Ragnheiður Elín hættir í stjórnmálum

Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, ætlar að hætta í stjórn­málum að loknu þessu kjör­tíma­bili. Þetta til­kynnti hún á Facebook-síðu sinni nú fyrir skömmu. „Ég læt þessu hér með lokið og kveð stjórn­málin að loknu þessu kjör­tíma­bili,“ skrifar hún meðal ann­ars.

Ragn­heiður Elín beið ósigur í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi í gær og end­aði í fjórða sæti. Hún hafði leitt flokk­inn í kjör­dæm­inu í síð­ustu tveimur alþing­is­kosn­ingum og sótt­ist eftir því að gera það áfram. Páll Magn­ús­son fjöl­miðla­maður og fyrr­ver­andi útvarps­stjóri bar sigur úr býtum og mun leiða flokk­inn í kom­andi kosn­ingum. Ásmundur Frið­riks­son og Vil­hjálmur Árnason, þing­menn flokks­ins, lentu í næstu sætum þar fyrir neðan, en Ragn­heiður Elín og Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir þing­maður lentu í fjórða og fimmta sæti.

„Stjórn­málin hafa verið minn starfs­vett­vangur í tæpa tvo ára­tugi. Ég var aðstoð­ar­maður ráð­herra í níu ár í þremur ráðu­neytum, hef verið þing­maður í tæp tíu ár bæði í stjórn og stjórn­ar­and­stöðu, verið þing­flokks­for­maður og ráð­herra. Ég hef tekið þátt í að skrifa sög­una og verið í for­ystu í stjórn­málum á gríð­ar­lega miklum umbrota­tímum í sögu þjóð­ar­innar. Það hefur verið stór­kost­legt að vinna við það að bæta sam­fé­lagið, sjá hug­myndir verða að veru­leika,“ skrifar Ragn­heiður Elín.

Hún hafi líka skrifað sög­una innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins, verið fyrsta konan til þess að leiða fram­boðs­lista í gegnum tvennar kosn­ingar og fyrsta konan úr lands­byggð­ar­kjör­dæmi til að verða ráð­herra fyrir flokk­inn.

„Þessa reynslu mína og þekk­ingu lang­aði mig að nýta áfram í þágu hug­sjóna Sjálf­stæð­is­flokk­ins og hags­muna Suð­ur­kjör­dæmis og lands­ins alls. Þess vegna bauð ég mig fram til þess að leiða fram­boðs­list­ann í þriðja sinn.“ Hún hafi tekið þátt í fjórum próf­kjörum og þrisvar fagnað sigri. „Með sama hætti og ég hef fagnað þeim skila­boðum sem í sigrunum hafa falist með­tek ég skila­boðin sem nið­ur­staða gær­dags­ins gefur til kynna.“

Hún óskaði nýjum odd­vita, Páli Magn­ús­syni, til ham­ingju með sig­ur­inn og þakk­aði stuðn­ings­mönnum sínum fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár