Karolina Fund: Hlynur Ben gefur út II Úlfar

Tón­list­ar­mað­ur­inn Hlynur Ben er nú í óða önn að klára sína þriðju breið­skífu og von­ast hann til að geta gefið hana út á afmæl­is­dag­inn sinn, þann 30. ágúst næst­kom­andi.

Hlynur Ben hefur komið víða við á ferli sínum sem tón­list­ar­maður og skemmti­kraftur, bæði einn síns liðs og með hljóm­sveitum eins og Mono, Gleði­sveit Ingólfs, Búálf­unum og Rufuz. Hann sigr­aði fyrstu trú­badora­keppni FM957, sem fór fram árið 2009, og hefur mest komið fram sem trú­bador und­an­farin ár. Eftir hann liggur fjöldin allur af tón­list sem er eins ólík og hljóm­sveit­irnar sem hann hefur verið í gegnum tíð­ina. Þó ber helst að nefna sóló­plöt­urnar Telling tales (2008) og Leiðin heim (2014), en sú síðar nefnda sló heldur betur í gegn og hljóm­uðu lögin Hrópum, Kaldur bæði og sár, Það er allt í lagi og Vaknaðu mikið á öldum ljós­vakans.

Þriðja platan mun bera heitið II ÚLFAR og safnar Hlynur nú fyrir útgáf­unni á Karolina Fund þar sem hægt er að styrkja verk­efnið, kaupa plöt­una í for­sölu og næla sér í sér­staka við­hafnar­út­gáfu sem inni­heldur upp­tökur úr Akra­nes­vita, svo eitt­hvað sé nefnt.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að plöt­unni?
„Eftir frá­bærar við­tökur á fyrstu tveimur plöt­unum mínum hef ég alltaf stefnt að því að gefa út meira sól­ó­efni. Ég glími við visst góð­ær­is­vanda­mál að því leit­inu til að ég á svo mikið af frum­sömdu efni og þá er erfitt að ákveða hvað á að gefa út fyrst.
Fyrir ári síðan var ég svo búinn að raða saman lögum sem passa frá­bær­lega saman og platan virkar sem ein heild, þó að hvert lag standi líka eitt og sér.
[adspot]Þá fór í gang skipu­lags­ferli og nú er verk­efnið komið á fullt skrið.

Hægt er að fylgj­ast með plöt­unni verða til á Facebook síðu sem ég opn­aði fyrir verk­efnið. 
Það er ýmis­legt sem gengur á bak við tjöldin sem fólki þykir kannski fróð­legt og skemmti­legt að sjá. T.d. varð eins­konar auka­plata til þegar ég fór í Akra­nes­vita og kann­aði hljóm­burð­inn fyrir upp­tökur á söng og kassagítar. Ég tók upp fullt af lögum í kassagít­ar­út­gáfum sem enda svo á auka­disk er fylgir við­hafnar­út­gáf­unni.“

Þú segir að lögin á plöt­unni passi vel saman. Er eitt­hvað þema sem tengir þau?

„Já, í raun má alveg segja það. Án þess að það hafi verið ætl­unin þá fór ég að sjá rauðan þráð og sögu­línu í heild­ar­verk­inu þegar hlust­aði á prufu­upp­tök­urnar í þeirri röð sem lögin rað­ast niður á plöt­una.

Það þurfti bara aðeins að snurfusa hér og þar og þá var komin ein­hver miklu stærri heild­ar­mynd sem mig sjálfan óraði ekki fyrir. Hvort sem það var und­ir­með­vit­undin að verki eða bara ótrú­leg til­viljun þá er þetta skemmti­legt.

Það er þó ekki svo að sögu­þráð­ur­inn sé borð­leggj­andi fyrir hvern sem hlustar. Ég elska texta­gerð og til að texti sé áhuga­verður fyrir mig þá verður hann að vera örlítið óræður. Þannig að hver geti túlkað hann á sinn hátt.

Af þeim lögum sem ég hef gefið út þykir mér alltaf vænst um þau sem snerta ólíkt fólk á ólíka vegu, algjör­lega háð reynslu og upp­lif­unum sem fólk hefur orðið fyrir í líf­inu. Þannig á góður texti að vera.

Grunn­hug­myndin eru þó þessir tveir úlfar sem eru innra með okkur. Annar táknar það góða og hinn hið illa. Svo er það bara okkar að ákveða hvorn úlfinn við viljum fóðra því sá sterk­ari stjórnar háttum okkar og gjörðum í líf­inu.“

Áætluð útgáfa er á afmæl­is­dag­inn þinn, var það löngu ákveðið?

„Nei alls ekki. Þegar ég fór að velta fyrir mér hvernig væri best að fjár­magna upp­tök­urnar og útgáf­una varð Karolina Fund hópsöfnun fyrir val­inu. Þetta er frá­bær leið til að sjá hvort ein­hver grund­völlur sé fyrir útgáfu sem þess­ari. Því ef næst ekki að safna þeim lág­marks­kostn­aði sem þarf til, þá fellur það bara um sjálft sig og allir fá end­ur­greitt.

En það gefur auga­leið að þú biður fólk ekk­ert að fjár­festa í eða styrkja eitt­hvað nema búið sé að kort­leggja ferlið og setja loka­dag­setn­ingu á verkið.

Þó að ég fái smá kjána­hroll þegar ég við­ur­kenni það, þá er stað­reyndin samt sú að ég vakn­aði einn morg­un­inn alveg sann­færður um að töl­urnar 7, 9 og 13 myndu leika stóran part í vel­gengni plöt­unnar. Það tók mig svo nokkra daga að átta mig á því að 7 stendur fyrir 37. afmæl­is­dag­inn minn, 9 er síð­asta talan í ártal­inu og ég var þegar búinn að ákveða að það yrðu 13 lög á plöt­unni.

Svo skemmir ekk­ert fyrir að 30. ágúst kemur niður á föstu­degi þetta árið, sem er full­kom­inn dagur fyrir útgáfu­tón­leika og almennan fögnuð.“

Hér er hægt að skoða og styrkja verk­efnið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár