­yrði fyrir heima­sótt­kví varð­andi hús­næði og umgengn­is­reglur. Þeir sem ekki geta verið í heima­sótt­kví sem upp­fyllir sett skil­yrði þurfa að fara í sótt­varna­hús en ekk­ert gjald verður tekið fyrir dvöl­ina. Þetta er meðal efnis reglu­gerðar heil­brigð­is­ráð­herra sem tekur gildi 9. apríl og bygg­ist á til­lögum sótt­varna­læknis. Meg­in­mark­miðið er að lág­marka eins og kostur er líkur á því að smit ber­ist inn í landið, með þeim aðgerðum sem sótt­varna­lög heim­ila.

[links]Með reglu­gerð­inni er felld úr gildi reglu­gerð sem tók gildi 1. apríl og þar með ákvæði um skyldu ein­stak­linga af háá­hættu­svæðum til að dvelja í sótt­kví í sótt­varna­húsi sem hér­aðs­dómur úrskurð­aði að ekki væri full­nægj­andi laga­stoð fyrir.

Í minn­is­blaði Þórólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis segir að sú ráð­stöfun að skylda ferða­menn í sótt­kví­ar­hús hafi verið ákveðin vegna þess að „tals­verð brögð“ voru að því, að ferða­menn í heima­sótt­kví fylgdu ekki leið­bein­ingum um sótt­kví sem orsak­aði nokkrar hóp­sýk­ingar með tals­verðri útbreiðslu. Hann segir það sitt mat að ófull­nægj­andi fylgni við reglur sem gilda um heima­sótt­kví ferða­manna sé „ein helsta ógn við núver­andi smit­varnir á landa­mærum vegna COVID-19“.

[adspot]

Hann bendir enn­fremur á að umfang bólu­setn­ingar sé ekki orðið nægi­legt hér á landi til að koma í veg fyrir útbreiddan far­aldur, víð­ast erlendis sé far­ald­ur­inn í mik­illi útbreiðslu sem auki hætt­una á að smit ber­ist til lands­ins. Þá séu ný og meira smit­andi afbrigði veirunnar orðin alls­ráð­andi í nálægum löndum sem virð­ist valda alvar­legri veik­indum í yngri ald­urs­hópum, auk þess sem óvissa ríki um hvort þau geti valdið end­ur­sýk­ingum og hve mikla vernd þau bólu­efni sem nú eru í notkun veiti gegn þeim.

Samkvæmt reglu­gerð­inni sem taka mun gildi á morgun munu sömu reglur gilda um alla far­þega, óháð því hvaðan þeir koma: Sótt­varna­að­gerðir á landa­mærum taka jafnt til allra, óháð því hvort þeir koma frá löndum sem skil­greind eru sem áhættu­svæði eða ekki.

Öllum sem koma til lands­ins verður sem fyrr skylt að fara í sýna­töku á landa­mær­unum, fimm daga sótt­kví og aðra sýna­töku við lok hennar. Á þessu eru tvær und­an­tekn­ingar. Önnur varðar börn og hin fólk sem er með vott­orð um fyrri sýk­ingu af völdum kór­ónu­veirunnar eða hefur þegar fengið bólu­setn­ingu. Fólki er heim­ilt að vera í heima­sótt­kví að upp­fylltum ákveðnum skil­yrðum. Þeir sem hafa ekki tök á að vera í heima­sótt­kví og/eða kjósa frekar að dvelja í sótt­varna­húsi eiga kost á því og er dvölin þar við­kom­andi að kostn­að­ar­lausu.

Þeir sem eru í sótt­kví þurfa að vera í hús­næði sem upp­fyllir skil­yrði og umgengn­is­reglur sam­kvæmt nýjum leið­bein­ingum sótt­varna­læknis. Í því felst að ein­stak­lingur skuli vera einn á dval­ar­stað en ef fleiri dvelj­ast þar þurfa þeir að sæta öllum sömu skil­yrðum sótt­kvíar. Þeir sem ekki geta dvalið í heima­sótt­kví sem upp­fyllir skil­yrði sótt­varna­læknis þurfa að dvelja í sótt­varna­húsi.

Í leið­bein­ing­unum kemur m.a. fram að ein­stak­lingur í sótt­kví má ekki fara í skoð­un­ar­ferðir og má ekki fara út að keyra nema við kom­una til lands­ins, þ.e. þegar mögu­lega þarf að ferð­ast milli landamæra­stöðvar og heim­ilis sem og í seinni sýna­töku eftir komu til lands­ins.

Hann má fara í göngu­ferð en verður að halda tveggja metra fjar­lægð. Engin manna­mót, engar heim­sóknir og engar búðar-eða veit­inga­húsa­ferðir eru í boði. Þá má ein­stak­lingur í heima­sótt­kví ekki dvelja í sam­eig­in­legum rýmum fjöl­býl­is­húsa.

Gerist ein­stak­lingur upp­vís að því að brjóta heima­sótt­kví getur sótt­varna­læknir ákveðið að hann skuli ljúka sótt­kví í sótt­varna­húsi.

Þeir sem ekki hafa tök á að vera í heima­sótt­kví og/eða kjósa frekar að dvelja í sótt­varna­húsi eiga kost á því. Dvölin er við­kom­andi að kostn­að­ar­lausu. Þeim sem dvelja í sótt­varna­húsi verður gert kleift að njóta úti­veru og sér­stakt til­lit verður tekið til barna, s.s. varð­andi úti­veru og annan aðbúnað.

Börn fædd 2005 eða síðar fara í sýna­töku á landa­mær­unum. Ferðist barn með ein­stak­lingi sem skylt er að sæta sótt­kví dvelur barnið þar með honum og losnar úr sótt­kví ef síð­ara sýni úr sam­ferða­manni er nei­kvætt. Ef sam­ferða­mað­ur­inn er und­an­þeg­inn sótt­kví er barnið það sömu­leiðis. Barn sem ferð­ast eitt þarf ekki að fara í sótt­kví.

Krafa um sýna­töku hjá ein­stak­lingum með bólu­setn­ing­ar­vott­orð eða vott­orð um fyrri sýk­ingu er sett vegna vís­bend­inga um að þessir ein­stak­lingar geti borið smit. Þeir þurfa ekki að sæta sótt­kví en skulu bíða nið­ur­stöðu úr sýna­töku á dval­ar­stað. Krafan er tíma­bundin og verður end­ur­skoðuð fyrir 1. maí.

Sótt­varna­læknir leggur til að eft­ir­lit með ein­stak­lingum í heima­sótt­kví verði aukið í sam­vinnu við almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra og jafn­framt að sektir fyrir brot á sótt­kví verði hækkuð til muna. Heil­brigð­is­ráð­herra hefur komið til­lögum sótt­varna­læknis varð­andi þetta á fram­færi við rík­is­sak­sókn­ara og rík­is­lög­reglu­stjóra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár