Ingveldur, Davíð Þór eða Sigurður Tómas í Hæstarétt

Þrír dóm­arar við Lands­rétt hafa verið metnir hæf­astir af dóm­nefnd til að taka við auða sæt­inu í Hæsta­rétti.

Innan úr Hæstarétti Íslands.
Innan úr Hæsta­rétti Íslands. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Þau Ing­veldur Ein­ars­dóttir, Davíð Þór Björg­vins­son og Sigurður Tómas Magn­ús­son hafa af dóm­nefnd verið metin hæfust þeirra átta umsækj­enda sem sóttu um lausa stöðu við Hæsta­rétt. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag. Öll þrjú eru dóm­arar við Lands­rétt og því ljóst að þar mun losna önnur staða þegar eitt þeirra verður skipað í Hæsta­rétt.

Í Frétta­blað­inu segir að með til­liti til mik­ils kynja­halla í Hæsta­rétti þá sé talið lík­legt að Ing­veldur verði skipuð, en af þeim sem nú sitja í Hæsta­rétti er ein­ungis ein kona, Gréta Bald­urs­dóttir. Hún er komin á eft­ir­launa­aldur en segir við blaðið að hún hyggi ekki á starfs­lok að svo stöddu.

Tveir hæsta­rétt­ar­dóm­ar­ar, Markús Sig­ur­björns­son og Viðar Már Matth­í­as­son ósk­uðu í ágúst eftir lausn frá emb­ætti dóm­ara við Hæsta­rétt.

[adspot]Þeir hættu störfum frá og með 1. októ­ber. Sam­hliða átti að fækka dóm­urum við Hæsta­rétt úr átta í sjö, líkt og staðið hefur til frá því að nýju milli­dóm­stígi, Lands­rétti, var komið á. Eitt emb­ætti dóm­ara við Hæsta­rétt var því aug­lýst til umsóknar.

Menn­irnir tveir voru afar reynslu­miklir dóm­arar. Markús hafði verið dóm­ari við Hæsta­rétt Íslands frá árinu 1994, eða í 25 ár. Hann var vara­for­seti Hæsta­réttar 2002 og 2003 og for­seti Hæsta­réttar 2004 og 2005 og frá 1. jan­úar 2012 til loka árs 2016. Áður en að Markús var skip­aður dóm­ari var hann meðal ann­ars pró­fessor í rétt­ar­fari við laga­deild Háskóla Íslands 1988 -1994. Eng­inn dóm­ara við Hæsta­rétt í dag kemst nálægt því að hafa setið þar jafn lengi og Mark­ús. Sá sem kemst næst því er Ólafur Börkur Þor­valds­son sem var skip­aður í emb­ætti árið 2003.

Þar á eftir kom Viðar Már sem var skip­aður 2010. Hann var vara­for­seti Hæsta­réttar Íslands frá byrjun árs 2012 og út árið 2016. Viðar Már var pró­fessor í skaða­bóta­rétti við laga­deild Háskóla Íslands 1996 – 2010 og var auk þess settur hæsta­rétt­ar­dóm­ari í aðdrag­anda þess að hann var skip­aður í emb­ætt­ið, eða á árunum 2009 til 2010.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár