Ný mannréttindastofnun til að uppfylla kröfur Parísarviðmiða

Mann­rétt­inda­stofnun Íslands mun upp­fylla kröfur samn­inga Sam­ein­uðu þjóð­anna um mann­rétt­indi, verði frum­varp inn­an­rík­is­ráð­herra sam­þykkt á Alþingi. Drög að frum­varp­inu voru birt á vef ráðu­neyt­is­ins fyrir helgi til umsagnar. Ráð­herr­ann Ólöf Nordal hygg­ist mæla fyrir frum­varp­inu þegar þing kemur saman á ný 15. ágúst, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans.

Stofn­unin mun upp­fylla skil­yrði Par­ís­ar­við­mið­anna sem sam­þykkt voru á Alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna í des­em­ber 1993. Þar er kveðið á um að sjálf­stæð stofnun, óháð stjórn­völdum, vinni að efl­ingu og vernd mann­rétt­inda í hverju ríki. Stofn­unin á að veita fram­kvæmd­ar­vald­inu, lög­gjaf­ar­vald­inu og öðrum aðilum ráð­gjöf um mann­rétt­inda­mál í land­inu og vinna að „virkri fram­kvæmd mann­rétt­inda­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna og sam­ræm­ingu inn­lendrar rétt­ar­fram­kvæmdar við þá,“ eins og segir í athuga­semdum við frum­varpið.

Íslensk stjórn­völd myndu með stofnun mann­rétt­inda­stofn­unar taka stórt skref í full­gild­ingu samn­ings Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks. Í þeim samn­ingi, sem und­ir­rit­aður var árið 2007, er í fyrsta sinn í alþjóða­samn­ingi kveðið á um að sér­stök mann­rétt­inda­stofnun hafi eft­ir­lit með fram­kvæmd samn­ings­ins. Samn­ing­ur­inn um rétt­indi fatl­aðs fólks hefur enn ekki farið alla leið í gegnum þingið, en frum­varpi um breyt­ingu á lögum til að und­ir­búa full­gild­ingu samn­ings­ins var dreift á Alþingi í lok árs 2014. Önnur umræða á enn eftir að fara fram um þær laga­breyt­ingar.

Mann­rétt­inda­stofn­unin mun heyra undir Alþingi og hafa bæði fjá­hags­legt og stofn­ana­bundið sjálf­stæði, þe. með eigið starfs­lið og starf­stöð. Íslensk stjórn­völd hafa meðal ann­ars fengið til­mæli frá Mann­rétt­inda­skrif­stofu Íslands, mann­rétt­inda­full­trúa Evr­ópu­ráðs­ins og mann­rétt­inda­nefd Sam­ein­uðu þjóð­anna um að mann­rétt­inda­stofnun væri ábóta­vant, eftir alls­herj­ar­út­tekt á stöðu mann­rétt­inda­mála á Íslandi árið 2012. Í frétt á vef inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins segir að mann­rétt­inda­skrif­stofa hafi sinnt sam­bæri­legu hlut­verki og sú mann­rétt­inda­stofnun sem lagt er til að stofnuð verði, en að skrif­stofan hafi ekki notið full­kom­ins sjálf­stæðis eða verið tryggt fjár­magn af rík­inu.

Vinna við sam­bæri­lega stofnun sem myndi upp­fylla skil­yrði Par­ís­ar­við­mið­anna var hafin seint á síð­asta kjör­tíma­bili. Í frétt Frétta­blaðs­ins í lok árs 2012 er fjallað um áform Ögmundar Jón­as­sonar, þáver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, um að koma slíkri stofnun á fót. Vinnunni lauk hins vegar ekki fyrir kosn­ing­arnar 2013.

Á hinum Norð­ur­lönd­unum hefur sam­bæri­legum stofn­unum verið komið á fót, all­staðar nema í Svíþjóð þar sem verk­efnum stofn­un­ar­innar er dreift á nokkur sjálf­stæð emb­ætti innan sænsku stjórn­sýsl­unnar. Hug­myndir inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins íslenska um mann­rétt­inda­stofnun byggja að miklu leyti á fyr­ir­mynd norsku stof­un­ar­innar. Þar starfar sam­bæri­leg stofnun undir Osló­ar­há­skóla og sinnir verk­efnum líkt og mælt er fyrir um í Par­ís­ar­við­mið­unun.

Inn­an­rík­is­ráðu­neytið hefur óskað eftir umsögnum og athuga­semdum við frum­varpið sem þurfa að ber­ast til og með 25. júlí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár