Delta-afbrigðið að vekja upp spurningar um „útrýmingarleiðina“ á Nýja-Sjálandi

Ráðherra COVID-mála í rík­is­stjórn Nýja-Sjálands segir delta-afbrigðið vekja upp „stórar spurn­ingar“ um fram­haldið. Yfir hund­rað sam­fé­lags­smit hafa greinst í land­inu á nokkrum dögum og harðar aðgerðir í gildi á meðan reynt er að „útrýma“ veirunni.

Jacinda Ardern forsætisráðherra Nýja-Sjálands.
Jacinda Ardern for­sæt­is­ráð­herra Nýja-Sjálands. Mynd: EPA

Chris Hipkins, sem er mennta­mála­ráð­herra Nýja-Sjálands og einnig með við­brögð lands­ins við heims­far­aldr­inum á sinni könnu, sagði í spjall­þætti þar í landi á sunnu­dag að delta-afbrigði kór­ónu­veirunnar og útbreiðsla þess í land­inu und­an­farna daga væri ef til vill að breyta stöðu mála varð­andi við­brögð Nýsjá­lend­inga við veirunni til lengri tíma.

Eftir að einn ein­stak­lingur greind­ist með delta-afbrigðið úti í sam­fé­lag­inu í Auckland fyrir liðna helgi var öllu skellt í lás og hæsta við­bún­að­ar­stigi lýst yfir í öllu land­inu þar til næsta föstu­dag og út mán­uð­inn í Auckland.

Það þýðir að allri þjón­ustu nema þeirri sem allra brýn­ust þykir gert að loka, skólum sömu­leiðis og helst er mælt með því að fólk hitti ekki nokkurn sem er utan þeirra eigin smit­búbblu. Nú eru virk smit í sam­fé­lag­inu, sem vitað er um, orðin alls 107 tals­ins. Verið er að skima um 10 þús­und manns sem talin eru mögu­lega hafa getað orðið útsett fyrir smiti.

Í við­tali í spjall­þætt­inum Q+A á stöð­inni TVNZ á sunnu­dag sagði Hipkins að mark­miðið með aðgerðum stjórn­valda væri enn hið sama, að reyna að lág­marka útbreiðslu veirunnar og útrýma henni ef kostur er. Smitin sem nú eru að grein­ast hafa verið rakin til far­þega frá Ástralíu sem var í sótt­kví á sótt­kví­ar­hót­eli yfir­valda og óljóst er hvernig smitið barst út í sam­fé­lagið.

Hið bráðsmit­andi delta-afbrigði er að sögn Hipkins að breyta stöð­unni og full­yrti hann að dæmi væru um að ein­stak­lingar væru að smita út frá sér innan við sól­ar­hring eftir að þeir sjálfir smit­uð­ust af veirunni. Það væri ekki í lík­ingu við það sem hefði áður sést í far­aldr­inum.

Ráð­herr­ann sagði delta-afbrigðið vekja upp „stórar spurn­ingar“ sem stjórn­völd í Nýja-Sjálandi þyrftu að fást við og hröð útbreiðslan þýddi að þær varnir sem til þessa hefðu verið að virka til að hamla útbreiðsl­unni myndu ef til vill ekki reyn­ast jafn áhrifa­ríkar og áður

Nú þyrfti að skoða lang­tíma­stefn­una. Samkvæmt nýsjá­lenska miðl­inum Stuff sagði Hipkins að mögu­lega yrði ekki hægt að halda sig við það mark­mið að útrýma veirunni úr sam­fé­lag­inu í ljósi þess hve hratt delta-afbrigðið breið­ist út. Það verður þó reynt.

Ardern stendur við útrýmingarleiðina

Samkvæmt end­ur­sögn Guardian af ummælum Hipkins eru þau nokkuð frá­vik frá því sem ráð­herrar í rík­is­stjórn Jacindu Ardern hafa viðrað opin­ber­lega til þessa.

Í dag sagði Ardern þó við frétta­menn að útrým­ing­ar­leiðin hefði virkað áður og að hún stæði við það að hún teldi hana að óbreyttu bestu leið­ina fyrir Nýsjá­lend­inga.

„Við getum bara horft á það sem er best fyrir okkur og við vitum að útrým­ing­ar­leiðin hefur virkað fyrir Nýja-Sjáland áður,“ er haft eftir Ardern í frétt nýsjá­lenska mið­ils­ins Herald.

[adspot]

Nýsjá­lend­ingar eru í óða­önn að bólu­setja, en kusu að kaupa ein­ungis bólu­efni Pfizer og BioNTech og hafa því ein­ungis náð að bólu­setja um 20 pró­sent lands­manna til þessa.

Rök­semdir stjórn­valda fyrir þeirri ákvörðun að kaupa bara bólu­efni Pfizer voru þær, sam­kvæmt fréttum frá því í mars, að það væri „sann­gjarnt“ að láta alla íbúa lands­ins hafa sama bólu­efnið.

Samkvæmt frétt Herald telur Ardern að bólu­setn­ing­ar­á­ætlun Nýja-Sjálands muni með tíð og tíma minnka þörf­ina fyrir frek­ari útgöngu­bönn og neyð­ar­ráð­staf­anir eins og eru nú í gildi.

Sem fyrr er útrým­ing veirunnar er mark­miðið, þannig að hægt verði að afnema allar tak­mark­anir í sam­fé­lag­inu að nýju. Ekki er útséð um hvernig það mun ganga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár