Stjórnarandstaða vill þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB 26. september

Formenn stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna hafa lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um fram­hald við­ræðna um aðild Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu. Þau vilja að fram fari þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla 26. sept­em­ber 2015 um hvort halda skuli áfram aðild­ar­við­ræðum Íslands við Evr­ópu­sam­bandið.

Í þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni kemur fram spurn­ing sem þing­menn­irnir vilja að verði borin upp í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni. Hún hljómar svona: „Vilt þú að Ísland taki upp þráð­inn í við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið með það að mark­miði að gera aðild­ar­samn­ing sem bor­inn yrði undir þjóð­ina til sam­þykktar eða synj­unar?“

Í þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni kemur fram að stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir hafi ólíka afstöðu til aðildar að Evr­ópu­sam­band­inu. „Hins vegar er sam­eig­in­leg nið­ur­staða flutn­ings­manna sem koma úr öllum flokkum stjórn­ar­and­stöð­unnar að þetta mál sé af slíkri stærð­argráðu að eðli­legt sé að leita leið­sagnar þjóð­ar­innar um fram­hald þess. Af þeim sökum er lögð þung áhersla á að til­lagan verði afgreidd á þessu þingi þannig að unnt verði að sækja þá leið­sögn.“

ASÍ vill þjóðaratkvæði


Mið­stjórn Alþýðu­sam­bands Íslands hefur einnig sent frá sér ályktun um Evr­ópu­mál og vill að haldin verði þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um málið. „Þetta er svo risa­vaxið álita­mál um fram­tíð­ar­mögu­leika okkar þjóðar, að það hlýtur að vera rétt­mæt krafa að þjóðin sjálf fái að segja sitt álit. Það hlýtur einnig að vera lág­marks­krafa til ráð­herra í rík­is­stjórn að þeir standi við lof­orð sem þeir marg end­ur­tóku fyrir kosn­ingar. Við hvað er rík­is­stjórnin hrædd?“

Í álykt­un­inni segir að útspil utan­rík­is­ráð­herra sé með slíkum ólík­indum að undrun sæti. „Í þeim ein­beitta ásetn­ingi sínum að slíta aðild­ar­við­ræðum Íslands við ESB huns­aði hann leik­regl­urnar, hann huns­aði sjálft Alþingi Íslend­inga sem hóf þess veg­ferð á sínum tíma.“

Í dag heldur áfram umræða um Evr­ópu­mál, og munn­lega skýrslu utan­rík­is­ráð­herra, á Alþingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár