Sigurður Ingi: Vil breiða samstöðu

Flókin staða er komin upp eftir að talið var upp úr kjör­kössum í gær en átta flokkar komust inn á þing. Framsókn virð­ist í lyk­il­stöðu en flokk­ur­inn heldur sínum átta þing­mönnum.

Sigurður Ingi Jóhannsson ræðir við Loga Má Einarsson.
Sigurður Ingi Jóhanns­son ræðir við Loga Má Ein­ars­son. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, seg­ist vilja breiða sam­stöðu til að kom­ast út úr stjórn­ar­kreppu. Þetta kom fram í Silfrinu á RÚV. Full­trúar flokk­anna átta sem komnir eru á þing ræddu stöð­una í morgun. Hann segir jafn­framt ekki úti­loka sam­starf með Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni eða neinum öðrum.

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður VG, segir að hugs­an­lega þurfi annað stjórn­ar­mynstur en verið hefur og hefð er fyrir á Íslandi.

Bjarni Bene­dikts­son segir að staðan sé hrika­lega flókin og að ekki hafi reynst vel að vera í rík­is­stjórn eftir Hrunið. Honum finn­ist eðli­leg­ast að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sé í rík­is­stjórn í ljósi þess að flokk­ur­inn er stærstur.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, kallar á við­ræður en hann seg­ist vilja kanna hversu mik­ill sam­hljómur sé milli flokka. Slá þurfi af kröfum en í þeirra til­felli séu þau stíf á mark­miðum en opin fyrir leiðum þangað.

Inga Sæland, for­maður Flokk fólks­ins, seg­ist vera til í að fara í rík­is­stjórn. Hún telur að allir séu að stefna að sama að marki og ættu að geta unnið saman.

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, í for­svari fyrir Pírata, bendir á að stjórn­ar­and­staðan hafi náð meiri­hluta. „Mér finnst það vera ákveðin skila­boð frá kjós­endum,“ segir hún og telur enn vera grund­völl til sam­starfs. Hún sé reiðu­búin að afla ábyrgð.

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, segir að nú skipti máli að mynda starfs­hæfa rík­is­stjórn en vill þó að jafn­rétt­is­málin séu í for­gangi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár