Hefur þú sofið hjá fleiri en þremur? – Aðeins pælt í kynlífsmenningu Íslendinga

Kynlíf er menning, í það minnsta tölum við um kynlífs­menningu og greinum hana á ýmsa kanta. Hugtök eru þess megnug að umbreyta menningu. Hversu margir hér á landi hugsa til dæmis út í hugtakið bodycount?

Kynlífs­menning getur verið alls konar, í margs konar myndum í mismun­andi menningar­heimum og -kimum. Á swing-klúbbi í þýskri borg þrífst kannski öðruvísi kynlífs­menning en hjá framhalds­skólanemum á Ísafirði eða heima hjá ráðsettum hjónum í Hlíðunum – og samt ekki!

Aldrei er að vita hvaða mynd kynlífs­menning tekur á sig hjá hverjum og einum. Í þeim efnum hættir okkur til að vera með fyrir fram gefnar hugmyndir.

Um daginn rakst undir­rituð á netfrétt í DV þar sem fjallað var um nýlega rannsókn í Bretlandi sem sögð var benda til þess að ákjósanlegur fjöldi fyrrum bólfélaga – að mati maka – megi helst ekki vera fleiri en þrír.

Er aðlaðandi að hafa sofið hjá sex?

Háskólarnir í Nottingham, Bristol og Swansea báru veg og vanda af rann­sókninni og niður­stöðurnar birtust í „Journal of Sex Research“.

Í rannsókn þessari kom víst í ljós að konum fannst ekki …

Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár