Kosningar sem skiluðu sömu ríkisstjórn eftir næst lengstu viðræður í þrjá áratugi

Rík­is­stjórnin ríg­hélt í þing­kosn­ingum sem fram fóru á árinu en tók sér samt rúm­lega tvo mán­uði að end­ur­nýja heitin. Frjáls­lyndu miðj­unni mistókst illa að sveigja valda­jafn­vægið í sína átt og Mið­flokk­ur­inn beið full­komið afhroð.

Það var kosið til Alþingis 25. sept­em­ber. Rík­is­stjórnin hélt velli í kosn­ing­unum og bætti við sig tveimur þing­mönnum frá kosn­ing­unum 2017. Flokk­arnir þrír sem hana mynd­uðu, Vinstri græn, Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokk­ur, voru þó með fjórum þing­mönnum fleiri en þeir höfðu þegar kosið var síð­ast 2017 þar sem tveir þing­menn Vinstri grænna yfir­gáfu flokk­inn á liðnu kjör­tíma­bili vegna óánægju með stjórn­ar­sam­starf­ið.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn var óum­deildur sig­ur­veg­ari kosn­ing­anna. Hann bætti við sig 6,6 pró­sent fylgi og fimm þing­mönn­um, en alls 13 eru á hans vegum á Alþingi á kom­andi kjör­tíma­bili. Það er besta nið­ur­staða hans í kosn­ingum frá árinu 2013, en vert er þó að taka fram að árin 2016 og 2017 fékk Fram­sókn sína verstu útreið í sögu flokks­ins sem spannar nú meira en eitt hund­rað ár.

Hin svo­kall­aða frjáls­lynda miðja: Sam­fylk­ing, Viðreisn og Píratar höfðu ætlað sér annað hvort saman eða í sitt­hvoru lagi að vera alvöru kostur í rík­is­stjórn. Það gekk ekki eftir. Sam­an­lagt fylgi hinnar frjáls­lyndu miðju­flokka var 28 pró­sent árið 2017. Það dróst saman um 1,2 pró­sentu­stig milli kosn­inga.

Sá flokkur sem tap­aði mestu milli kosn­inga var Mið­flokkur Sig­mundar Daviðs Gunn­laugs­sonar sem fékk 5,5 pró­sent atkvæða og þrjá þing­menn. Það er rúm­lega helm­ingi minna en flokk­ur­inn fékk 2017 en framan af kosn­inga­kvöld­inu mæld­ist flokk­ur­inn alls ekki inni á þingi.

Þing­mönnum Mið­flokks­ins fækk­aði svo úr þremur í tvo þegar Birgir Þór­ar­ins­son yfir­gaf flokk­inn og gekk til liðs við Sjálf­stæð­is­flokk­inn, tveimur vikum eftir kosn­ing­arnar.

Langdregnar viðræður

Við blasti að rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir myndu reyna að halda stjórn­ar­sam­starf­inu áfram og snemma lá fyrir að það yrði gert á þeim for­sendum að Katrín Jak­obs­dóttir myndi halda áfram sem for­sæt­is­ráð­herra þrátt fyrir að flokkur hennar hafi tapað næst mestu fylgi allra flokka milli kosn­inga, alls 4,3 pró­sent.

Stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræð­urnar tóku hins vegar mun lengri tíma en flestir höfðu vænt­ingar um. Nýr stjórn­ar­sátt­máli var ekki kynntur fyrr en 28. nóv­em­ber, rúmum tveimur mán­uðum eftir kosn­ingar. Eina skiptið á síð­ustu þremur ára­tugum sem slíkar við­ræður hafa tekið lengri tíma var eftir kosn­ing­arnar 2016, þegar þær tóku 74 daga. Þá var hins vegar afar erfitt að mynda rík­is­stjórn og allir flokkar sem náðu inn á þing reyndu fyrir sér við stjórn­ar­myndun.

Langur sáttmáli umgjörð utan um ólíkar áherslur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn var nokkuð lengri en sömu flokkar gerður fjórum árum áður (9.645 orð nú en 6.212 þá) og bar þess merki að vera umgjörð utan um sam­starf flokka sem hafa mis­mun­andi póli­tískar áhersl­ur.

Þar kom meðal ann­ars fram að stefnt yrði að því að lækka skatta, selja banka og láta fjár­magns­eig­endur greiða útsvar. Auðvelda átti fyr­ir­tækjum að virkja vind og end­ur­skoða lög um ramma­á­ætlun. Hærri end­ur­greiðslur vegna rann­sókna og þró­unar voru festar í sessi en Mið­há­lend­is­þjóð­garður heyrði sög­unni til og heild­ar­end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár í þverpóli­tísku sam­starfi líka. Opnað var á fjár­fest­ingar líf­eyr­is­sjóða í innviðum, til­kynnt að stjórn yrði sett yfir Land­spít­al­ann og frí­tekju­mark elli­líf­eyr­is­þega yrði tvö­faldað.

Meiri athygli vakti þó verka­skipt­ingin milli flokk­anna og sú upp­stokkun á stjórn­ar­ráð­inu sem greint var frá sam­hliða. Ráð­herrum var fjölgað um einn í tólf og ráðu­neytum fjölgað um tvö (áður sátu tveir ráð­herrar í atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu). Mála­flokkum var skipt með öðrum hætti en áður og mörg ráðu­neyti munu fá nýtt heiti.

Katrín hélt for­sæt­is­ráðu­neyt­inu eins og búist var við en Svandís Svav­ars­dóttir færði sig yfir í sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neytið og Guð­mundur Ingi Guð­brands­son varð félags­mála- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn bætti við sig við­bótar ráð­herr­anum. Sigurður Ingi Jóhanns­son er nú inn­við­a­ráð­herra, Lilja Alfreðs­dóttir ferða­mála-, við­skipta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, Ásmundur Einar Daðason mennta- og barna­mála­ráð­herra og Willum Þór Þórsson sett­ist í heil­brigð­is­ráðu­neytið.

Bjarni Bene­dikts­son var eini ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem flutti sig ekki um set, og heldur áfram sem fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Hann hefur gegnt því emb­ætti nán­ast sleitu­laust frá árinu 2013, ef undan eru skildir nokkrir mán­uðir á árinu 2017 þegar hann var for­sæt­is­ráð­herra. Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir fór í utan­rík­is­ráðu­neytið og Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir stýrir nýju ráðu­neyti vís­inda-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­mála. Guð­laugur Þór Þórð­ar­son sett­ist svo óvænt í ráðu­neyti umhverfis-, orku- og lofts­lags­mála.

Jón Gunnarsson bættist við ráðherraliðið. Hann var áður samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra um nokkurra mánaða skeið árið 2017.
Jón Gunn­ars­son bætt­ist við ráð­herra­liðið. Hann var áður sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra um nokk­urra mán­aða skeið árið 2017.

Einn ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks frá síð­asta kjör­tíma­bili hætti stjórn­mála­þátt­töku fyrir síð­ustu kosn­ingar, Kristján Þór Júl­í­us­son. Það kom mörgum í opna skjöldu þegar Jón Gunn­ars­son var gerður að dóms­mála­ráð­herra í að minnsta kosti 18 mán­uði til að fylla það skarð í ráð­herra­hópnum, en til­kynnt var að Guðrún Haf­steins­dóttir, odd­viti flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi, myndi taka við ráð­herra­emb­ætti að þeim tíma liðnum.

Gert er ráð fyrir að breytt skipun stjórn­ar­ráðs­ins, sem felur í sér til­færslu mála­flokka milli ráðu­neyta og fjölgun þeirra úr tíu í tólf, kosti 505 millj­ónir króna á ári.

Kjósendur allra stjórnarflokka ánægðir

Um miðjan des­em­ber var birt könnun sem Gallup um ánægju fólks með end­ur­nýjað rík­is­stjórn­ar­sam­starf. Hún sýndi að því eldra sem fólk er og því hærri sem tekjur þess eru, því ánægð­ari er það með áfram­hald rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dótt­ur.

Kjós­endur allra stjórn­ar­flokk­anna eru mun ánægð­ari með ráða­hag­inn en óánægð­ir. Alls segj­ast 92 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks vera ánægðir með nýskip­aða rík­is­stjórn og 84 pró­sent kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks eru sama sinn­is. Ein­ungis fjögur pró­sent Sjálf­stæð­is­manna og sex pró­sent Fram­sókn­ar­manna eru óánægðir með stjórn­ina.

Alls 71 pró­sent stuðn­ings­manna Vinstri grænna eru ánægðir með nýskip­aða rík­is­stjórn og ein­ungis átta pró­sent þeirra eru óánægð­ir.

Heilt yfir er helm­ingur lands­manna ánægður með nýskip­aða rík­is­stjórn en tæp­lega þriðj­ungur óánægð­ur. Þá telja flest­ir, næstum þrír af hverjum fjórum, að stjórn­ar­sam­starfið muni halda út kjör­tíma­bil­ið. Ein­ungis 17 pró­sent telja það ólík­legt. Alls eru 42 pró­sent lands­manna ánægðir með val á ráð­herrum í rík­is­stjórn­ina en 36 pró­sent óánægð­ir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2021

Mest lesið undanfarið ár