Ríkisstjórnin skipar þriðja starfshópinn um uppbyggingu landsvæða

Starfs­hópur um svæðið frá Mark­ar­fljóti að Öræfum verður skip­aður að til­lögu for­sæt­is­ráð­herra, sem er þing­maður kjör­dæm­is­ins. Þetta er þriðji hóp­ur­inn af þessu tagi sem rík­is­stjórnin skipar, en aðferða­fræðin hefur verið gagn­rýnd.

Rík­is­stjórnin sam­þykkti á fundi sínum í morgun að setja á fót starfs­hóp sem á að móta fram­tíð­ar­sýn fyrir svæðið frá Mark­ar­fljóti að Öræfum á Suð­ur­landi, og gera til­lögur sem eru til þess fallnar að efla byggð og atvinnu­líf með sér­stakri áherslu á grunn­þjón­ustu og vaxt­ar­greinar í atvinnu­líf­inu.

Hópurinn er skip­aður að til­lögu Sigurðar Inga Jóhanns­sonar for­sæt­is­ráð­herra, sem er þing­maður í kjör­dæm­inu. Hann skipar for­mann hóps­ins en aðrir full­trúar í honum verða skip­aðir sam­kvæmt til­nefn­ingum frá atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu, Byggða­stofnun, Samtökum sveit­ar­fé­laga á Suð­ur­landi og Háskóla­fé­lagi Suð­ur­lands. Hópurinn á að hafa sam­ráð við sveit­ar­fé­lögin á svæð­inu.

Þetta er í þriðja skipti sem rík­is­stjórnin hefur skipað nefndir af þessu tagi, en fyrst var skipuð svokölluð lands­hluta­nefnd fyrir Norð­ur­land vestra og svo nefnd um sam­fé­lags- og atvinnu­þróun á Vest­fjörðum.

Nefndin um Vest­firði hefur ekki skilað til­lögum sínum en rík­is­stjórnin ákvað í lok síð­asta árs að „styrkja inn­viði, atvinnu­líf og sam­fé­lag á Norð­ur­landi vestra með marg­vís­legum aðgerð­u­m,“ sam­kvæmt til­lögum nefnd­ar­innar þar.

Þessi aðferða­fræði hefur verið gagn­rýnd, að taka fyrir sér­staka lands­hluta með þessum hætti, ekki síst þar sem í gildi eru sókn­ar­á­ætl­anir fyrir alla lands­hluta, sem Sigurður Ingi og Illugi Gunn­ars­son mennta­mála­ráð­herra skrif­uðu undir í fyrra. Sókn­ar­á­ætl­an­irnar eru í gildi til árs­ins 2019. Mark­miðið með sókn­ar­á­ætl­unum var að færa aukna ábyrgð á útdeil­ingu fjár­magns til lands­hluta­sam­taka sveit­ar­fé­laga og „ein­falda fram­lög til ein­stakra lands­hluta, gera þau gegn­særri og láta þau í auknum mæli taka mið af hlut­lægum mæli­kvörðum varð­andi stöðu svæð­is­ins.“

Aðal­steinn Ósk­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Fjórð­ungs­sam­bands Vest­fjarða, sagði eftir að ákveðið var að ráð­ast í verk­efnin sam­kvæmt Norð­vest­ur­nefnd­inni að stefna stjórn­valda væri ekki skýr. „Maður sér ekki alveg hvaða aðferða­fræði stjórn­völd ætla að beita í byggða­mál­um, er það með svona bein­um, mið­stýrðum aðgerðum eða ætla menn að efla land­svæðin í að taka ákvarð­anir á eigin for­sendum og fylgja því eft­ir,“ sagði hann við RÚV. Ann­ars staðar á lands­byggð­inni væri unnið eftir sókn­ar­á­ætl­unum og lands­hluta­sam­tök sveit­ar­fé­laga hefðu lagt áherslu á að sú vinna yrði efld, en það hefur ekki verið gert. Vinna eins og í norð­vest­ur­nefnd­inni væri mun mið­stýrð­ari heldur en sókn­ar­á­ætl­an­irn­ar. 

Sigurður Már Jónsson, upp­lýs­inga­full­trúi rík­is­stjórn­ar­innar, segir að það hafi þótt ágæt aðferð að nálg­ast málin með þessum hætti, að tekin séu fyrir ákveðin svæði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár