Tíu staðreyndir um Plain Vanilla ævintýrið

Tilkynnt var um það í gær að QuizUp-leik­ur­inn hefði verið seldur úr landi fyrir 850 millj­ónir. Plain Vanilla ævin­týrið er ein­stakt í íslenskri við­skipta­sögu og Kjarninn rekur það hér í tíu punktum.

  1. Plain Vanilla var stofnað síðla árs 2010 af Þor­steini B. Frið­riks­syni. Til að byrja með voru starfs­menn þess þrír. Fyrsti leikur fyr­ir­tæk­is­ins var The Moogies, sem var stíl­aður inn á ung börn, og var gef­inn út haustið 2011. Leik­ur­inn fékk mjög góða dóma en gekk illa og skildi fyr­ir­tækið eftir í mínus.
  2. Þor­steinn og félagar gáfust þó ekki upp og fóru að vinna að annarri hug­mynd, spurn­inga­leik í appi með miklu fram­boði af efn­is­flokkum og leiðum til að bjóða upp á sam­skipti milli þeirra sem spil­uðu leik­inn. Plain Vanilla menn voru stór­huga og Þor­steinn fór til San Francisco til að leita að fjár­magni fyrir hug­mynd­ina hjá stærstu sprota­fjár­fest­inga­sjóðum leikja­iðn­að­ar­ins. Með hjálp frá Davíð Helga­syni for­stjóra Unity Technologies og síðar hlut­hafa í Plain Vanilla, tókst honum að tryggja sér fyrsta umfang af fjár­fest­ing­arfé.
  3. Leik­ur­inn fékk nafnið QuizUp og fór í loftið 7. nóv­em­ber 2013. Áður en hann kom út fjár­festi banda­ríski fjár­fest­ing­ar­sjóð­ur­inn Sequoia Capital í Plain Vanilla fyrir 2 millj­ónir dala, eða um 240 millj­ónir íslenskra króna. Sequoia Capital sér­hæfir sig í því að finna áhuga­verð tækni­fyr­ir­tæki á frum­stigi og var sjóð­ur­inn einn af fyrstu fjár­fest­unum í Apple, Google, Oracle, Cisco, Dropbox, Instagram, PayPal, Yahoo, Linkedin, Youtube og Airbnb. Alls lögðu áhættu­fjár­festar 5,6 millj­ónir dala í Plain Vanilla áður en QuizUp kom út. Plain Vanilla var fyrsta íslenska fyr­ir­tækið sem fékk fjár­magn úr Sílíkondalnum.
  4. Vin­sældir QuizUp urðu strax miklar. Á nokkrum dögum tókst leiknum að verða vin­sælasta app í heimi og leik­ur­inn var þýddur á fjöl­mörg tungu­mál. Notendur voru orðnir ein milljón eftir sex daga. Frá því að QuizUp var fyrst gef­inn út hefur leiknum verið hlaðið niður um 80 milljón sinnum. Eitt þeirra vanda­mála sem Plain Vanilla stóð frammi fyrir með QuizUp var að notk­unin helst ekki mikil hjá þorra not­enda. Kjarninn sendi Þor­steini fyr­ir­spurn um hver fjöldi dag­legra eða mán­að­ar­legra not­enda væri haustið 2014. Í svari hans kom fram að Plain Vanilla gæfi þær ekki út.
  5. Fyr­ir­tækið óx hratt á þessum tíma og vorið 2014 voru starfs­menn þess þegar mest var tæp­lega 80. Plain Vanilla hafði þá flutt höf­uð­stöðvar sínar í mun stærra hús­næði á Lauga­vegi 77, allt starfs­fólk var græjað upp með nýjum Apple-tækjum, fékk eins mikið af kókó­mjólk og það vildi og kort í lík­ams­rækt að eigin vali á kostnað Plain Vanilla. Mötu­neyti fyr­ir­tæk­is­ins var eitt það besta á land­inu og allt umhverfi tók mið af því að um væri að ræða nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki að banda­rískri fyr­ir­mynd.
  6. Skömmu eftir að QuizUp kom út reyndi banda­ríska tölvu­leikja­fyr­ir­tækið Zynga að kaupa Plain Vanilla á um 100 millj­ónir dala, tæp­lega tólf millj­arða króna á þávirði. Til­boð­inu var hafnað og þess í stað var sótt nýtt þriggja millj­arða króna áhættu­fjár­magn í við­bót­ar­fjár­fest­ingu frá hlut­höfum, þar á meðal fjár­fest­ing­ar­sjóð­anna Sequioa Capital og Tencent Holdings, tveggja risa í nýsköp­un­ar­heim­in­um. Þor­steinn seldi á sama tíma hluta af eign sinni í Plain Vanilla og fékk greidda stofn­enda­þóknun. Samkvæmt frétt Við­skipta­blaðs­ins um málið fékk hann um 583 millj­ónir króna í sinn hlut.
  7. Ber­sýni­leg­asti gall­inn á við­skipta­mód­eli QuizUp var sá að tekju­módel var ekki til staðar þegar leik­ur­inn fór í loftið. Þor­steinn benti á þessum tíma á að það væru helst íslenskir fjöl­miðlar sem spurðu hvernig leik­ur­inn ætti að skapa tekjur. Í Banda­ríkj­unum væru þær vanga­veltur minni eða ekki til stað­ar. Þor­steinn vís­aði þar til þeirrar stefnu sem var ríkj­andi innan nýsköp­un­ar­geirans á þessum árum. Það var algengt við­horf að upp­bygg­ing nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækja fælist á upp­hafs­stigum fyrst og síð­ast í eins mik­illi fjölgun not­enda og hægt var. Þessi stefna var undir miklum áhrifum frá vel­gengni Facebook og náði ákveðnum hátindi um það leyti sem QuizUp kom út í lok árs 2013. Þetta við­horf er ekki nærri jafn ríkj­andi í nýsköp­un­ar­geir­anum í dag.
  8. Það reynd­ist þraut­inni þyngri að finna út hvernig QuizUp átti að græða pen­inga og síðla árs 2014 stóð fyr­ir­tækið á tíma­mótum. Þá hafði verið tekin ákvörðun um að breyta umhverfi leiks­ins í átt að sam­skipta­miðli. Hug­myndin byggði á því að QuizUp gæti tengt saman fólk með sömu áhuga­mál, ekki ein­göngu til að keppa í spurn­inga­leikjum um áhuga­mál sín heldur einnig á dýpri grunni innan sam­skipta­mið­ils. Vonir stóðu til að nýtt umhverfi myndi skapa grund­völl til að hafa af leiknum tekj­ur. Breytt útgáfa QuizUp fór í loftið í maí 2015, eftir nokkrar tafir. Auk þess var búin til vara fyrir fyr­ir­tæki, sem hét QuizUp at Work. Tól­inu var ætlað að „fræða, þjálfa og skapa góðan starfsanda“ að því er sagði í frétta­til­kynn­ingu um QuizUp at Work. Báðar þessar til­raunir, að breyta QuizUp í sam­fé­lags­miðil og QuizUp at Work, skil­uðu ekki þeim árangri sem von­ast var til. Tekj­urnar létu enn standa á sér.
  9. Haustið 2015 var síðan til­kynnt um sam­komu­lagið við NBC sjón­varps­stöð­ina um gerð spurn­inga­þátta byggða á QuizUp. Allt var lagt undir. Samhliða átti sér stað mikil hag­ræð­ing­ar­ferli þar sem starfs­mönnum var fækkað og áherslum breytt. Tölvu­leikja­fram­leið­and­inn Glu Mobile kom að rekstr­inum í jan­úar 2016 með yfir­töku í náinni fram­tíð í huga. Í lok ágúst var hins vegar til­kynnt um að NBC hefði hætt við að fram­leiða þætt­ina og að Plain Vanilla myndi hætta starf­semi. Öllu starfs­fólki sem enn var hjá fyr­ir­tæk­inu, alls 36 manns, var sagt upp. Hluti þess hélt þó áfram störfum við að vinda ofan af starf­sem­inni og selja alla inn­an­stokks­muni sem safnað hafði verið á skrif­stofur fyr­ir­tæk­is­ins.
  10. Í gær, 22. des­em­ber, var svo greint frá því að Plain Vanilla hefði náð sam­komu­lagi við Glu Mobile um að selja QuizUp leik­inn til þess. Heild­ar­virði samn­ings­ins er um 7,5 millj­ónir dala, um 850 millj­ónir króna, en kaup­verðið er að hluta greitt með upp­gjöri skulda milli fyr­ir­tækj­anna tveggja. Í kjöl­farið mun Plain Vanilla á Íslandi alfarið hætta starf­semi. Í til­kynn­ingu kom fram að salan muni gera Plain Vanilla kleif að standa skl á öllum skuld­bind­ingum sínum við starfs­menn og lán­ar­drottna. Hlut­hafar, sem tóku áhættu með fjár­fest­ingu í fyr­ir­tæk­inu, tapa hins vegar sínu. Eftir stendur að Plain Vanilla tókst að laða til Íslands fjár­magn frá leið­andi nýsköp­un­ar­sjóðum sem höfðu aldrei áður horft til Íslands, að búa til vöru sem tugir millj­óna manna um heim allan not­uðu, tugir hug­vits­starfa urðu til og fjöldi Íslend­inga fengu ómet­an­lega reynslu af tækni- og nýsköp­un­ar­heim­inum. Sú reynsla mun hafa var­an­leg áhrif á íslensku nýsköp­un­ar­sen­una.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár