Þriðjungur Íslendinga gæti fengið Pfizer-bóluefnið

Evr­ópu­sam­bandið semur nú um kaup á allt að 300 millj­ónum skammta af bólu­efni lyfja­fyr­ir­tækj­anna Pfizer og BioNTech. Gangi sá samn­ingur eftir mætti búast við að þriðj­ungur Íslend­inga yrði bólu­settur af því.

33 prósent Íslendinga gætu fengið bóluefnið frá Pfizer með samningi ESB, en það væri ekki nóg til að mynda hjarðónæmi.
33 pró­sent Íslend­inga gætu fengið bólu­efnið frá Pfizer með samn­ingi ESB, en það væri ekki nóg til að mynda hjarð­ó­næmi. Mynd: EPA

Ursula von der Leyen fram­kvæmda­stjóri Evr­ópu­sam­bands­ins (ESB) lýsti því yfir að kaup­samn­ingur um 300 milljón skammta af bólu­efn­inu frá lyfja­fyr­ir­tækj­unum Pfizer og BioNTech gegn kór­ónu­veirunni væri yfir­vof­andi. Ef tekið er til­lit til skil­mála ann­arra samn­inga ESB við bólu­efna­fram­leið­endur, auk þess að tvo skammta þurfi á hvern ein­stak­ling, mætti búast við að þessir samn­ingar leiði til þess að 33 pró­sent Íslend­inga fái bólu­efnið.

Von der Leyen greindi frá stöðu samn­inga­við­ræð­anna í Twitter-færslu í gær, þar sem hún sagði fram­kvæmda­stjórn ESB munu skrifa undir samn­ing við fram­leið­end­urna „bráðum.“ Twitter-færsl­una má sjá hér að neðan.

Kjarninn hefur fjallað um jákvæðar fréttir frá Pfizer og BioNTech, en í gær lýstu fyr­ir­tækin því yfir að 90 pró­sent þeirra sem fengið hafi bólu­efnið hafi myndað ónæmi gegn kór­ónu­veirunni, sem þykir eins góður árangur og von­ast er hægt af fyrstu kyn­slóð bólu­efnis.

ESB hefur skrifað undir kaup­samn­ing við fjölda ann­arra bólu­efna­fram­leið­enda, þar á meðal samn­ing um 400 milljón skammta frá sænsk-breska lyfja­fyr­ir­tæk­inu AstraZeneca. Í fyrri samn­ingum hefur sam­bandið lýst því yfir að bólu­efn­unum verði dreift á öll aðild­ar­ríki þess mt.t. mann­fjölda, en heil­brigð­is­ráðu­neytið hefur einnig til­kynnt að aðild­ar­ríki EES fái sama aðgang að þeim.

[adspot]

Þar sem heild­ar­mann­fjöldi EES-svæð­is­ins nemur rúmum 460 millj­ónum manna og hver ein­stak­lingur þarf tvo skammta af bólu­efn­inu má búast við að allt að þriðji hver íbúi svæð­is­ins verði bólu­settur. Af þeim væru 120 þús­und Íslend­ingar.

Slíkur fjöldi væri þó ekki nægur til að mynda hjarð­ó­næmi gegn veirunni hér á landi, en heil­brigð­is­ráðu­neytið hefur áður gefið að út að 550 þús­und skammta þyrfti til að það mynd­ist. Bólu­efnið frá Pfizer og BioNTech dugir því ein­ungis fyrir tæpum helm­ingi af því.

Pfizer og BioNTech gætu fengið neyð­ar­leyfi fyrir bólu­efni sínu frá Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofnun á fyrsta fjórð­ungi næsta árs, að ákveðnum skil­yrðum upp­fylltum. Rík­is­stjórnir hvers lands munu svo for­gangs­raða hverjir fá efnið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bóluefni

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár