Loftslagsumfjöllun Kjarnans tilnefnd til verðlauna á Degi íslenskrar náttúru

Blaða­maður Kjarnans er til­nefndur til fjöl­miðla­verð­launa ráðu­neytis í tengslum við Dag íslenskrar nátt­úru.

Birgir Þór Harð­ar­son, blaða­maður á Kjarn­anum, hefur verið til­nefndur til fjöl­miðla­verð­launa umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyt­is­ins sem veitt verða föstu­dag­inn 15. sept­em­ber næst­kom­andi. Frá þessu er greint á vef Stjórn­ar­ráðs­ins.

[links]Birgir Þór er til­nefndur fyrir umfjöllun um lofts­lags­mál í Kjarn­anum. „Birgir hefur fjallað ötul­lega um lofts­lags­mál með umfjöllun um inn­lenda sem erlenda þróun lofts­lags­mála á síðum Kjarnans,“ segir í til­nefn­ing­unni.

Fjórir eru til­nefndir til verð­laun­anna. Auk Birgis eru það Áslaug Karen Jóhanns­dóttir, Stund­inni, fyrir frétta­skýr­ingar um lofts­lags­mál í apríl-júlí 2017, Bergljót Bald­urs­dóttir, Sunna Val­gerð­ar­dóttir og Arn­hildur Hálf­dán­ar­dóttir, hjá frétta­stofu RÚV, fyrir frétta­skýr­ingar um lofts­lags­mál og Ævar Þór Bene­dikts­son fyrir fjöl­breytta umfjöllun um nátt­úru og umhverf­is­mál í þátt­unum Ævar vís­inda­maður á RÚV.

Fjallað hefur verið ítar­lega um lofts­lags­mál í Kjarn­anum síðan í aðdrag­anda lofts­lags­ráð­stefn­unnar í París 2015. Áhersla hefur verið lögð á að veita íslenskum stjórn­völdum aðhald í þessum mála­flokki, greina frá þeim til­lögum og aðgerðum sem ráð­ist hefur verið í af hálfu stjórn­valda og upp­lýsa almenn­ing um stöðu mála.

Í dóm­nefnd fyrir verð­launin sitja Ragna Sara Jóns­dóttir for­maður, Jón Kaldal og Snæ­fríður Inga­dóttir.

Alla umfjöllun Kjarnans um lofts­lags­mál má finna á und­ir­vefnum kjarn­inn.is/lofts­lags­mál.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár