Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, hefur skipað Þóreyju Vilhjálmsdóttur sem formann Ferðamálaráðs iðnaðar- og viðskiptaráðuneytisins. Viðskiptablaðið greinir frá því að Þórey hafi verið skipuð án tilnefningar rétt eins og Páll Marvin Jónsson sem verður varaformaður. Þórey starfaði sem aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra þar til sú síðarnefnda sagði af sér embætti í nóvember í fyrra í kjölfar lekamálsins.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.











































Athugasemdir