Tveir lífeyrissjóðir, Almenni lífeyrissjóðurinn og Birta, bjóða nú upp á verðtryggða breytilega vexti sem eru undir tveimur prósentum. Almenni lífeyrissjóðurinn býður upp á bestu slíku vextina, eða 1,84 prósent, og lánar sjóðsfélögum sínum sem greitt hafa í sjóðinn síðustu þrjá mánuði fyrir allt að 70 prósent af kaupverði. Birta, sem er fjórði stærsti lífeyrissjóður landsins, lánar hins vegar þeim sjóðsfélögum sem greitt hafa í sjóðinn síðustu þrjá mánuði fyrir allt að 65 prósent af kaupverði á 1,97 prósent verðtryggðum breytilegum vöxtum.
[adspot]Lífeyrissjóður verzlunarmanna, sem er næst stærsti lífeyrissjóður landsins, hækkaði verðtryggða breytilega vexti sína úr 2,06 prósent í 2,26 prósent um síðustu mánaðamót, eða um tæp tíu prósent. Ákvörðun um það var tekin á stjórnarfundi 24. maí síðastliðinn og samhliða var ákveðið að hætta að að láta ávöxtunarkröfu ákveðins skuldabréfaflokks stýra því hverjir vextirnir eru og í stað þess myndi stjórn sjóðsins ákveða þá. Þegar þessi ákvörðun var tekin voru verðtryggðir vextir Lífeyrissjóð verzlunarmanna þeir lægstu sem íbúðarkaupendum stóðu til boða. Eftir hækkunina í lok síðustu viku eru verðtryggðir breytilegir vextir sjóðsins þeir fimmtu hagstæðustu sem í boði eru. Lífeyrissjóðirnir Stapi og Frjálsi bjóða báðir betri kjör en Lífeyrissjóður verzlunarmanna auk Almenna lífeyrissjóðsins og Birtu.
Verðbólga er sem stendur 3,1 prósent.
Á leið fyrir dómstóla
Ákvörðun stjórnar Lífeyrissjóðs verzlunarmanna um að hækka vextina og því hvernig þeir eru ákveðnir reyndist afdrifarík vegna þess að stjórn VR, sem tilnefnir helming stjórnarmanna í sjóðnum, ákvað að leggja fram tillögu í fulltrúaráði VR um að afturkalla umboð allra stjórnarmanna í lífeyrissjóðnum. Ástæðan var sögð algjör trúnaðarbrestur milli stjórnarmanna sem VR skipar og stjórnar félagsins vegna ákvörðunar sjóðsins um að hækka breytilega verðtryggða vexti sem sjóðsfélögum bjóðast til húsnæðiskaupa um tæp tíu prósent.
Umboðið var afturkallað á fundi sem haldinn var í fulltrúaráðinu fimmtudaginn 20. júní með 20 atkvæðum gegn tveimur.
Fjármálaeftirlitið greip hins vegar inn í þá atburðarás og komst að þeirri ákvörðun 3. júlí síðastliðinn að stjórnarmenn sem tilkynntir voru til þess í mars síðastliðnum væru enn gildandi stjórnarmenn.
[adspot]VR hefur stefnt Fjármálaeftirlitinu og Lífeyrissjóði verzlunarmanna til ógildingar á þeirri stjórnvaldsákvörðun. Héraðsdómur Reykjavíkur samþykkti í síðustu viku að málið fengi flýtimeðferð.
Óverðtryggðir vextir komnir undir fimm prósent
Þrátt fyrir að hafa hækkað ódýrustu verðtryggðu vexti sem sjóðurinn býður sjóðsfélögum sínum upp á þá hefur Lífeyrissjóður verzlunarmanna lækkað fasta óverðtryggða vexti sína mjög skarpt. Um miðjan síðasta mánuð var tilkynnt um að þeir myndu fara úr 6,12 prósentum í 5,14 prósent, sem þýðir um 16 prósent lækkun.
Eftir þá breytingu eru þeir vextir hagstæðustu föstu óverðtryggðu vextir sem standa íslenskum íbúðarkaupendum til boða. Birta býður hins vegar upp á betri breytilega óverðtryggða vexti til þeirra sjóðsfélaga sem uppfylla skilyrði til lántöku. Þeir geta fengið allt að 65 prósent af kaupverði á 4,85 prósent vöxtum hjá þeim sjóði. Sú breyting átti sér stað í byrjun júlí.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.












































Athugasemdir