Stjórnmálaflokkarnir fá 744 milljónir úr ríkissjóði

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fær mest allra stjórn­mála­flokka úr rík­is­sjóði í ár, eða 178 millj­ónir króna. Alls skipta flokk­arnir átta með sér 96 millj­ónum meira en í fyrra.

Stjórn­mála­flokk­arnir átta sem eiga sæti á Alþingi skipta á milli sín 744 millj­ónum króna af fé úr rík­is­sjóði í ár. Fram­lagið hækkar úr 648 millj­ónum króna í fyrra, eða um 96 millj­ónir króna á milli ára. Þetta kemur fram í frétt á vef stjórn­ar­ráðs­ins.

Ákveðið var að hækka fram­lag rík­is­ins til stjórn­mála­flokka með ákvörðun sem var tekin milli jóla og nýárs 2017. Þá var fram­lagið á síð­asta ári aukið um 127 pró­sent.

Fram­lagið skipt­ist niður á flokk­anna átta eftir stærð. Mest fer til Sjálf­stæð­is­flokks­ins, eða 178 millj­ónir króna. Vinstri græn fá 123 millj­ónir króna og þriðji stjórn­ar­flokk­ur­inn, Fram­sókn­ar­flokkur, fær 82,5 millj­ónir króna. Mið­flokk­ur­inn, sem hefur verið mikið í umræð­unni síð­ustu daga, fær 83,5 millj­ónir króna af skattfé til að standa undir starf­semi sinni næsta árið og en mest allra stjórn­ar­and­stöðu­flokka fær Sam­fylk­ingin, eða 91 milljón króna. Píratar fá 72,5 millj­ónir króna, Flokkur fólks­ins rúmar 57 millj­ónir króna og Viðreisn 56 millj­ónir króna.

Mörg hundruð milljónir

Til­laga sex flokka sem sæti eiga á Alþingi um að hækka fram­lag rík­is­ins til stjórn­mála­flokka á árinu 2018 um 127 pró­sent var sam­þykkt í fjár­lögum sem voru afgreidd áður en þingi var slitið í lok des­em­ber 2017. Fram­lög til stjórn­mála­flokka áttu að vera 286 millj­ónir króna en urðu 648 millj­ónir króna í fyrra. Einu flokk­arnir sem skrif­uðu sig ekki á til­lög­una voru Píratar og Flokkur fólks­ins.

Krónu­tölu­hækk­unin heldur áfram í ár og nú fá flokk­arnir um 458 millj­ónum krónum meira en þeir hefðu fengið ef fram­lög árs­ins 2018, og fram­lög til fram­tíðar, hefðu ekki verið hækkuð með jafn umfangs­miklum hætti og gert var í árs­lok 2017.

Framlög líka hækkuð

Full­trúar allra flokka á Alþingi, þar á meðal sex for­menn stjórn­mála­flokka, lögðu sam­eig­in­lega fram frum­varp til að breyta lögum um fjár­mál stjórn­mála­flokka og fram­bjóð­enda í lok síð­asta árs. Það var svo afgreitt sem lög fyrir þing­lok.

Á meðal breyt­inga sem það stuðl­aði var að leyfa stjórn­mála­flokkum að taka á móti hærri fram­lögum frá fyr­ir­tækjum og ein­stak­lingum. Hámarks­fram­lag var 400 þús­und krónur en var breytt í 550 þús­und krónur.

Auk þess var sú fjár­hæð sem ein­stak­lingur þarf að gefa til að vera nafn­greindur í árs­reikn­ingum við­kom­andi flokka eða fram­bjóð­enda sé hækkuð úr 200 þús­und krónum í 300 þús­und krónur.

Því hafa tæki­færi stjórn­mála­flokka til að taka við upp­hæðum frá ein­stak­lingum og fyr­ir­tækjum verið aukin sam­hliða því að upp­hæðin sem þeir fá úr rík­is­sjóði var rúm­lega tvö­földuð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár