Aldrei endir

Jörðin snýst og á hverju ári er haldin sýning nemenda í meistara­námi í myndlist úr Lista­háskóla Íslands, í daglegu tali kölluð MA-sýningin.

Sýning meistara­nema í myndlist er sannarlega einn af vorboðunum ljúfu. Í ár er hún sett upp í Nýlista­safninu undir yfir­skriftinni Aldrei endir og stendur frá 8.–30. maí. Sýnendur eru þau Auður Aðal­steins­dóttir, Brian Wyse, Helen Svava Helga­dóttir og Romain Causel. Sýningar­stjóri er Sunna Ástþórs­dóttir. „Ég hef notið þeirrar ánægju að stíga inn í ferlið sem sýningar­stjóri. Við sýnendur höfum hist reglulega síðan í febrúar ásamt Bjarka Bragasyni, fagstjóra meistara­náms í myndlist. Það hefur verið einstak­lega frjótt samtal, gefandi og lærdóms­ríkt fyrir mig og vonandi lista­mennina líka,“ segir Sunna. Þegar Hillbilly hafði samband voru útskriftar­nemendurnir að leggja lokahönd á uppsetningu en þau gáfu sér þó nokkrar mínútur í Hillbilly, því hún er hún. Sýningar­stjórinn heldur vel utan um ferlið og svaraði líka spurningum Hillbillyar.

Í ár eru aðeins fjórir nemendur sem sýna, sem er kannski heldur óvanalegt. „Jú, þau eru færri en vanalega, hér eins og á svo mörgum öðrum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár