Norrænu knattspyrnusamböndin sækja um að halda HM kvenna 2027

Norrænu knatt­spyrnu­sam­böndin, þar með talið KSÍ, hafa ákveðið að sækja sam­eig­in­lega um að halda heims­meist­ara­mót kvenna árið 2027. Fram­kvæmda­stjóri KSÍ segir að sam­bandið sé fullt til­hlökk­unar og að þau ætli sér að taka fullan þátt í ferl­inu.

Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta.
Íslenska kvenna­lands­liðið í fót­bolta. Mynd: KSÍ

Norrænu knatt­spyrnu­sam­böndin hafa ákveðið að sækja sam­eig­in­lega um að halda heims­meist­ara­mót kvenna árið 2027. Tilkynnt var um þetta á Norð­ur­landa­ráðs­þingi í gær og stað­festir Klara Bjartmarz, fram­kvæmda­stjóri Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands (KSÍ), þessa ákvörðun í sam­tali við Kjarnann. Hún segir að KSÍ sé mjög stolt af því að taka þátt í þessu verk­efni með hinum fimm sam­bönd­unum.

Undirbúningurinn staðið yfir í þrjú ár

Klara segir að að nor­rænu knatt­spyrnu­sam­böndin sex, að KSÍ með­töldu, hafi verið að vinna að þessu verk­efni í að verða þrjú ár núna. Sam­böndin hafa staðið að nákvæmri grein­ing­ar­vinnu á mögu­legum móta­höldum og að nið­ur­staða sam­band­anna hafi verið að sækja um að halda heims­meist­ara­mótið í knatt­spyrnu kvenna árið 2027

Að mati sam­band­anna er það mót sem þau telja sig ráða hvað best við þegar litið er til stærðar móts og leik­valla.

Klara segir að öll sex knatt­spyrnu­sam­böndin séu að baki umsókn­ar­fer­ils­ins þó að stóru þjóð­irnar dragi vissu­lega vagn­inn. Hún segir það jafn­framt ánægju­legt hve ein­huga sam­böndin séu um þessa umsókn og að nú fundi sam­tökin um hvaða vellir það eru sem löndin geta lagt til.

Hún segir að það sé hins vegar ekki komið í ljós hvaða kröfur FIFA gerir til að mynda til fjölda og stærðar leik­valla fyrir heims­meist­ara­mótið 2027.[adspot]

Ísland ætlar sér að taka fullan þátt

Klara segir enn fremur að umsókn nor­rænu sam­tak­anna muni byggja á nor­rænum gildum um jafn­rétt­is­mál og umhverf­is­mál og sýna skýrt hvað Norð­ur­löndin standa fyrir. Hún bendir þó á að um erf­iða sam­keppni sé að ræða en alls sóttu sóttu sjö þjóðir um að halda mótið árið 2024.

Hún segir það aftur á móti ljóst að eins og staðan er núna þá séu engir leik­vellir hér á landi sem gætu komið til greina sem keppn­is­vellir á heims­meist­ara­mót­inu. Hún segir að Ísland og Færeyjar ætli sér þó að taka fullan þátt í und­ir­bún­ings­ferl­inu og fram­kvæmd móts­ins ef komi til þess.

Að lokum segir hún að KSÍ sé mjög stolt af því að taka þátt í þessu verk­efni með hinum sam­bönd­unum. „Við erum full til­hlökk­unar og vonum að þetta gangi allt saman upp,“ segir Klara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár