Forseti vaknar til lífs

François Hollande.
François Hollande. Mynd: EPA

François Hollande er óvin­sæl­asti for­set­inn í sögu Frakk­lands. Kannski er það að ein­hverju leyti ósann­gjarnt. Því hann hefur svo sem ekki gert nein meiri­háttar glappa­skot (þrátt fyrir ýmsar óvæntar upp­á­komur í einka­líf­inu) - bara svona siglt sinn sjó. En honum hefur ekki tek­ist að leysa efna­hags­vand­ann eða minnka atvinnu­leysið eins og hann lof­aði fyrir síð­ustu kosn­ingar. Hollande virð­ist við­kunna­legur náungi, sagð­ist ætla að vera venju­legur for­seti eftir síð­ustu kosn­ingar þegar almenn­ingur var búinn að fá nóg af spað­alátum fyr­ir­renn­ara hans, Sarkozy. En svo gerð­ist ekk­ert. Hollande virt­ist of var­kár. Í skoð­ana­könn­unum sögð­ust ein­ungis 15% lands­manna treysta honum.

En lengi skal manninn reyna

En svo gekk árið 2015 í garð með miklum látum. Það byrj­aði með Charlie Hebdo árás­unum og síðan tók við eitt og annað og svo loks við­bjóð­ur­inn föstu­dag­inn 13. nóv­em­ber. Þetta hefur verið erf­ið­asta ár í lífi for­set­ans og eitt­hvert hrylli­leg­asta ár franska lýð­veld­is­ins á síð­ari tímum.

Á einni viku flaug Hollande um allan heim og ræddi við helstu þjóð­ar­leið­toga jarðar til þess að sam­ræma aðgerðir gegn Íslamska rík­inu. Og það tókst. Hann kom sögu­legri sam­þykkt í gegn hjá Örygg­is­ráði Sam­ein­uðu þjóð­anna til þess að ráð­ast gegn þess­ari vá og nú leikur hann lyk­il­hlut­verk á mik­il­væg­asta fundi mann­kyns­sög­unnar, Loft­lags­ráð­stefn­unni í París.

Á tveimur vikum hefur þessi maður tekið ham­skiptum, breyst úr lit­lausum og óvin­sælum for­seta í mik­il­væg­asta stjórn­mála­mann heims. Enda hafa óvin­sældir hans tekið algjörum stakka­skiptum. Um helm­ingur lands­manna seg­ist nú treysta Hollande – hér sann­ast hið marg­kveðna: ein vika í póli­tík er langur tími. Í nýrri skoð­ana­könnun segj­ast um 50% treysta honum til að glíma við flókin verk­efni og 27% aðspurðra eru mjög ánægð með störf for­set­ans. Sem er 20 pró­sentu­stiga aukn­ing. Allt á upp­leið.

Hörð viðbrögð gegn hryðjuverkum

For­set­inn var sjálfur við­staddur á Stade de France þegar fyrsta speng­ingin sprakk 13. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Hann var sam­stundis mættur á vett­vang, við Bataclan tón­leika­stað­inn, rétt eftir að árás­unum linnti og við­brögðin voru hörð og afdrátt­ar­laus:

„Þetta er stríð – Frakk­land er komið í stríð við hryðju­verka­menn og Íslamska ríkið og við munum vinna þetta stríð.“

Það er næstum því eins og Charles de Gaulle sé vakn­aður til lífs­ins á ný – aðrir benda á að þetta séu meira og minna sömu við­brögðin og hjá George W. Bush eftir hryðju­verka­árás­irnar 11. sept­em­ber í New York.

Sagan hefur sýnt að það sem á eftir fylgdi voru röð mis­taka. Loft­árásir í Sýrlandi, stríð og enn meira stríð sé því ekki endi­lega rétta leiðin til þess að kljást við litla og hættu­lega hryðju­verka­hópa og stilla til friðar í Frakk­landi. Til­gangur hryðju­verka­mann­anna hafi einmitt verið sá að ginna Frakka til frekar átaka í Sýrlandi til þess að geta vakið upp meiri glund­roða, hatur og ótta. En almenn­ingur virð­ist sáttur með þessi við­brögð for­set­ans. Hann lýsti yfir neyð­ar­á­standi og miklum aðgerðum inn­an­lands til þess að kljást við hryðjverkaógn­ina. Frakkar, þrátt fyrir allar lýð­veld­is­hug­sjónir sínar, virð­ast lað­ast að sterkum og kjaft­forum leið­togum.

Héraðskosningar í Frakklandi

Þótt vin­sældir Hollande og hans helsta sam­starfs­manns, hins víg­móða for­sæt­is­ráð­herra Manuel Valls, rjúki upp í skoð­ana­könn­unum er samt óvíst hvaða áhrif það hefur á gengi Sós­í­alista­flokks­ins í kom­andi hér­aðs­kosn­ingum sem fara fram þessa helgi og þá næstu. Vin­sældir Hollande tóku líka svona kipp eftir Charlie Hebdo árás­irnar en byrj­uðu svo fljótt að dala aftur. Og það er í raun fátt sem bendir til þess að sós­í­alistar ríði feitum hesti frá þeirri viður­eign.

Frakk­landi eru skipt upp í tutt­ugu og tvö héröð; fyrir dyrum stendur sam­ein­ing og fækkun á héröðum, niður í tólf til þess að minnka og ein­falda hið dýra og flókna stjórn­kerfi lands­ins.

Það eru alltaf tvö­faldar kosn­ingar í Frakk­landi til þess að tryggja meiri­hluta í stjórn. Þær breyt­ingar komu með nýrri stjórn­ar­skrá 1958 þegar nýtt lýð­veldi var stofnað eftir mik­inn glund­roða og stjórn­ar­kreppur. Það er í raun hinu tvö­falda kosn­inga­kerfi að þakka að Þjóð­fylk­ing­unni (Front National) hefur verið haldið frá völdum síð­ast­liðin ár. Hægri menn kjósa vinstri menn og á víxl til þess að hleypa ekki öfga­fólki að valda­stólum. Þetta kann þó að vera að breyt­ast.

Samkvæmt skoð­ana­könn­unum hefur Þjóð­fylk­ingin verið á miklu flugi, sér í lagi í norð­ur­hluta lands­ins þar sem þeir virð­ast ætla að ná hreinum meiri­hluta. Almenn­ingur virð­ist vera halla sér til hægri þegar þjóðar­ör­yggi og stríð eru í fyr­ir­rúmi. UMP – hægri banda­lagið hefur verið lagt niður og nýr hægri flokkur, Les Républicans, breið sam­fylk­ing hægri manna undir hand­leiðslu Nicolas Sarkozy hefur litið dags­ins ljós og virð­ist vera á mik­illi sigl­ingu í þessum kom­andi hér­aðs­kosn­ingum. Úrslitin gætu síðan verið vísir að því sem ger­ist í for­seta- og alþing­is­kosn­ingum á þar næsta ári.

Breytt stjórnarskrá

François Hollande ætlar að breyta stjórn­ar­skrá lands­ins til þess að geta fram­lengt neyð­ar­á­stand­inu sem ríkt hefur síðan 16. nóv­em­ber í sex mán­uði. Stjórn­ar­skráin gerir ekki ráð fyrir neyð­ar­lögum lengur en í þrjá mán­uði. Þetta er gert til þess að takast á við hryðju­verka­menn. Lög­reglan og leyni­þjón­ustan hefur meiri umsvif og heim­ildir til þess að fylgj­ast með og hand­taka fólk og halda því gæslu­varð­haldi.

Til þess að gera þetta þarf hann að sann­færa rík­is­stjórn sína, en ekki síst þingið sem þarf að sam­þykkja þessar til­lögur. Eins og staðan er núna þá virð­ist Hollande vera með allan þann stuðn­ing sem hann þarf; þjóð­ina, þingið og rík­is­stjórn­ina.

En neyð­ar­lög er ekk­ert venju­legt ástand. Er ásýnd hins opna og frjálsa Frakk­lands að breyt­ast? Hollande hefur þá þegar sagt að fórna verði frels­inu á kostnað örygg­is­ins.

Þremur moskum hefur verið lokað í Frakk­landi. Hugs­an­lega verður fleiri lokað á næst­unni. Bæna­her­bergjum og sam­komu­stöðum múslima þar sem talið er að öfga­fullar skoð­anir og inn­ræt­ingar þrí­fist hefur sömu­leiðis verið lokað.

„Þeim sem predika hatur verður ekki sýnd nein mis­kunn“, er haft eftir inn­an­rík­is­ráð­herra Frakk­lands, Bernard Cazeneuve. Hann talar því á svip­uðum nótum og yfir­maður sinn Hollande, sem virð­ist vera vakn­aður til lífs á ný við öll átökin og hryll­ing­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár