Viðskiptastríð stórveldanna hafið

Vernd­ar­tollar Banda­ríkj­anna á kín­verskar vörur tóku gildi í dag. Um er að ræða refsi­tolla á ákveðnar kín­verskar vörur og Kín­verjar hafa lagt sam­svar­andi tolla á Banda­ríkin. Sér­fræð­ingar telja aðgerð­irnar afar skað­legar fyrir bæði löndin.

Nýir vernd­ar­tollar Banda­ríkj­anna á kín­verskar vörur tóku gildi í dag. Þar með má segja að við­skipta­stríð sé hafið milli stó­veld­anna tveggja. Um er að ræða refsi­tolla á ákveðnar kín­verskar vörur og Kín­verjar hafa til gagn­að­gerða með því að leggja sam­svar­andi tolla á Banda­ríkin.

Toll­arnir koma ekki á óvart en Donald Trump Banda­ríkja­for­seti lýsti því yfir fyrir nokkru að hann ætl­aði sér að leggja 25 pró­senta inn­flutn­ings­tolla á raf­magns- og hátækni­vörur frá Kína. Ríkin hafa verið í samn­inga­við­ræðum sem ekki hafa borið árangur, sem end­aði með því að vernd­ar­toll­anir tóku gildi nú á mið­nætti. Þá hefur Trump hótað enn frek­ari tollum á kín­verskar vörur til Banda­ríkj­anna.

Fram­leið­endur hafa reynt að malda í móinn með því að benda á að aðgerðir Banda­ríkja­for­seta geti leitt til þess að mark­að­ur­inn minnki, verð hækki og það hægist á vexti fyr­ir­tækja. Sér­fræð­ingar í Banda­ríkj­unum taka undir áhyggjur þeirra og telja að þetta við­skipta­stríð muni hafa skað­leg áhrif á stöðu bæði neyt­enda og fyr­ir­tækja í báðum löndum.

Trump var tíð­rætt um Kína í kosn­inga­bar­áttu sinni, hversu illa Banda­ríkin væru að fara út úr við­skiptum sínum við Kínverja og að þar ætti sér stað rík­is­styrktur hug­verka­þjófn­aður.

Vöru­skipta­jöfn­uður Banda­ríkj­anna gagn­vart Kína var nei­kvæður um rúm­lega 375 millj­arða doll­ara í fyrra, og hefur hann aldrei verið hærri. Það jók enn á ákveðni Trumps að leggja tolla á inn­flutn­ing á kín­verskum vörum.

Núver­andi tollar hafa áhrif á vörur sem eru að verð­mæti 34 millj­arða banda­ríkja­dala. Kínversk stjórn­völd segja Banda­ríkin bjóta reglur Alþjóða­við­skipta­stofn­un­ar­innar og tala um umfangs­mesta við­skipta­stríð sög­unnar.

Tollar Kínverja leggj­ast á til að mynda soja­baunir, svína- og fulga­kjöt og korn, en allt eru þetta vörur og fram­leiðsla sem er mik­il­væg í mið­ríkjum Banda­ríkj­anna, þangað sem Trump sækir stóran hluta síns stuðn­ings.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár