Mynd: EPA

34 mínútur skelfingar

„Ég heyrði konu hrópa. Þetta eru verstu öskur sem ég hef heyrt á ævi minni.” Lýsingar sjón­ar­votta af því þegar Dani á fer­tugs­aldri fór um gamla bæinn í Kongs­berg vopn­aður boga, örvum, hnífi og jafn­vel fleiri dráp­stækjum, eru hroll­vekj­andi.

Lög­reglan kom auga á hann. En missti svo sjónar af honum. Áður en hún náði loks að hafa hendur í hári hans hafði honum tek­ist að drepa fimm mann­eskjur; fjórar konur og einn karl­mann. Frið­ur­inn hefur verið rof­inn í hinum forn­fræga norska bæ, Kongs­berg, og eftir situr fólk með brýnar spurn­ingar sem margar snúa að yfir­völdum – lög­regl­unni sem þekkti til manns­ins af vondu einu og týndi honum svo í eft­ir­för milli meðal ann­ars lágreistra timb­ur­húsa sem hann nýtti til að strá­fella fólk sem á vegi hans varð.

„Þetta var and­styggi­legt. Hann bara fór um og drap til­vilj­un­ar­kennt hér á göt­unum okkar,“ segir Gudoon Hersi, íbúi í Kongs­berg. Hann spyr hvernig það hafi getað gerst að lög­reglan náði honum ekki fyrr. Að það sé „hræði­legt“ til þess að hugsa.

Lög­reglu­stöðin í Kongs­berg er í um eins kíló­metra fjar­lægð frá gamla mið­bænum. Þangað barst fyrsta til­kynn­ing kl. 18.13 í gær að norskum tíma. Sjón­ar­vottur lýsti því að maður væri að skjóta á eftir fólki með boga og örvum í mið­bænum. Lög­reglu­bíll var sendur af stað. Lög­reglu­menn­irnir komu fyrst auga á mann­inn sjö mín­útum eftir að fyrsta til­kynn­ingin barst, kl. 18.18. En svo misstu þeir sjónar af honum. Talið er að mað­ur­inn hafi drepið alla sem lét­ust eftir þetta. Þrír lög­reglu­bílar til við­bótar voru sendir á vett­vang enda til­kynn­ingum rignt stans­laust inn. Það var svo ekki fyrr en kl. 18.47 að hann var hand­tek­inn. Til að gæta allrar nákvæmni: Liðnar voru rúm­lega 34 mín­útur frá fyrstu til­kynn­ing­unni er mað­ur­inn, sem drepið hafði fimm og sært tvo, var yfir­bug­aður.

Fagri bærinn í fjöllunum

Kongs­berg á sér langa og merki­lega sögu. Kristján fjórði kon­ungur stofn­aði hann á þriðja ára­tug sautj­ándu aldar er þar hafði fund­ist silfur. Bærinn byggð­ist hratt upp í kringum námu­gröft­inn var því sann­kall­aður iðn­að­ar­bær þótt þar léti kon­ung­ur­inn einnig reisa sér bústað. Um miðja átj­ándu öld var hann orð­inn næst­stærsti bær Noregs. Það var ekki aðeins silfrið sem orsak­aði það því þegar fram liðu stundir var þar stofnuð vopna­verk­smiðja auk verk­smiðja með bíla­í­hluti og búnað fyrir skip, flug og síðar olíu- og gas­iðn­að­inn. Enn í dag er stærsta fyr­ir­tækið Kongs­berg Group (sem aftur á Kongs­berg Defence & Aerospace og Kongs­berg Maritime).

En þótt iðn­að­ur­inn sé sterkt afl í sam­fé­lag­inu er háskól­inn í bænum það líka. Þangað flykkj­ast upp­veðruð ung­menni til að ganga mennta­veg­inn.

Mikil á skiptir bænum í tvo hluta, þann vest­ari og þann eystri. Vestan megin hennar er elsti hluti bæj­ar­ins en austan megin hefur nútím­inn sett sitt mark á bygg­ingar. Í mið­bænum, sem segja má að sé beggja vegna árinnar, er svo brú sem sam­einar borg­ar­hlut­ana tvo.

Ein af örvum árásarmannsins í vegg á húsi í miðbæ Kongsberg.
Ein af örvum árás­armanns­ins í vegg á húsi í miðbæ Kongs­berg.

Tímalínan

Snemma kvölds í gær gekk danskur rík­is­borg­ari, 37 ára gam­all karl­maður, inn í Coop Extra-verslun í mið­bænum og hóf að skjóta á fólk með boga og örvar að vopni. Lög­reglan fær fyrstu til­kynn­ingu 18.13. Fimmtán mín­útum síðar, kl. 18.28, til­kynnir lög­reglan á Twitter um „aðgerð“ í miðbæ Kongs­berg og að maður hafi skotið eina mann­eskju með boga og ör. Fólk var hvatt til að halda sig inn­an­dyra þar sem ekki hefði enn tek­ist að hand­sama mann­inn.

Til­kynn­ing um hand­tök­una barst svo frá lög­regl­unni kl. 19.24 en nú er vitað að hand­takan var gerð nokkru fyrr eða kl. 18.47. „Þetta er alvar­legur atburður,“ sagði í þess­ari annarri til­kynn­ingu lög­regl­unnar. Um klukku­stund síðar er svo upp­lýst að fólk hafi dáið í árásinni en það er ekki fyrr en 23.18 sem greint er frá því að fimm hafi lát­ist og tveir særst.

Lög­reglan sagð­ist á blaða­manna­fundi í morgun engin svör hafa við því hvers vegna tók svo langan tíma að hand­sama árás­armann­inn. Enn eigi eftir að rann­saka við­brögð hennar ofan í kjöl­inn.

Lögreglumenn á ferð um miðbæinn eftir árásirnar í gær. Svæðið var girt af á meðan rannsókn stóð yfir.
Lög­reglu­menn á ferð um mið­bæ­inn eftir árás­irnar í gær. Svæðið var girt af á meðan rann­sókn stóð yfir.

Sjónarvottarnir

Tveir ungir háskóla­nemar brugðu sér út í gær­kvöldi til að kaupa inn í Coop Extra, versl­un­inni í mið­bænum. Við inn­gang­inn sáu þeir mann sem þeir héldu í fyrstu að væri örygg­is­vörður. „Það var ör aftan á honum,“ segir annar ungu mann­anna við Netta­visen. „Það var mikið áfall að sjá það.“ Hann seg­ist hafa spurt mann­inn hvað hefði eig­in­lega gerst, hann svar­aði að það væri í lagi með sig en að hann ætl­aði að fara á bráða­mót­tök­una.

Skömmu síðar voru lög­reglu­menn mættir á stað­inn og bað ungu menn­ina og aðra við­skipta­vini að fara út úr búð­inni og koma sér í öruggt skjól. Þeir sáu örvar um allt en árás­armann­inn sáu þeir aldrei.

Í húsi í nágrenni búð­ar­innar var ungur maður í gær­kvöldi að horfa á sjón­varps­þátt­inn Squid Game er hann heyrði hávært sírenu­væl. „Ég hélt að þetta væri í sjón­varp­inu. En svo heyrði hann hrópað af öllum lífs og sál­ar­kröftum: „Legðu frá þér vopnið!“ Hann hafi svo séð fleiri lög­reglu­bíla koma á stað­inn, lög­reglu­menn með skildi og hjálma á höfði. Þeir þustu inn í versl­un­ina og svo fóru þeir að berja á dyr í nær­liggj­andi húsum og segja fólki að halda sig inni.

Enn einn sjón­ar­vott­ur­inn var á gangi í nágrenni búð­ar­innar þegar hann heyrði í þyrlu fyrir ofan sig. Er hann nálg­að­ist búð­ina sá hann blikk­andi ljós, bæði lög­reglu­bíla og sjúkra­bíla. „Þetta var hræði­legt. Það átti eng­inn von á því að neitt í lík­ingu við þetta gæti gerst í litla Kongs­berg.“

Fleiri sjón­ar­vottar hafa greint frá því sem fyrir augu bar og einn þeirra seg­ist hafa séð árás­armann­inn á hlaupum með lög­regl­una á hæl­unum. Hann hafi heyrt skoti hleypt af í átt að mann­inum.

Enn eitt vitnið seg­ist hafa séð konu liggj­andi á göt­unni og hrópa á hjálp. Hann telji hana hafa verið stungna með hnífi. Það sama segir annað vitni um aðra konu. Að sker­andi öskur hennar hafi verið það versta sem hann hafi nokkru sinni heyrt.

Eftir að lögreglan mætti á vettvang í miðbænum var fólk á ferli beðið að leita sér skjóls.
Eftir að lög­reglan mætti á vett­vang í mið­bænum var fólk á ferli beðið að leita sér skjóls.

Árásarmaðurinn

Daninn sem framdi ódæðið hefur búið í Kongs­berg í að minnsta kosti sex ár. Hann hefur nokkrum sinnum komið við sögu lög­reglu, síð­ast í maí fyrra er for­eldrar hans fengu nálg­un­ar­bann á hann í sex mán­uði vegna ógn­andi hegð­unar hans á heim­ili þeirra. Norskir fjöl­miðlar segja að vís­bend­ingar hafi verið um að skoð­anir hans væru öfga­fullar og er hann ógn­aði for­eldrum sínum og hót­aði að minnsta kosti öðru þeirra líf­láti hafi hann haft skamm­byssu með­ferðis. Einnig hefur verið greint frá því að hann hafi áður verið dæmdur fyrir þjófnað sem og minni­háttar fíkni­efna­brot og hlaut hann fyrir það sex­tíu daga fang­els­is­dóm árið 2012. Hann hafði þá áður fengið dóm fyrir sam­bæri­legt broti.

Að því er lög­reglan hefur sagt eftir ódæð­is­verkin höfðu borist til­kynn­ingar um öfga­fulla hegðun hans, síð­ast í fyrra, og að það gæti verið að hann hefði snú­ist til íslam. Ekki hefur frekar verið útskýrt að svo stöddu hvaða þýð­ingu það hefur en lög­reglan hefur einnig sagt að hann hafi verið einn að verki. Hún úti­lokar ekki hryðju­verk.

Í frétt norska rík­is­út­varpsins kemur fram að í dómnum vegna nálg­un­ar­banns­ins komi fram að lög­reglan hafði áhyggjur af því að mað­ur­inn myndi fremja refsi­verða hátt­semi gegn for­eldrum sínum.

Oyvind Aas, yfirlögregluþjónn, hélt tvo upplýsingafundi í gærkvöldi fyrir utan lögreglustöðina. Hann hafði ekki mörg svör þá en málin hafa skýrst nokkuð síðustu klukkustundir.
Oyvind Aas, yfir­lög­reglu­þjónn, hélt tvo upp­lýs­inga­fundi í gær­kvöldi fyrir utan lög­reglu­stöð­ina. Hann hafði ekki mörg svör þá en málin hafa skýrst nokkuð síð­ustu klukku­stundir.

Árás­armað­ur­inn hefur verið yfir­heyrður. Hann játar sök en hefur ekki sagt hvers vegna hann framdi voða­verkin. Rita Katz, yfir­maður SITE Intelligence Group, sem vakta og greina vís­bend­ingar um hryðju­verka­starf­semi á net­inu, skrif­aði á Twitter í gær­kvöldi að bæði hægri öfga­menn sem og öfga­sam­tök sem kenna sig við íslam hafi áður hvatt til að nota boga og örvar sem vopn í hermd­ar­verkum. Notkun slíks vopns sé þó mjög sjald­gæf.

Einn helsti sér­fræð­ingur Norð­ur­landa í hryðju­verkum seg­ist aldrei nokkurn tím­ann hafa heyrt um hryðju­verka­árás þar sem bogi og örvar voru not­aðar. „Þetta er gríð­ar­lega óvenju­legt,“ segir Svínn Magnus Ranstorp sem hefur unnið við rann­sókn hryðju­verka í þrjá ára­tugi. Hann segir of snemmt að stað­festa að árásin óhugn­an­lega í Kongs­berg hafi verið hryðju­verk. Til að gera slíkt þurfi að kanna bak­grunn ger­and­ans og þær hvatir sem lágu að baki því að fram­kvæma árás með þessum hætti. „Þetta getur allt eins tengst geð­rænum vanda­málum,“ sagði hann við Netta­visen í morgun.

Lög­fræð­ingur lög­regl­unnar í Kongs­berg sagði við norska rík­is­út­varpið í morgun að árás­armað­ur­inn myndi sæta geð­rann­sókn. Slíkt sé ekki óvana­legt í svo alvar­legum málum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár