Sungið um samband í öfugri og réttri tímaröð

Til stendur að setja upp söng­leik­inn Fimm ár í Kalda­lóni í Hörpu í októ­ber. Safnað er fyrir upp­setn­ing­unni á Karolina Fund.

Söng­leik­ur­inn FIMM ÁR!...fórstu strax að hugsa um risa­stór dans­númer?...„jazz hands", lit­ríka bún­inga og eins og eitt stepp atriði? Þó svo að það sé upp­skriftin sem við höfum van­ist, er söng­leikja­formið mun fjöl­breytt­ara. The Last Five Years er við­kvæm saga með mik­illi nánd og segir frá fimm ára sam­bandi Cathy og Jamie. Það sem er sér­stakt við frá­sögn­ina er að sögu­þráður Cathy ger­ist í öfugri tíma­röð en Jamie segir frá sam­band­inu á sama tíma en í réttri röð. 

Verkið verður flutt af tveimur leik­urum, þeim Júlí Heiðari Hall­dórs­syni og Viktoríu Sig­urð­ar­dóttur, og með þeim er þriggja manna band skipað Einari Bjarti Egils­syni, Hildig­unni Hall­dórs­dóttur og Sigurði Hall­dórs­syni. Safnað er fyrir upp­setn­ingu verks­ins á Karolina Fund.

Söng­leik­ur­inn, sem heitir á ensku The Last Five Years, hefur náð gríð­ar­legum vin­sældum á Broadway og West End og hefur skipað sér ákveð­inn sess í söng­leikja­heim­inum sem og höf­und­ur­inn, Jason Robert Brown. Hann byggði söng­leik­inn á eigin ást­ar­sam­bandi við leikkon­una Theresu O'Neill. Leik­konan kærði síðar Brown því að verkið segir sögu sam­bands þeirra einum of ýtar­lega fyrir hennar smekk. Brown ákvað þá að kæra O'Neill til­baka fyrir að hafa truflað sitt list­ræna flæði... Seinna sá Brown að sér og breytta Cathy(per­són­unni sem táknar O'Neill) úr írskum kaþ­ólikka í gyð­ing með lag­inu Shiksa Goddess sem heitir núna á íslensku „Heiðna Gyðja“ í snjallri og nútíma­legri þýð­ingu Jóhanns Axels Andersen.

[adspot]Viktoría segir að þema sýn­ing­ar­innar sé ástin. „Ég er búin að vera með þessa hug­mynd í koll­inum í þónokkurn tíma. Þegar ég flutti til London í leik­list­ar­nám þá átt­aði ég mig fljótt á því að ég vissi ekk­ert um söng­leiki. Þarna var ég umkringd krökkum sem ólust nán­ast upp á West End og, að mér fannst, vissu allt, hver var hver og hver var ein­hver í söng­leikja­heim­inum í London. Þetta var svo eitt af fyrstu verk­unum sem ég varð ást­fangin af eftir að ég var búin að sitja sveitt og kynna mér allt um söng­leiki til þess að reyna að halda í við sén­í­ana sem sátu með mér á skóla­bekk.“

Hún seg­ist ekki hafa getið hætt að syngja lögin úr sýn­ing­unni og lét sig dreyma um að fá að setja þetta verk upp ein­hvern tím­ann. „Þó svo að ég algjör­lega elski risa­stórar sýn­ingar með öllum þeim leik­hús­töfrum, kon­fettí og glimmer sem fyr­ir­finnst þá er það sem heillar mig mest við þetta dásam­lega list­form ein­fald­lega það að vera með sögu í hönd­unum og reyna að fleyta hverju smá­at­riði alla leið í skiln­ing áhorf­and­ans, helst í gleði og hlát­ur­stöð­ina. Og það er það sem söng­leik­ur­inn Fimm ár er. Ekkert meira, ekk­ert minna.“

Söng­leik­ur­inn FIMM ÁR verður sýndur 24. októ­ber í Hörpu. Hægt er að styrkja verk­efnið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár