Svandís: Ragnheiður Elín með verklausari ráðherrum í sögunni

Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, ráð­herra ferða­mála, „er svona með þeim verk­laus­ari í sög­unni“ að mati Svan­dísar Svav­ars­dóttur, þing­flokks­for­manns Vinstri grænna. Svandís gagn­rýndi Ragn­heiði Elínu harð­lega fyrir aðgerða­leysi í mál­efnum ferða­mála í þætt­inum á Sprengisandi í dag.

„Hún í raun og veru strand­aði með nátt­úrupass­ann á sínum tíma og við­bragðið við því, þegar hún náði ekki sínu fram í gegnum Alþingi, var að stofna þetta furðu­lega batt­erí sem heitir stjórn­stöð ferða­mála og eng­inn skilur um hvað á að snú­ast – sem er ein­hvers konar sam­ráðs­vett­vangur fjög­urra ráð­herra sem eru saman í rík­is­stjórn og eiga að tala saman hvort sem er, og stofn­ana sem eiga að hafa sam­ráð hvort sem er. En þarna er ein­hver maður sem hefur hærra kaup en vel­flestir í stjórn­ar­ráð­inu og er að skila hverju?“ sagði Svandís meðal ann­ars. Hún sagði nálg­un­ina á þetta stóra verk­efni, vera algjör­lega með ólík­indum.

Hún sagði það allra mik­il­væg­asta í ferða­manna­málum væri að grípa til varna fyrir nátt­úru Íslands, með því að stofna þjóð­garð á hálendi Íslands.

„Það er dap­ur­legt að ráð­herra ferða­mála skuli algjör­lega skila auðu í þessu máli, mér finnst það eig­in­lega til hábor­innar skammar.“

Ragn­heiður Rík­harðs­dóttir, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, var líka í þætt­inum. Sigurjón Magnús Egilsson sagði við hana að það virt­ist stefna í vand­ræði í mála­flokknum, sem væri á borði hennar flokks, og sagði að það sæust litlar fram­kvæmdir eða við­brögð. „Já því miður þá virð­ist það nú vera svo,“ svar­aði Ragn­heiður. Hún sagð­ist samt einnig spyrja sig að því hvers vegna sveit­ar­fé­lög taki ekki til hend­inni sjálf og hefji gjald­töku á svæðum, til dæmis í Reyn­is­fjöru þar sem hægt væri að gera bíla­stæði og rukka fólk inn.

„Við erum búin að ræða þetta allt þetta kjör­tíma­bil og líka síð­asta kjör­tíma­bil. Það er dap­urt að við séum komin svo langt og ekki búin að gera meira en raun ber vitni,“ sagði Ragn­heiður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár