Hvað er Pútín að pæla?

Liðs­safn­aður rúss­neska hers­ins við landa­mæri Úkraínu að und­an­förnu hefur vakið margar spurn­ingar. Enginn veit svarið þótt margir ótt­ist að Rússar ætli sér að ráð­ast inn í Úkraínu. Forseti Rúss­lands þver­tekur fyrir slíkt.

Pútín Rússlandsforseti hefur margoft sagt, síðast í samtali við forseta Ungverjalands fyrir nokkrum dögum, að sá möguleiki að Úkraína fengi aðild að NATO myndi ógna öryggi Evrópu.
Pútín Rúss­lands­for­seti hefur margoft sagt, síð­ast í sam­tali við for­seta Ung­verja­lands fyrir nokkrum dögum, að sá mögu­leiki að Úkraína fengi aðild að NATO myndi ógna öryggi Evrópu. Mynd: RIA NOVOSTI

Ráð­villtir stjórn­mála­menn, diplómatar, hern­að­ar­sér­fræð­ingar og margir fleiri klóra sér þessa dag­ana í koll­inum og velta fyrir sér hvað Vladimir Pútín for­seta Rúss­lands gangi til. Að minnsta kosti 100 þús­und rúss­neskir her­menn, ásamt tækjum og tólum, eru nú við landa­mærin að Úkraínu. Enn­fremur eru um 30 þús­und rúss­neskir her­menn í Hvíta-Rúss­landi þar sem miklar her­æf­ingar standa nú yfir. Í til­kynn­ingu rúss­neska varn­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins segir að æfing­arnar séu „við­brögð við ögrunum utan­frá“.

Vilja aðild að NATO

Eftir hrun Sov­ét­ríkj­anna 1991 og upp­lausn Aust­ur­blokk­ar­innar svo­nefndu ríkti óvissu­á­stand. Rússar reyndu hvað þeir gátu til að halda ítökum sínum og áhrifum en sum þeirra landa sem áður höfðu til­heyrt Aust­ur­blokk­inni höll­uðu sér til vest­urs. Rússar fengu lítið að gert, áttu nóg með eigin vanda­mál. Úkraína var meðal þeirra fyrrum Sov­ét­ríkja sem lýstu yfir sjálf­stæði eftir upp­lausn­ina árið 1991, en lýsti jafn­framt yfir hlut­leysi í alþjóða­málum. Ríkið hefur, með hléum þó, aukið tengslin við ríki Evr­ópu­sam­bands­ins.

Eftir átök í aust­ur­hluta Úkraínu árið 2014, þar sem Rússar her­námu hluta svæð­is­ins og inn­lim­uðu Krím­skag­ann sama ár lýsti for­sæt­is­ráð­herra Úkraínu yfir að landið myndi sækj­ast eftir aðild að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu. Pútín Rúss­lands­for­seti hefur margoft sagt, síð­ast í sam­tali við for­seta Ung­verja­lands fyrir nokkrum dögum, að sá mögu­leiki að Úkraína fengi aðild að NATO myndi ógna öryggi Evrópu. Úkraína yrði „yfir­full af vopnum“ sagði Pútín.

Löngu fyrirséð hvar Rússar drægju mörkin

Hern­að­ar­sér­fræð­ingar hafa um ára­bil velt því fyrir sér hvernig Rússar myndu bregð­ast við ef svo færi að Úkraína fengi aðild að NATO. Einn þeirra sem fjallað hafa um þessi mál, í ræðu og riti, er Daninn Ole Wæver. Hann er pró­fessor í alþjóða stjórn­málum við Hafn­ar­há­skóla og þekktur víða um heim. Árið 2003 lýsti hann þeirri skoðun sinni að Rússar myndu ekki sætta sig við að Úkraína yrði aðild­ar­ríki NATO, þar drægju þeir mörkin. Hann færði ýmis rök fyrir þess­ari skoðun sinni og margir fleiri fræði­menn tóku síðan undir þessa skoðun hans.

Danska dag­blaðið Information birti sl. mið­viku­dag (9.febr­úar) langt við­tal við Ole Wæver og rifj­aði upp ummæli hans um Úkraínu frá árinu 2003. Þar ítrek­aði hann þá skoðun sína að Rússar muni gera allt til að koma í veg fyrir að Úkraína teng­ist NATO sterk­ari böndum, hvað þá að landið fái aðild að banda­lag­inu.

Neyðir Vesturveldin til að taka afstöðu

Ole Wæver segir að margir telji að Pútín vinni eftir fyr­ir­fram gerðri áætlun (masterplan). Þetta sé mis­skiln­ingur. Pútin fari fram eins og skák­maður, hann hafi ákveðið fyrsta leik­inn, liðs­safn­að­inn við landa­mærin. „Nokkrir leikir styrkja stöð­una og geta jafn­framt skapað sókn­ar­færi. Þetta er aðferð Pútíns. Með fjöl­mennu her­liði við landa­mæri Úkraínu hefur hann sett Vest­ur­veldin í stöðu, þar sem valið stendur um nokkra slæma kosti. Hann veit ekki endi­lega hvaða mögu­leiki, eða mögu­leikar verða fyrir val­inu. Þess vegna veit Pútín ekki hvernig þetta endar. Hann veit aftur á móti að hern­að­ar­að­gerðir af hálfu Vest­ur­veld­anna henta þeim ekki, kannski verði reynt að koma á fundum æðstu ráða­manna (ekki bara tveggja manna fundum) en slíkir fundir myndu gefa Rúss­landi aukið póli­tískt vægi“.

Vill að Rússland verði viðurkennt og virt sem stórveldi

Í við­tal­inu við Ole Wæver full­yrðir hann að það sem vaki fyrir Pútín sé að Rússland verði við­ur­kennt sem stór­veldi. Pútín vill gjarna verða aðal­leik­ari í skipan örygg­is­mála í Evrópu. Það yrði hins­vegar meira en að segja það, fyrir Banda­ríkin og NATO að við­ur­kenna Rússland sem stór­veldi, ekki síst í ljósi for­dæm­ingar Vest­ur­landa á hern­að­ar­að­gerðum Rússa í Georgíu árið 2008 og Úkraínu 2014.

Engar opnar dyr

Í skrif­legu svari til stjórn­ar­innar í Moskvu í lið­inni viku sögðu Banda­ríkin og NATO að ekki verði hvikað frá því sem kall­ast „opnar dyr“ varð­andi aðild að NATO. Þar er vísað til áhuga Georgíu og Úkraínu fyrir aðild að banda­lag­inu. Ole Wæver seg­ist aldrei hafa tekið þetta með opnu dyrnar alvar­lega. „Það versta sem NATO gæti lent í væri að ráð­ist yrði á aðild­ar­ríki og NATO ætti að komi til varnar. Þetta er ástæða þess að Georgía og Úkraína eru ekki aðilar að NATO, banda­lagið gæti ekki varið þessi lönd. Það eru engar opnar dyr og aðild er ekki eitt­hvað sem hver sem er getur gert kröfu til.“

Tveir möguleikar

Að mati Ole Wæver eru tveir mögu­leikar í mynd­inni. Annar, og sá verri, er ef Rússar færu með her inn í aust­ur­hluta Úkraínu. Þá yrði gripið til efna­hags­þving­ana gegn Rússum. Þær kæmu sér illa fyrir Rússland og Evrópu en skiptu Banda­ríkja­menn litlu. Hinn mögu­leik­inn er að ekk­ert ger­ist og spennan sem nú er uppi gufi hægt og rólega upp. Þá geta allir sagst vera sig­ur­veg­arar, Rússar hreykja sér af því að hafa komið í veg fyrir að Úkraína gangi í NATO og sömu­leiðis getur NATO gumað sig af því að ekk­ert hafi orðið af inn­rás Rússa.

Hvað getur Pútín gert?

Að mati rann­sókn­ar­stofn­un­ar­innar Center for Strategic & International Studies (CSIS) hefur Pútín ýmsa mögu­leika í stöð­unni sem nú er uppi:

Í fyrsta lagi: Aðstoð við aðskiln­að­ar­sinna. Ef ein­hvers konar samn­ingar nást milli Vest­ur­landa og Rúss­lands getur Pútín dregið hluta her­liðs síns frá landa­mær­unum en áfram stutt aðskiln­að­ar­sinna sem hafa yfir­ráð yfir hluta Austur-Úkraínu og eru hlynntir Rússum.

Í öðru lagi: Frið­ar­sveitir. Rússar myndu senda ,,frið­ar­sveitir“ inn á þau svæði sem hafa lýst yfir sjálf­stæði, Donetsk og Luhansk. Þær yrðu til staðar um óákveð­inn tíma, það er að segja þangað til samn­ingar um form­legt vopna­hlé lægju fyrir.

Í þriðja lagi: Rússar myndu her­taka aust­ur­hluta Úkraínu allt að ánni Dnepr, það er fara fleiri hund­ruð kíló­metra inn í landið. Til­gang­ur­inn með þessu væri annað hvort að inn­lima hluta Úkraínu í Rússland eða nota svæðið sem lið í samn­ingum. Þetta yrði meiri­háttar hern­að­ar­að­gerð og gæti kostað mikið mann­fall.

Í fjórða lagi: Rússar legðu undir sig úkra­ínskt land­svæði allt að ánni Dnepr. En legðu sömu­leiðis undir sig þann hluta Suður-Úkraínu sem liggur að Svarta­hafi. Þannig fengju þeir betri aðgang að Krím­skaga. Þetta svæði yrði síðan inn­limað í Rússland. Þetta myndi reyn­ast Úkraínu mjög erfitt.

Í fimmta lagi: Í stað þess að leggja undir sig Austur-Úkraínu, sem gæti kostað harða bar­daga myndi her Rússa sækja suður á bóg­inn og leggja undir sig land­svæði með­fram Svarta­hafi allt að landa­mærum Búlgaríu. Þá myndu Rússar loka fyrir aðgang Úkraínu að hafi.

Í sjötta lagi: Rússar myndu her­setja Úkraínu eins og hún leggur sig og sam­eina Rúss­landi. Þeir myndu njóta aðstoðar Hvíta- Rúss­lands. Þetta yrði mjög umfangs­mikil aðgerð og þótt rúss­neski her­inn hafi á nær öllum sviðum yfir­burði yfir her Úkraínu myndi þetta reyn­ast mjög erfitt. Og hvernig yrði eft­ir­leik­ur­inn? Úkraína er 600 þús­und fer­kíló­metrar (Ísland er 104 þús­und) og íbú­arnir rúmar 40 millj­ónir.

Tíminn vinnur gegn Rússum

Ef Pútín ætlar sér að ráð­ast inn í Úkraínu getur hann ekki beðið mjög lengi. Það er í mörg horn að líta varð­andi 100 þús­und manna her­lið, Úkraína fær með degi hverjum aukna aðstoð og svo er það veðrið. Skrið­drekar og far­ar­tæki Rússa eru engin létta­vara og þeim hentar best að fara um frosna jörð. Í byrjun mars byrjar að hlýna á þessum slóðum og þá verður land sem þung far­ar­tæki ferð­ast um eitt for­ar­svað. Allt vinnur þetta gegn Rússum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár