Nýjar víglínur að teiknast upp á átta flokka Alþingi

Þrír flokkar virð­ast vera að mynda sam­starfs­blokk yfir miðju stjórn­mál­anna sem myndir gera henni kleift að vinna með annað hvort Vinstri grænum eða Framsókn í rík­is­stjórn eftir næstu kosn­ingar

Að óbreyttu verður næst kosið til Alþingis vorið 2021. Haldist sú tíma­lína mun það verða í fyrsta sinn sem rík­is­stjórn hefur setið út það tíma­bil sem hún ætl­aði sér í krafti þess umboðs sem kjós­endur veittu henni frá því að rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur haltr­aði yfir lín­una 2013.

Síðustu kosn­ingar hafa allar verið haldnar í kjöl­far mik­illa póli­tískra tíð­inda og nið­ur­stöð­urnar sem hafa komið upp úr kjör­köss­unum hafa skilað þingi sem er ólíkt því sem áður hefur þekkst. Árið 2016 voru sjö flokkar kjörnir á þing. Árið síðar urðu þeir átta. Sama var uppi á ten­ingnum í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum 2018.

Stjórn­mála­menn eru að átta sig á því betur og betur að þetta er sá veru­leiki sem mun að öllum lík­indum verða normið í íslenskum stjórn­málum næstu miss­erin hið minnsta. Tími sterkra tveggja flokka rík­is­stjórna er lið­inn, að minnsta kosti um sinn, og aukin fjöl­breytni í sam­setn­ingu þjóð­ar­innar, minni tryggð við stjórn­mála­flokka og hraðar sam­fé­lags­breyt­ingar mun áfram hafa þær afleið­ingar að sífellt fleiri muni keppa um athygli kjós­enda.

Þeir flokkar sem sitja á þingi hafa vissu­lega gert sitt til að auka for­skot sitt á aðra sem eru ekki þegar komnir inn fyrir þrösk­uld­inn. Það birt­ist helst í gríð­ar­legri aukn­ingu á greiðslum úr rík­is­sjóði til stjórn­mála­flokka. Þær greiðslur voru hækk­aðar um 127 pró­sent á milli áranna 2017 og 2018 og í ár skipta flokk­arnir átta sem eiga full­trúa á Alþingi með sér 744 millj­ónum króna. Auk þess hefur starf­semi þeirra verið styrkt veru­lega með auknum fram­lögum til ráðn­ingu aðstoð­ar­manna.

Litið á kjörtímabilið sem uppbyggingarfasa fyrir það næsta

Af sam­tölum við áhrifa­fólk í stjórn­málum dags­ins í dag er ljóst að margir eru að spila leik­inn til lengri tíma ekki síður en að takast á við mál­efni dags­ins í dag. Margir eru að horfa til næstu kosn­inga. Og blokkir flokka sem eiga fleiri sam­eig­in­lega fleti en aðrir eru klár­lega að mynd­ast.

Við­mæl­endur innan Sam­fylk­ingar og Við­reisnar fela ekki þá skoðun sína að þeir líti á yfir­stand­andi kjör­tíma­bil sem tæki­færi til að byggja flokk­ana upp og gera alvöru atlögu að valda­stólum vorið 2021, þá í sam­floti með Pírötum.

Það vakti tölu­verða athygli nýverið þegar Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, opin­ber­aði hvar vilji hans lægi við stjórn­ar­myndun í við­tali við Mannlíf. Þar sagði hann: „Ég held að við gætum náð mjög mörgum skemmti­legum og góðum málum á dag­skrá ef við myndum mynda rík­is­stjórn frá miðju til vinstri þar sem Sam­fylk­ingin væri kjöl­festu­flokkur og við hefðum svo Við­reisn og Pírata öðrum megin við okkur og Vinstri græn hinum megin við okk­ur.“

Logi ræddi þetta einnig í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í nóv­em­ber á síð­asta ári. Þar sagði hann að sér hefði lengi þótt ákjós­an­leg sú til­hugsun að flokkar færu með­vit­aðri og upp­lýst­ari inn í kosn­ingar og gæfu kjós­endum sínum skýr­ari skila­boð um hvað þeir ætli að gera. Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, tók undir með honum og sagði tvo ása vera til staðar í íslenskum stjórn­málum. „Það er frjáls­lyndi-ásinn. Svo er íhaldsami-ásinn, en það má líka kalla hann Trump-ásinn. Hann er birt­ing­ar­mynd þess sem ákveðnir flokkar, eða hópar innan ákveð­inna flokka, vilja standa frammi fyrir. Ég vona að íslenskir kjós­endur fari að átta sig á nákvæm­lega þessu. Það hefur oft verið gaman í póli­tík en þetta eru mjög áhuga­verðir og skemmti­legir tímar.“

Þessar yfir­lýs­ingar end­ur­spegla það sýni­lega sam­starf stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna þriggja sem þegar á sér stað, og þá lítið földu stað­reynd að uppi­staða þing­flokks Vinstri grænna ætti að geta átt ágætt sam­starf með þeim, með sama hætti og á sér stað í meiri­hluta borg­ar­stjórnar Reykja­víkur, þar sem hið nýja R-lista módel situr við völd.

Miðflokkurinn einangraði sjálfan sig

Það nýtil­komna sjálfs­traust end­ur­speglar stöð­una sem birst hefur í könn­unum það sem af er kjör­tíma­bili þar sem sam­eig­in­legur stuðn­ingur við Sam­fylk­ingu, Viðreisn og Pírata hefur vaxið úr 28 pró­sent í 40,9 pró­sent. Sam­eig­in­legt fylgi þeirra hefur ekki verið hærra á kjör­tíma­bil­inu og allir flokk­arnir þrír eru tölu­vert yfir kjör­fylgi.

Sam­an­lagt myndu þessir þrír þing­flokkar lík­lega bæta við sig um tíu þing­mönnum miðað við þær tölur og vera með 27. Það þyrfti því ein­ungis fimm til við­bótar til að vera með meiri­hluta á þingi.

Önnur ástæða þess að hin óform­lega sam­starfs­blokk er að verða form­legri er að finna í Klaust­ur­mál­inu. Með til­urð þess, og ekki síður því hvernig Mið­flokk­ur­inn hefur ákveðið að takast á við það, hefur flokk­ur­inn verið jað­ar­settur í íslenskum stjórn­málum. Fylgi hans mæld­ist 6,5 pró­sent í síð­ustu könnun Gallup og hefur því nán­ast helm­ing­ast frá síð­ustu kosn­ingum.

Enginn núver­andi stjórn­ar­and­stæðu­flokkur mun starfa með þeim í rík­is­stjórn og afar ólík­legt verður að telj­ast að Sigurður Ingi Jóhanns­son, sem fór gegn Sigmundi Davíð í for­manns­slag haustið 2016, og Lilja D. Alfreðs­dóttir, sem hefur kallað þá sem sátu á Klaustur bar ofbeld­is­menn sem eigi ekki að hafa dag­skrár­vald í sam­fé­lag­inu, muni ljá því máls að mynda með þeim stjórn ef slíkur mögu­leiki myndi opn­ast. Ólíklegt er auð­vitað ekki það sama og ómögu­legt, og muna verður að fras­inn „vika er langur í póli­tík“ er mikið not­aður vegna þess að hann er sannur.

Ef Framsókn er ekki mögu­leiki þá stendur eftir stærsti flokkur lands­ins, Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sem mælist með 23,4 pró­sent fylgi og myndi aldrei geta borið Mið­flokk­inn til valda einn.

Sjálfstæðisflokkurinn seigur en sífellt í þrengri stöðu

Leið Sjálf­stæð­is­flokks­ins inn í enn eina rík­is­stjórn­ina virð­ist því fyrst og fremst liggja í gegnum það að við­halda núver­andi stjórn­ar­mynstri. Flokk­ur­inn hefur sýnt af sér ótrú­lega seiglu við að halda áhrifum sam­hliða því sem fylgi hans hefur fallið mjög frá því sem það var á árum áður. Hann hefur verið hryggjar­stykki í öllum rík­is­stjórnum sem mynd­aðar hafa verið hér­lendis utan einnar frá árinu 1991, eða í tæp­lega þrjá ára­tugi.

Styrk­leikar Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa legið í því að hann er, þrátt fyrir 23,7-29 pró­sent fylgi í síð­ustu fjórum kosn­ingum, enn stærsti flokkur lands­ins og ómögu­legt hefur verið að mynda tveggja til þriggja flokka rík­is­stjórnir án hans frá 2013. Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, sagði í við­tali við Þjóðmál í fyrra­haust að tæki­færi flokks­ins hefði legið í því að vera kjöl­festa á umbrota­tímum. Hann taldi ekki ómögu­legt að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn gæti náð fyrri styrk.

Bjarni slær á vangaveltur um að hann sé að hætta

Mikið hefur verið rætt um það á meðal stjórn­mála­manna allra flokka hvort að Bjarni muni leiða Sjálf­stæð­is­flokk­inn í gegnum aðrar kosn­ingar. Hann hefur verið for­maður flokks­ins í tíu ár í mars og þótt hann hafi sýnt mikla póli­tíska seiglu með því að halda flokknum við völd, skilað oftar en ekki betri nið­ur­stöðu úr kosn­ingum en kann­anir gáfu til kynna og sé nú óskor­aður leið­togi eftir afar erfið fyrstu ár á for­manns­stóli, þar sem Hanna Birna Krist­jáns­dóttir gerði sér­stak­lega harða atlögu að honum, þá hefur Bjarni farið í gegnum fleiri póli­tíska brim­skafla en flestir.

Margir við­mæl­endur telja aug­ljóst að Bjarni vilji að Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, vara­for­maður flokks­ins, verði eft­ir­maður hans á for­manns­stóli. Það sjá­ist til að mynda á því að hann hafi gert hana að ráð­herra í tveimur rík­is­stjórnum fram yfir odd­vita kjör­dæmis hennar. Ekki er þó víst að Þórdís sé val allra í flokknum og óljóst er um hversu sterkt bak­land hennar er til að verða fyrsti kven­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, ákveði Bjarni að stíga til hliðar í nán­ustu fram­tíð.

Bjarni sjálfur gaf lítið fyrir slíkar bolla­legg­ingar í áður­nefndu við­tali og sagð­ist ekki vera far­inn að hugsa um að hætta. Svarið var þó ekki meira afger­andi en svo að hann sagð­ist ætla að „geyma mér allar vanga­veltur um það hversu lengi ég held áfram.“

Staðan er samt sem áður svo að fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefur farið hríð­lækk­andi í for­mennsku­tíð hans. Flokknum hefur gengið sér­stak­lega illa að höfða til yngra fólks og það er þróun sem honum hefur ekki tek­ist að snúa við í for­mann­s­tíð Bjarna.

Ríkisstjórnin fallin ef kosið yrði í dag

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina hefur verið að þok­ast lít­il­lega upp síð­ust vikur, sér­stak­lega eftir Klaust­ur­málið. Nú segj­ast 49 pró­sent, eða minni­hluti þjóð­ar­innar, styðja hana. Skömmu eftir að rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur var mynduð mæld­ist stuðn­ingur við hana 74,1 pró­sent.

Stjórnarsamstarf þeirra ólíku flokka sem mynda ríkisstjórn virðist vera að ganga ágætlega og fátt sem bendir til þess að sprungur séu að myndast.
Stjórn­ar­sam­starf þeirra ólíku flokka sem mynda rík­is­stjórn virð­ist vera að ganga ágæt­lega og fátt sem bendir til þess að sprungur séu að mynd­ast.

Sam­an­lagt fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna er þó tölu­vert minna. Allir mæl­ast þeir undir kjör­fylgi. Mest myndu Vinstri græn (11,3 pró­sent fylgi) missa ef kosið yrði í dag, eða fjóra þing­menn, en Framsókn (8,8 pró­sent fylgi) myndi líka missa tvo.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn myndi tapa fylgi en halda sama fjölda þing­manna. Sam­an­lagt fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna mælist ein­ungis 43,5 pró­sent sem myndi skila þeim 29 þing­mönnum. Það nægir ekki til að mynda meiri­hluta­stjórn. Þannig hefur staðan verið meira og minna síð­ustu miss­eri.

Sósíalistar breyta dýnamíkinni

Það er ekki bara miðju­flokk­arnir sem eru að taka óánægju­fylgi frá Vinstri grænum vegna veru flokks­ins í íhalds­samri rík­is­stjórn þessi dægrin. Spút­níkaflið í íslenskum stjórn­málum, Sós­í­alista­flokkur Íslands, í dag er til vinstri við flokk­inn. Flokk­ur­inn bauð fram í fyrsta sinn í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum í fyrra­vor og náði þar inn manni, Sönnu Magda­lenu Mörtu­dóttur, með því að fá 6,4 pró­sent atkvæða. Í nýj­ustu könnun Gallup, sem birt var um helg­ina, mæld­ist Sós­í­alista­flokk­ur­inn með sitt mesta fylgi í slíkum 5,3 pró­sent, sem myndi duga til að ná inn þremur þing­mönnum.

Sá flokkur virð­ist því, að óbreyttu, ætla að taka stað Flokks fólks­ins í átta flokka kerf­inu og honum virð­ist vera að takast það ætl­un­ar­verk að fylla upp í tóma­rúmið sem mynd­ast hefur vegna rof­inna tengsla vinstri- og jafn­að­ar­manna­flokka lands­ins við verka­lýðs­hreyf­ingu lands­ins. Ef harka fær­ist í yfir­stand­andi kjara­við­ræður, líkt og sumir verka­lýðs­for­ingjar boða að sé fyr­ir­liggj­andi, þá gæti það aukið enn fylgi Sós­í­alista­flokks­ins.

Telja verður lík­legt að Sós­í­alista­flokk­ur­inn myndi ein­skorða mögu­lega rík­is­stjórn­ar­þátt­töku sína við sam­starf við flokka sem starfa til vinstri, og því nær úti­lokað að þeir myndu verða val­kostur fyrir hægri- eða íhalds­flokka í rík­is­stjórn­ar­sam­starfi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár