Í þá tíð... Frelsari heimsins seldur á metfé

Uppboðs­haldarinn Christie‘s í New York setti nýtt met nýlega þegar málverk sem talið er eftir Leonardo da Vinci seldist á 450 milljónir Bandaríkja­dala. Þetta er aðeins í þriðja skiptið sem sérfræðingar hafa almennt vottað „nýtt“ da Vinci-verk.

Salvator Mundi var talið glatað í margar aldir þangað til að það kom fram á ný árið 2011. Það þykir bra öll helstu einkenni Leonardos og er nú orðið dýrasta listaverk allra tíma.
Salvator Mundi var talið glatað í margar aldir þangað til að það kom fram á ný árið 2011. Það þykir bra öll helstu ein­kenni Leon­ar­dos og er nú orðið dýrasta lista­verk allra tíma. Mynd: Aðsend

Einn merkilegasti atburður seinni tíma listasögu átti sér stað nýverið þegar verk eftir Leonardo da Vinci, Salvator Mundi (Frelsari heimsins) var selt á uppboði fyrir 400 milljónir Bandaríkja­dala, rúma 42 milljarða króna, sem er meira en nokkuð verk hefur áður selst á. Ekki hefur verið gefið upp hver kaup­andinn fjár­sterki er.

Einstök einkenni Leonardos

Leonardo da Vinci fæddist í Flórens árið 1452, óskilgetinn sonur manns af góðum ættum skrifara og almúga­stúlku. Hann fékk þó að kenna sig við föður sinn og naut þess þó alla ævi að vera af „góðu fólki“ kominn. Ungur komst hann í læri hjá lista­manninum Andrea del Veroccio og helgaði ævi sína listum og vísindum.

Hann er sennilega nafntogaðasti lista­maður allra tíma og verk hans eru sum þau þekktustu í sögunni, en þar má helst nefna Síðustu kvöld­máltíðina og Mónu Lísu.

Leonardo var nafn­togaður alla tíð og var margoft ráðinn til að vinna hin ýmsu listaverk fyrir fyrirmenni í Flórens, Mílanó, París og Róm, en átti lengi vel erfitt með að klára viðfangs­efni sín, enda var hugur hans sífellt á flugi, sem sést meðal annars á skissu­bókum hans þar sem hann kastar fram spurningum um eðli nátt­úrunnar milli þess sem hann teiknar hin ýmsu tæki og tól og uppköst að stærri verkum.

Hann lést árið 1519 og skildi eftir sig óviðjafnanlegt safn verka og hugmynda, og er einn af kyndliberum endur­reisnarinnar. Engu að síður eru innan við 20 málverk sem eignuð eru Leonardo og aðeins eitt er í einkaeign, Salvatore Mundi.

Myndin er af Jesú Kristi sem heldur uppi hægri hönd til blessunar en í þeirri vinstri heldur hann á kristal­kúlu. Þetta var einmitt mjög vinsælt mótíf á þessum tíma. Hún er máluð á hnotu og er 45 sentimetrar á breidd og 65 sentimetrar á hæð. Verkið var málað fyrir Loðvík XII Frakk­landskonung fyrir um 500 árum síðan.

Verkið kom ekki fram fyrr en snemma á þessari öld og var staðfest sem verk Leonardos árið 2011. Það er eitt af einungis þremur verkum sem hefur komið fram og fengið slíka vottun.

Hin eru Benois Madonna sem var kynnt til sögunnar árið 1909 og hefur verið til sýningar í lista­safninu í St. Péturs­borg í Rússlandi frá 1914, og svo teikningin La Bella Principessa, sem var staðfest sem verk Leonardos af sérfræðingum um 2010.

Vanda­málið með að staðfesta slíkt felst ekki síst í því að Leonardo merkti sér ekki verk sín, frekar en aðrir listamenn þessa tíma, og þrátt fyrir að hann skrifaði allt á milli himins og jarðar í minnis­bækur sínar skrifaði hann ekki um verkin sín.

Þess í stað verður fólk að reiða sig á að greina tækni og stíl málarans og það hefur tekist í þessum örfáu tilvikum af þeim fjölmörgu sem koma reglulega fram þar sem því er haldið fram að um verk Leonardos sé að ræða.

Þrautaganga Salvator Mundi

Mörg af einkennum Leonardos má einmitt finna á Salvator Mundi, meðal annars dular­fullt beint augna­ráðið og órætt brosið, sítt, hrokkið hár og þessar mjúku, óskýru línur og skuggar, sem fengin eru með tækni sem kallast sfumato, en það orð er dregið af ítalska orðinu fumo sem þýðir reykur. Það felur í sér að lista­maðurinn dregur úr málningunni t.d. með handar­jaðri, til að fá fram þetta yfirbragð. Þá er það málað á hnotu, eins og mörg önnur verk hans, en eitt af helstu einkennunum eru pensil­strokurnar sem bera með sér að þær hafi verið gerðar af örvhentum manni, sem Leonardo var.

Það sem vekur helst athygli er hversu vel lista­manninum tekst að hleypa lífi í myndina. Leonardo var sérfræðingur í að nota sfumato í bland við meira afgerandi línur, bæði til að skapa þrívídd og einnig til að draga augað að ákveðnum hlutum verksins, aðallega höndum Krists, kristals­kúlunni og krullunum sem falla niður af öxlum hans.

Það sem stingur þó í stúf er kúlan góða. Eins falleg og hún er, þá gengur hún gegn ýmsum reglum eðlis­fræðinnar sem Leonardo voru svo hugleikin. Það sem sést í gegnum kúluna, skikkja Krists ætti að snúast við. Í nýút­kominni bók sinni um Leonardo telur Walter Isaacson að meistarinn hafi gert þetta viljandi, annað hvort til að myndin yrði ekki of skrítin, eða hreinlega til að ljá Kristi enn frekari krafta, sem myndu ganga þvert á náttúru­lögmálin.

Áður en staðfest var með rökum og nútíma­tækni að Salvator Mundi væri sannarlega verk Leonardos voru til skjal­festar heimildir um að da Vinci-verk sem það hafi verið til. Til dæmis í eigna­skýrslu Salai, sem var lærlingur og aðstoðar­maður Leonardos í um aldar­fjórðung, og í listaverka­safni Karls I Englands­konungs, og sonar hans Karls II.

Verkið hvarf eftir að það fór úr höndum Karls II til hertogans af Buckingham og sonur þess síðarnefnda seldi það árið 1763.

Fjölmargar eftir­myndir voru gerðar. Nokkrir aðdáendur Leonardos gerðu sínar útgáfur af verkinu og eiginkona Karls I réði listamann til að rista eftirmynd.

Árið 1900 birtist það svo á ný þegar það komst í eigu bresks safnara, Francis Cook, sem vissi ekkert hvað hann hafði í höndunum, síst af öllu að þarna væri „glatað“ verk eins mesta meistara lista­sögunnar.

Verkið var þá mikið skemmt. Það var meðal annars búið að mála yfir það og lakka svo að það var gersam­lega óþekkjanlegt. Andlitið og hárið, sem bera svo sterk höfundar­einkenni Leonardos voru til dæmis hulin af málingu seinni tíma manna. Það var því eignað nemanda Leonardos, Giovnanni Boltraffio.

Síðar var það meira að segja gjald­fellt niður í að vera eftirmynd af eftirmynd og þannig fór að afkomandi Cooks seldi það á uppboði á 45 pund árið 1958.

Það hvarf svo sjónum enn og aftur og birtist á ný árið 2005 þar sem það var selt á uppboði úr dánarbúi í Banda­ríkjunum á innan við 100 dali.

Kaup­andinn var raunar hópur fjárfesta sem grunaði að þarna væru þeir með eitthvað merkilegt í höndunum. Þeir fengu til liðs við sig listaverka­salann Robert Simon og eftir að sérfræðingar í listaverka­viðgerðum fóru að flysja seinni tíma viðbætur ofan af verkinu kom krafta­verkið í ljós. Einkenni Leonardos leyndu sér ekki og brátt höfðu sérfræðingar, bæði í Banda­ríkjunum og Evrópu staðfest fyrir sitt leyti að þarna væri sannarlega um verk meistarans að ræða.

Hópurinn seldi verkið árið 2013 á nær 80 milljónir dala. Kaup­andinn var svissneskur listaverka­sali, sem svo seldi það snarlega aftur á 127,5 milljónir dala. Kaup­andinn sá var rússneskur milljarðamæringur að nafi Dimitri Rybolovlev, sem sér varla eftir því núna þegar hann hefur selt það á 450 milljónir dala, hærri upphæð en nokkru sinni hefur verið greitt fyrir listaverk. Uppboðið stóð í um tuttugu mínútur þar sem allt að sex kaupendur voru að að berjast um verkið í einu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár